Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Golli „Sorgleg tillaga“ að mati formanns samgöngunefndar Boðin velkomin íMR NÝNEMAR í Menntaskólanum í Reykjavík voru tolleraðir af eldri nemum skólans í gær. Gömul hefð er fyrir tolleringu busanna, sem geta nú að lokinni vígsluat- höfn litið á sig sem fullgilda MR- inga. ísfélagið sýknað af bóta- kröfum HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær Isfélag Vestmannaeyja hf. af kröfum starfsmanns félags- ins, sem héraðsdómur hafði dæmt rúmar 1900 þúsund krónur í skaðabætur vegna vinnuslyss sem átti sér stað ár- ið 1993. Var maðurinn að mála í fiskinyölsverksmiðju félagsins í tveggja metra hæð og notaði til þess stiga sem rann á hálu gólfi svo hann féll niður og ristar- brotnaði á öðrum fæti. Taldi Hæstiréttur að telja mætti slysið til vanbúnaðai- stigans, sem notaður var en á honum voru engir skór úr gúmmíi sem hefðu getað gert hann stöðugri á hálu gólfinu. Hins vegar taldi dómurinn engu að síður að maðurinn, sem hafði langa reynslu sem háseti og stýrimaður, hefði getað gert sér grein fyrir að hættulegt var að nota stigann á hálu gólfinu án þess að gerðar væru sér- staka ráðsafanir til að hann rynni ekki til. Pótti dóminum því hæfilegt að maðurinn bæri þriðjung tjóns síns sjálfur. Talið var að um bætur til mannsins fyrir varanlega ör- orku og miska ætti að fara fram samkvæmt matsgerð örorku- nefndar, enda hefði henni ekki verið hnekkt með mati dóm- kvaddra manna. Þar sem hann hafði þegar fengið greiddar írá ábyrgðartryggjanda ísfélags- ins hærri bætur en honum bar samkvæmt framangreindri nið- urstöðu var Isfélagið sýknað. ÁRNI Johnsen, formaður sam- göngunefndar Alþingis, gagnrýnir harðlega tillögu sem lögð var fram í borgarstjórn í gær um að efnt verði til almennrar atkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallai' í Vatnsmýrinni. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kveðst telja til- löguna einkennast af sýndar- mennsku. „Þetta er sorgleg tillaga. Það má alveg eins spyrja hvers vegna ekki er kosið um það meðal höfuðborgar- búa, hvort háskólinn eigi að vera áfram í Reykjavík eða Þjóðminja- safn, Þjóðleikhús og aðrar stofnanir. Flugvöllurinn er aðeins hluti af skyldum Reykjavíkur sem höfuð- borgar og lykill landsbyggðarinnar að höfuðborg sinni og öfugt,“ segir Árni. Einkennist af sýndarmennsku Sturla bendir á að borgaryfirvöld verði að taka ákvarðanir um hvernig þau standa að sínum málum, en fyrir liggi hins vegar að borgaryfirvöld hafi nú þegar tekið ákvörðun um að skipulagið sem gildir til 2016 feli í sér að völlurinn verði áfram. Þá sé sömuleiðis búið að samþykkja deiliskipulag á flugvallarsvæðinu og heimila framkvæmdir með samþykkt borgatyfirvalda. „Eg lít svo á að þessi tillaga, sem felur það í sér að kalla eftir afstöðu borgarbúa, einkennist af sýndar- mennsku, í ljósi þess að skipulagið liggur íyrir. Ef það hefði verið raun- verulegur vilji borgaryfirvalda að láta Reykvíkinga koma að þessu máli, hefði átt að gera það áður en skipulagið var afgreitt. Staðreyndin er hins vegar sú að skipulagið gerir ráð fyrir þessu og það er mat flug- málayfirvalda að það þurfi að endur- byggja brautirnar og tryggja öryggi Reykjavíkurflugvallar og þeirra far- þega sem fara um hann. Vegna þess hef ég lagt á það ríka áherslu að hraða framkvæmdum við endurbæt- urnar, sem snúa allar að því að auka öryggi vallarins,“ segir Sturla. Ráðherra bendir jafnframt á að áætlaður kostnaður við flutning vall- arins nemur fleiri milljörðum króna, auk þess sem gríðarlega kostnaðar- samt sé talið að byggja upp nýjan flugvöll á öðrum stað. Væri notast við Keflavíkurflugvöll myndi það þýða mikið óhagræði fyrir farþega innanlandsflugsins, fyrir utan marg- víslegt óhagræði í því sambandi. Hann kveðst hins vegar ætla að kynna sér afgreiðslu borgarjdirvalda á málinu og meta stöðuna þegar nið- urstaða er fengin af tillöguflutningn- um. „Það er alveg ljóst að Alþingi sam- þykkti flugmálaáætlun og fjárlög sem gerðu ráð fyrir þessum fram- kvæmdum í þeirri trú og vissu að völlurinn yrði á núverandi stað út skipulagstímabilið. Fyrst eftir þann tíma kæmi til greina að skoða slíkar hugmyndir og ef að því kæmi þyrfti að hefja viðræður milli borgaryfir- valda og samgönguráðuneytis um slíkan flutning og hvernig nýta beri það land sem ríkið á undir Reykja- víkurflugvelli,“ segir Sturla. Bein árás á landsbyggðina Árni bendir á að milli 400 og 500 þúsund farþegar fari um Reykjavík- urflugvöll á ári hverju og ef völlurinn yrði fluttur liti hann svo á að verið væri að ganga á milli bols og höfuðs á innanlandsflugi. Það myndi þýða ómældan kostnað og að þúsundir ársverka færu í súginn hjá þeim sem ferðast til og frá höfuðborginni. Þar að auki megi benda á að völlurinn skapi þúsundir starfa, í tengslum við flugið og einnig í verslun, þjónustu, gistingu o.s.frv., ekki síst í Reykjavík en einnig annars staðar á landinu. „Þessi tillaga er allt í senn dóna- skapur, lítilsvirðing og bein árás á landsbyggðina, auk þess að vera stórfurðuleg og ótímabær. Með henni er þess freistað að leggja flug- völlinn af, eins og verið hefur í far- vatninu hjá R-listanum um árabil, og hann er að skorast undan því að Reykjavík verði áfram höfuðborg Is- land því að völlurinn skiptir svo miklu máli í því sambandi. Það á að fara að byggja upp völlinn og ganga frá skipulagi hans til sextán ára, eða 2016, og það er óskiljanlegt að menn vilji fikta í þessum málum núna. Eft- ir sextán ár getur verið komin ný tækni, geimferðir og annað, sem leysir völlinn af hólmi eftir þann tíma, en nú er út úr kortinu að vasast í þessum málum. Höfuðborgin hefur auðvitað haft forskot um ára- tugaskeið á mörgum sviðum, en þeg- ar hallar á landsbyggðina er ekki ástæða til að einangra landsbyggð- ina ennþá meir með því að skapa vanda í ferðum til og frá Reykjavík," segir Árni. Aðspurður hvernig hann mjmdi líta á þessi mál, ef stór hluti lands- manna sem búsettur er ó höfuðborg- arsvæðinu myndi velja í almennri kosningu að færa skyldi Reykjavík- urflugvöll, kveðst Árni þeirrar skoð- unar að það jafngilti stríðsyfirlýs- ingu. „Ef höfuðborgin ætlai' ekki að búa í sátt við landsbyggðina, er höf- uðborgin að lýsa yfir stríði á hendur landsbyggðinni. Éf höfuðborgin vill það, er fjandinn laus,“ segir Ámi. Hann kveðst ekki sjá það fýrir sér að völlurinn geti staðið annars staðar ó borgarlandinu, án þess að það komi niður á innanlandsfluginu. Vegna veðurfarslegra aðstæðna hérlendis skipti miklu máli að aðgengi milli vallar og borgar sé gott. „Það vita all- ir sem þurfa að fljúga til Egilsstaða, Isafjarðar, Vestmannaeyja eða Akur- eyrar, að það væri geysilega flókið mál að flytja völlinn og væri slátrun á innanlandsfluginu. Það er einföld staðreynd sem fólk þekkir sem býr við þessar aðstæður. Ef R-listinn treystir sér ekki til að stýra Reykja- víkurborg sem höfuðborg þarf ann- aðhvort að skipta um meirihluta, eða hefja byggingu nýrrar höfuðborgar og ég bendi einfaldlega á að á Suður- landi er nóg rými, aðgengilegt og hagkvæmt, fyrir nýja höfuðborg og flugvelli í fleirtölu. Ef einn gefst upp tekur annar við,“ segir hann. Mál imgs kylfíngs sem 1 sumar var sviptur áhugamannaréttindum í sex mánuði Óskað eftir áliti frá ÍSÍ Andmæla- og málskotsréttur sagður hundsaður LÖGFRÆÐINGUR tvítugs kylfings sem áhugamennskunefnd Golfsambands Islands svipti áhugamannaréttindum sínum um hálfs árs skeið, frá 11. ágúst síðastliðnum hefur sent framkvæmdastjórn íþrótta- og ólympíusam- bands Islands bréf þar sem óskað er eftir að sambandið fjalH um lögmæti málsmeðferðar þeirrar sem pilturinn fékk. Framkvæmda- stjóm ÍSÍ heldur næsta fund sinn á morgun, 18. september, og kveðst Sólveig Ólafsdóttir, lögfræðingur kylfingsins unga, vonast til að er- indi hennar verði afgreitt þá. Málavextir eru þeir helstir að áhuga- mennskunefnd Golfsambands Islands sendi golfklúbbum bréf í maí sl„ þar sem bent var á að samkvæmt ákvæðum áhugamennskureglna um verðlaun megi enginn áhugamaður í golfi taka við peningaverðlaunum eða ígildi þeirra. Með hliðsjón af ákvæðum áhugamennsku- reglna fyrir Evrópu ákvað nefndin að hámarks- verðlaun hérlendis, sem einn áhugamaður tek- ur við á einu og sama golfmóti, megi hæst vera að verðgildi 40 þúsund krónur. GHdir það há- mark einnig, þó svo sami leikmaður vinni til fleiri verðlauna á sama móti. Tæplega 12 þús. yfír hátnarki Skjólstæðingur Sólveigar tók þátt í Opna Aiwa-mótinu á Ejðjabergsvelli, sem haldið var 3. júlí sl., og fékk þar m.a. í verðlaun hljómtæki og armbandsúr. Áhugamennskunefnd spurðist fyrir um verðmæti vinninga um miðjan júlí og komu þá í ljós tveir verðlaunahafar, þar á með- al skjólstæðingur Sólveigar, sem voru yfir við- miðunarmörkum. Heildarandvirði vinninga kylfingsins voni 51.800 krónur, eða 11.800 krónum yfir þeirri viðmiðun sem nefndin hafði sett. „Það var misbrestur á því í þessu tilviki að golfklúbburinn gerði keppendum grein fyrir þessum ákvæðum sem áhugamennskunefnd GSÍ hefði sent. Auk þess gerði umbjóðandi minn sér enga grein fyrir því að samanlagt verðmæti vinninga færi yfir þessi mörk nefnd- arinnar og hefði afþakkað úrið, hefði hann vitað það,“ segir Sólveig. Hinn 11. ágúst sl. var kylfingnum síðan til- kynnt að hann hefði verið sviptur áhugamanna- réttindum sínum í 6 mánuði, frá þeim degi, vegna brots á ákvæðum áhugamannaréttinda um hámarksverðmæti verðlauna. Sólveig gerði sex dögum síðar þá kröfu til nefndarinnar að hún endurskoðaði þegar í stað og felldi úr gildi úrskurð sinn, auk þess sem gerð var sú krafa að kylfíngurinn héldi fullum áhugamannaréttindum á meðan málið væri til meðferðar hjá nefndinni eða öðrum aðilum. Nefndin lýsti sig reiðubúna til að eiga fund um málið með kylfingnum, þar sem honum yrði gefinn kostur á að tjá sig um málið. Kæmi eitt- hvað fram á þeim fundi sem nefndin teldi skipta máli og henni kynni að hafa yfirsést, lýsti hún sig reiðubúna til að fella úrskurð sinn úr gildi og taka málið til nýrrar umfjöllunar. Ekki tókst hins vegar að fá úrskurði nefndar- innar hnekkt. Varð fyrir tjóni og miska Sólveig kveðst þeirrar skoðunar að málsmeð- ferð áhugamennskunefndar GSÍ sé bæði dæmalaus og ólögmæt. „Umbjóðandi minn hef- ur orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni og miska vegna ólöglegrar ákvörðunar áhugamennsku- nefndar GSÍ, sem sendi öllum golfklúbbum af- rit af sviptingarúrskurðinum sama dag og hon- um var sent bréf um úrskurðinn. Hann hefur því orðið af möguleikum á þátttöku í öllum opn- um golfmótum frá 11. ágúst sl., auk þehTa óþæginda sem úrskurðurinn hefur haft í för með sér fyrir hann,“ segir Sólveig. Hún kveðst draga það mjög í efa að það sam- ræmist lögum, reglugerðum og venjum ISI, að hægt sé að svipta menn réttindum án þess að virtur sé andmælaréttur og málskotsréttur, sem þegnum landsins sé almennt tryggður í landslögum og þeim mannréttindasáttmálum sem ísland er aðili að. ,,Ég spyr hvort stjórn sérsambanda innan ÍSI getið komið á fót nefndum með svo mikil völd, sem t.d. áhugamennskunefnd GSÍ hefur tekið að sér, án þess að slíkra nefnda sé með nokkrum hætti getið í lögum viðkomandi sam- bands. Ég spyr ennfremur hvaða leið fram- kvæmdastjórn ÍSÍ telji að umbjóðandi minn geti farið innan réttarkerfis íþróttahreyfingar- innar, til þess að ná fram rétti sínum í málinu,“ segir Sólveig. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, er staddur er- lendis og vildi ekki tjá sig efnislega um málið í gærkvöldi en sagði það vera til lögfræðilegrar skoðunar á vegum sambandsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.