Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 27 ÚR VERINU Víkingur aftur í Grænlandssund VÍKINGUR AK og Guðrún Þorkelsdóttir SU komu inn til heimahafna sinna um helgina eftir árangurslitla loðnuleit undan- farna daga. Þau fóru um frekar stórt svæði fyrir norðan og aust- an land og Víkingur hélt aftur í Grænlandssund í gær en stefnt er að því að fleiri skip fari saman til loðnuleitar á næstunni. Víkingur kom til Akraness á laug- ardag eftir að hafa farið víða undan- gengna daga. „Vkí höfum séð svolítið af smáloðnu en sjórinn er heitur,“ sagði Viðar Karlsson skipstjóri við Morgunblaðið en hann byrjaði í Græniandssundi og fór austur að Mel- rakkasléttu. Hann segir að komi loðn- an ekki vestan úr Grænlandssundi sé hætta á því að hún verði seint á ferð, því langt sé í eðlilegt hitastig fyrir austan. „Hitastigið í Grænlandssund- inu er mjög hagstætt en við vitum ekki hvert loðnan fór í sumar og það er vandamálið. Það er mjög algengt að hún fari mjög langt suðvestur eftir, suður fyrir Dohrnbanka, og þá getur hún komið mjög seint til baka. Þegai’ veiðibannið var sett í sumar, sem kannski var nauðsynlegt, misstum við taktinn, en ég ætla að skoða þetta bet- ur í Grænlandssundinu." Guðrún Þorkelsdóttir kom til Eski- fjai'ðar í gærmorgun eftir að hafa kannað svæðið austanfrá Digranes- flaki norður fyrir Langanes og vestur fyrir Kolbeinsey. Að sögn Emils Thorarensen, útgerðarstjóra Hrað- frystihúss Eskifjarðar, var kastað tvisvar en ekkert fannst nema smælki. „Menn hafa verið að ræða saman og stefnt er að því að nokkur skip faii saman að leita upp úr mán- aðamótunum." Lítill afli og sfldin smá Nú eru fímm skip að leita að síld fyrir austan landið og fengu þau þokkaleg- an afla um helgina. ísleifur VE fékk þannig 200 tonna kast á Papagrunni um helgina en Gunnar Jónsson skip- stjóri sagði sfldina heldur smáa. „Þetta var frekar blönduð sfld og ekki nógu góð í vinnslu. Það er þó alls ekki tilefni til að loka þessu svæði. Vana- lega fæst besta sfldin í upphafi haust- vertíðarinnar en þessi sfld er mun smærri en við fengum i upphafi ver- tíðarinnar í fyrra. Þá veiddum við reyndar í bræðslu, enda fékkst þá mun hærra verð fyrir bræðslusfld- ina.“ Lítill afli fékkst á Papagrunni í fyrrakvöld, enda var slæmt veður á miðunum. Gunnar sagði nokkur skip stefna í Héraðsflóann til að freista þess að finna stærri sfld. Nánast ekk- ert hefur verið leitað að síld fyrir vest- an land en talsvert sást til síldar vest- ur af Snæfellsnesi á síðustu vertíð. Ar- ney KE leitaði reyndar að sfld vestur af Garðskaga í síðustu viku en sá ekk- ert. Gunnar sagði hklega of snemmt að leita síldarinnar fyrir vestan landið, enda hafi hún ekki fengist þar fyrr en í nóvember á síðustu vertíð. „Það er engin ástæða til að örvænta, vertíðin er rétt að byrja og við eigum eftir að leita viða. Sfldin er einhvers staðar því það sást mikil sfld á Selvogsbankan- um í sumar. Við verðum hinsvegar að leita af okkur allan grun hérna fyrir austan því hér er aðstaðan til að vinna sfldina. Þar er erfitt að sigla með sfld að vestan í vinnslu fyrir austan,“ sagði Gunnar. Morgunblaðið/Brynjúlfur Brynjólfsson Hafnarey SF úr endurbótum TOGSKIPIÐ Hafnarey SF kom til heimahafnar á Hornafirði fyr- ir skemmstu eftir gagngerar endurbætur í Pasajes á Spáni. Þar var skipið lengt um 6,5 metra, þar af var 5 metrum bætt í mitt skipið, og er það nú 28,96 metra langt. Þannig eykst lestar- pláss um 100%. Sett var á skipið perustefni og eykst ganghraði skipsis um 0,8 sjómílur eftir breytingamar. Þá var brúnni lyft um 1 metra, byggt var yfir skipið að aftan, sett á það pokamastur, toggálgi og skutrenna. Þá var spilbúnaður endurnýjaður og að- gerðaraðstaða endurbætt. Enn- fremur var íbúðum fjölgað um einn klefa. Að sögn Jóns Hafdal, skipstjóra og útgerðarmanns, er nú verið að leggja lokahönd á breytingarnar og gerir hann ráð fyrir að skipið haldi til veiða eftir tvær vikur. Dræmt á kolmunnanum AFLI íslensku kolmunnaskipanna hefur verið tregur síðustu daga eftir ágætis veiði í síðustu viku. I gær voru skipin að veiðum um 30 sjómflur norð- ur af Færeyjum en þar fékk færeyska kolmunnaskipið Kristján í Grjótinu þokkalegan afla um helgina. Magnús Þorvaldsson, skipstjóri á Sunnubergi NS, sagði hins vegar í samtali við Morgunblaðið í gær að lítið sæist til kolmunnans. „Það hefur verið lélegt síðustu daga en veiðin var ágæt í síð- ustu viku. Það er vaxandi sti'aumur og vonandi er það ástæðan fyrir því að kolmunninn iætur lítið á sér kræla. Þó að aflinn hafi aldrei verið góður hefur alltaf verið ennþá minni veiði í stór- streymi. Það fer að draga úr straumi um miðja vikuna og þá fer aflinn von- andi að glæðast á ný,“ sagði Magnús. Aflinn um 109 þúsund tonn Það sem af er árinu hafa borist á land tæp 109 þúsund tonn af kolmunna, þar af tæp 10 þúsund tonn af erlendum skipum. Mest hefur verið landað hjá fiskimjölsverksmiðju SR- mjöls hf. á Seyðisfirði eða tæpum 29 þúsund tonnum. Þá hafa 21 þúsund tonn borist til Sfldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað og 20 þúsund tonn til Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf. Um 17 þúsund tonnum af kolmunna hefur verið landað hjá Loðnuvinnslunni hf. á Fáskrúðsfirði en mun minna magni hjá öðrum verksmiðjum. það besta næst' þér! J A Z Z Eru S L 1P1D U þægilec justu buxur sem þú færð ? prófaðu! Fullkomið snið Sniðið tryggir að SLIPIDU falla vel að Ifkamanum. Mjúkt frotte innlegg SLIPIDU llnan er með þægilegu mjúku frotte innleggi. Engir saumar Sérstaða SLIPIDU er að efnið er hring- prjónað og þess vegna engir óþægilegir saumar. Gæðavara Efnið I SLIPIDU er 95% fínkembd og súrefnisbleikt Mako-bómull, með 5% teygju. SLIPIDU eru því einstaklega mjúkar og passa fullkomlega. Hagkaup Hagkaup Hagkaup Perla Heimahornið KVH Kringlunni Skeifunni Smáratorgi Akranesi Stykkishólmi Hvammstanga Aniaró-Mýrar Dalakjör KÁ Akureyri Búðardal Hellu KÁ Apótekið Selfossi ólafsvfk H-búðin Fjarðakaup Embla KB Fatabúðin Visir KEA Hrísalundi KASK KÁ Garðabæ Hafnarfirði Hafnarfirði Borgarnesi Isafirði Blönduósi Akureyri Höfn Hornafirði Hvolsvelli Teygjubryddingar Nýr frágangur á teygju gerir bryddingar sléttar og mjúkar. Pær tryggja fullkomið snið. Ný gljáandi áferð á teygjunni gefur SLIPIDU aðlaðandi útlit. KÞ-Esar KÁ Tanginn Húsavfk Vestmannaeyjum Grund Flúðum ísold Sauðárkróki Ceres Snyrtistofan Snót Kópavogi Kópavogi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.