Morgunblaðið - 09.10.1999, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
ERLENDAR
Ásgerður Jóhanns-
dóttir verkefnastjóri
skrifar um nýjustu
plötu Chris Comell,
Euphoria Moming.
Rokkgoð í
rólegheitunum
EG HEF hlustað á Soundgar-
den í tíu ár og verð því að
játa að ég beið með nokkurri
eftirvæntingu eftir sólóplötu Chris
Comell fyrrum söngvara þeirrar
mætu sveitar. Nú er ekki í frásögur
færandi að fólk bíði eftir nýjum
plötum en í þessu tilviki leið tíminn
hægt. Comell var búinn að vera að
dunda við þetta í tvö ár og útgáfu-
degi frestað oftar en einu sinni.
Nú er biðin á enda og Euphoria
Morning í spilaranum hjá mér
nokkurn veginn frá morgni til
kvölds. Platan kom mér ekki mikið
á óvart en það er ekki þar með
sagt að Cornell sé að endurtaka
gamla slagara. Þvert á móti. A
Euphoria Morning tekst honum að
víkka út sjóndeildarhringinn án
þess að missa sjónar á því sem hef-
ur mótað hann í gegnum tíðina.
Platan inniheldur tólf lög ásamt
einu aukalagi sem er frönsk útgáfa
af fyrsta smáskífulaginu „Can’t
Change Me“. Lagið er Zeppelin-
bítlablanda með austrænu poppí-
vafi og gefur tóninn fyrir þau
margbreytilegu áhrif sem finna má
á plötunni. Eftir fyrsta poppáfallið,
náði ég mér nokkuð íljótt, og
finnst mér sem ég heyri Tom
Waits, Zeppelin, Bítlana og gömlu
Aerosmith anda einhvers staðar
þarna í bakgrunninum. Svo laum-
ast þjóðlagaáhrif inn í mörg lag-
anna, hverrar þjóðar er eriftt að
segja til um en hreinn gospelblús í
„When I’m Down“ kemur á óvart.
Lagið er tilraun Cornell til að
semja klassíska blúsballöðu. Hann
varð að fá að gera það að minnsta
kosti einu sinni og getur verið
stoltur af afrakstrinum. Titillag
plötunnar er Sweet Euphoria sem
Cornell tók upp einn heima hjá
sér, augljóslega í mestu rólegheit-
um því hér er á ferðinni þjóðlaga-
kennd ballaða sem eflaust á eftir
að verða klassísk
Platan er þó ekki öll á ljúfu nót-
unum því hinn þungi kraftur sem
Cornell hefur alltaf borið með sér
fær að njóta sín í „Follow My
Way“, „Mission“ og „Steel Rain“
sem eru þau lög sem minna helst á
gömlu Soundgarden en það er
kannski kaldhæðni að þau eru
samin af Natöshu Sheider og Alain
Johannes úr Eleven ásamt Corn-
ell. Ekki er heldur til baga hversu
vel Cornell tekst til í lögum eins og
„Preaching the End of the World“
og „Flutter Girl“ sem sumir vilja
hneigja til Bítlanna en minna mig
einnig ofurlítið á Beck og Björk þó
ekki sé hægt að bera saman
söngstíl eða melódíumeldingar
þeirra.
Látnir félagar eru ekki langt
undan og samdi Cornell „Wave
Goodbye“ í virðingarskyni við hinn
látna vin sinn Jeff Buckley. í því
lagi syngur hann í svipuðum stíl og
Buckley og nær að koma mér enn
og aftur á óvart í raddmeðferð og
söngstíl. Þetta hljómar kannski
eins og einn hrærigrautur en svo
er ekki. Tilraunastarfseminni er
ekki ofaukið á plötunni og hefur
hún yfir sér góðan heildarsvip en
er á sama tíma nógu fjölbreytt til
að detta ekki niður í endurtekn-
ingu. Cornell heldur sínum per-
sónulega stíl í gegnum öll lögin og
erfitt er að tiltaka eitt lag umfram
annað sem besta lag plötunnar.
Það er sjaldan sem ég fæ plötu í
hendurnar sem er öll jafngóð, en
Euphoria Moming er einmitt
þannig gripur, verk sem vex með
hverri hlustun.
Persónuleg
sýning
NÚ FER að nálgast dagurinn
mikli, þegar persónulegir
munir leikkonunar
goðsagnakenndu Marilyn
Monroe verða boðnir upp.
Sýning á völdum hlutum úr
safninu var haldin í París í
vikunni og meðal þess sem
fyrir augu bar var kjólinn sem
hún klæddist er hún söng með
sinni blíðu röddu afmælissöng
Johns F. Kennedy Banda-
ríkjaforseta árið 1962.
Uppboðið fer fram í New
York í uppboðshúsi Christiar
dagana 27.-28. október svo
þeir sem áhuga hafa á að
kaupa eitthvað sem Marilyn
Monroe snerti ættu að bóka far
sem fyrst.
Teiknuð
Biblíusaga
Egypski prinsinn
(The Prince ofEgypt)_
Teiknimynd
★★★
íslenskar leikraddir: Felix Bergsson,
Hjálniar Hjálmarsson, Selma Björns-
dóttir, Margrét Sigurðarddttir o.fi.
96 mín. Bandarísk. ClC-myndbönd,
september 1999. Öllum leyfð.
DRAUMASMIÐJA Stevens
Spielberg á heiðurinn af þessari
ágætu teiknuðu biblíusögu um
Móses. Myndin
er vel heppnuð
og teiknimyndin
greinilega mjög
hentugt tæki til
að segja sögur af
þessu tagi. Hún
er ekki síður ætl-
uð fullorðnum en
börnum og ættu
flestir að geta
notið þess að fylgjast með ævintýr-
um Gamla testamentisins með að-
stoð nýjustu tölvutækni í teikni-
myndagerð. Handritið er skemmti-
lega útfært og leggur mikla áherslu
á sambandið milli uppeldisbræðr-
anna Móses og krónprins Egypta-
lands og síðar Farós. Fjölskyldu-
dramað er athyglisverð viðbót við
hefðbundnari útgáfur þessarar
þekktu sögu um frelsun hebresku
þjóðarinnar úr ánauð Egypta. I út-
gáfunni er bryddað upp á þeirri
bráðsniðugu nýjung að láta mynd-
ina fylgja í upprunalegri útgáfu, þ.e.
eins og hún var áður en prýðilegur
íslenskur leiklestur var settur inn á.
Guðmundur Ásgeirsson.
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999 73 V.
Success Lift
frá Guerlain
Nýjung sem
lofar góðu
Success Lift nefnist nýtt krem í
Issima-línunni frá Guerlain. Áhrif
þess eru skjótvirk og langvarandi.
Nokkuð sem þú munt kunna
að meta. Þeir sem gleggst til þekkja
kalla þetta „andlitslyftíngu
án skurðaðgerðar".
Sérkenni þessarar nýjungar eru þau
að kremið gengur hraðar og dýpra
inn í húðina en áður hefur þekkst.
Success Lift dregur einfaldlega
I fram það fegursta í hörundi þínu
og gefur húð þinni fínlega og
a fallega áferð. Kemur í 30 ml bláu
p °§ gylltu pumpuglasi.
Guefuain
PABIS
Utsölustaðir: Snyrtistofan Guerlain, Óðinsgötu, Clara Kringlunni, Snyrtivöruverslunin
Glæsibæ, Glæsibæ, Oculus, Austurstræti, Andorra, Strandgötu Hafnarfirði, Stella Bankastræti,
Sandri, Smáratorgi, Apótek Keflavíkur, Amaro Akureyri, Farðinn Vestmannaeyjum
'.s.,
Iriand
Sérferð til Killarney
Við bjóðum einstaka helgarferö í haustsæluna á
írlandi til borgarinnar Killarney. Borgin er í Kerry-
héraði sem er eitt það fallegasta á írlandi, þar
sem fjöll, dalir og ásar skapa fornum minjum og
lifandi menningu ógleymanlega umgjörö.
í ferðinni er m.a. boðiö upp á spennandi
skoðunarferöir, skemmtilegar göngur og frábæra
golfvelli. Killarney er líflegur og fallegur bær sem
hefur aö bjóöa allt sem prýðir góðan
ferðamannabæ auk þess sem sönn trsk
kráarstemmning er þar engu lík.
kl. 9. a//a vlrka „
4Éí mk
Samvinnuferðir
Landsýn
Á verði fyrir þigl