Morgunblaðið - 09.10.1999, Side 74
Jt 74 LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
■*
*
*
Kajakróður og
fjallaklifur í Nepal
Einhvers staðar verða ævintýrin að byrja; félagarnir við
flúðir í Elliðaánum.
FJÓRIR ungir ævintýramenn eru
farnir út í heim þar sem þeir ætla
sigla á kajak niður straumþungar
ár, klífa himinhátt fj'all, fara í
safarí og skoða sig um á fjarlæg-
um slóðum. Þetta eru þeir Hilmar
Ingimundarson, Jón Heiðar
Andrésson, Óli Freyr Kristjáns-
son og Davíð H. Marinósson sem
eru á leið í fyrsta íslenska
straumkajakleiðangurinn, að eig-
in sögn, og áfangastaðirnir ger-
ast vart meira framandi; förinni
er heitið til Nepal.
Þeir ætla að sigla niður í það
minnsta sex ár sem margar hverj-
ar verða að teljast afar erfiðar
viðfangs; ein þeirra, Marsvangdi,
er metin á 5 til 5,5 erfiðleika-
gráður á skalanum 6 og tvær eru
metnar á 5 gráður. En hversu
lengi hafa þeir félagar stundað
þessa íþrótt? „Við höfum unnið
sem öryggiskajakræðarar í
Eystri-Jökulsá í Skagafirði í tvö
ár,“ segir Hilmar ábúðarfullur.
„Vissulega eru margar af þess-
um ám ansi strembnar en við
verðum með leiðangursstjóra frá
Nepal sem þekkir þær eins og
lófann á sér enda vann hann við
þær í sjö ár. Við erum því ekki að
taka neina áhættu og vitum alveg
hvað við erum að fara út. í.“ Óli
Freyr er áhugaljósmyndari og
mun sjá um að festa ævintýrið á
filmu.
Þeir ætla sér ekki cinungis að
sigla niður ár á kajak heldur
einnig ganga upp á Mt. Island
Peak sem er tæplega 6.200 metra
hátt ljall og í 5 km fjarlægð frá
Mt. Everest. Til þess að Ijár-
magna ferðina hafa þeir fengið
stuðning frá ýmsum fyrirtækjuin
og áætla að hún eigi eftir að
kosta hvern þeirra um 300 til 400
þúsund krónur.
„Við verðum með leiðsögu-
menn, burðarmenn og þurfum
einnig að fá okkur litinn gúmmí-
bát.“ Þessir ungu ofurhugar eru
allir 21 árs og liggja rætur þeirra
saman í barnaskóla. „Við erum
æskuvinir úr Garðaskóla í Garða-
bæ,“ segir Jón Heiðar. „Við höfð-
um sett stefnuna á að fara í
Alpana og á kajak í Wales, en þá
hittum við þennan Nepala sem
hafði verið í fjallamcnnsku í
mörg ár. Við það fengum við
ókeypis leiðsögumann og gátum
ómögulega sleppt þessu tæki-
færi.“
F R A Frankie og Johnny spurningaleikurinn j
N K 1 Hvaða leikkona er í hlutverki Frankie
E 0 G í leikritinu Frankie og Johnny?
■ a. Linda Ásgeirsdóttir
J 0 H 1 b. Edda Björgvinsdóttir
N N. Y | c. Halldóra Björnsdóttir
rs* Svar:
Svaraðu á mbl.is eða sendu fyrir 14. október, merkt:
©Nó „Morgunblaðið „Frankie og Johnny“, Kringlunni t, 103 Rvík“
Nafn:
laffiHBI Heimilisf.: Sími:
mbl.is Póstnr.: Staður:
A vit æv-
intýranna
Michael
Jackson
fráskilinn
MICHAEL Jackson og Debbie
Rowe Jackson eru skilin eftir þriggja
ára hjónaband, að því er talsmaður
þeirra greindi frá á fóstudag. Þau
eignuðust tvö böm meðan á hjóna-
bandinu stóð. Skilnaðarskjölin voru
undirrituð í Los Angeles á föstudag
og að sögn talsmanns þeirra var
þetta sameiginleg ákvörðun.
„Michael og Debbie verða áfram
vinir og biðja almenning um að virða
það við þau að vilja ekki tjá sig um
ástæður skilnaðarins," sagði hann.
Þau giftu sig í Sydney í Astralíu í
nóvember árið 1996. Þá hafði
Jackson skilið við einkadóttur Elvis
Presleys, Lisu Marie, eftir 20 mán-
aða hjónaband sem sameinaði tvö af
stærstu nöfnum rokksögunnar.
Efnt var til brúðkaups Michaels og
Rowe aðeins nokkrum klukkustund-
um eftir að söngvarinn, sem er 41
árs, lagði af stað um Ástralíu í tón-
leikaferðina „World History To-
ur“. Rowe var þá komin sex mánuði
á leið. Hún er hjúkrunarfræðingur
og annaðist Jackson þegar hann var í
meðferð vegna sjaldgæfs húðsjúk-
dóms. Böm þeirra heita Prince Mich-
ael jr og Paris Michael Katerine.
„ÞAÐ ER ekkert launungarmál að
„Deep Inside Paul Oscar“ er diskó-
plata,“ segir Páll Óskar sem er á
fullu þessa dagana þar sem hann er
sjálfur að gefa út plötuna.
„Eg er mjög ánægður með að
þetta skuli vera danspopp með að-
eins meira kjöt á beinunum en
tíðkast í samtímapoppi. Textarnir og
melódíurnar era safaríkari en geng-
ur og gerist í svona tónlist. Og það er
nákvæmlega þetta sem mig langar
að standa fyrir sem poppari. Þannig
að segja má að ég sé ballöðusöngvari
með danspopparakomplexa,“ segir
Palli og skellihlær. „Og hvað gerir
maður þá? Ballöðusöngvarinn með
barítónröddina er öðrum megin í
mér og dansfíflið sem vill alltaf
hreyfa sig hinum megin. Þannig að
ég og snillingarnir sem unnu þessa
plötu með mér; Jóhann í Lhooq,
Barði í Bang Gang, Herb Legowitz
„Gus Gus“ og Bjarki í NLO,
komumst að þeirri niðurstöðu að þá
er langbest að gera eins melodíska
balltónlist og frekast er unnt. Ég er
mjög ánægður með útkomuna og
mér fínnst ég loksins hafa tekist að
ramma inn lífsviðhorfið mitt í tónlist-
arumhverfí sem mér líður mjög
vel í.
Ilmvatn á matseðli
KLAUSTRID
ANNO M CM X C I X
Veitinga- og skemtistaðurinn Klaustrið
Klapparstíg 26 • Sími 552 6022
KriKaC
Í\A
Deep Inside Paul Oscar kynnt á Spotlight í kvöld
Dansfíflið og
ballöðusöngvar-
inn takast á
Palli er fullkomlega ánægður með fjórðu
sólóplötuna sína, þar sem hann tekur ofan
fyrir áhrifavöldum í lífí sínu. Hildur Lofts-
dóttir talar við hann um áhrifavaldana,
nafngiftina og sitthvað fleira.
Nafngift plötunnar er sko ekki
gripin úr lausu lofti. Og ég held að
það sé best að fólk líti á plötuna, rýni
í textana og lesi á milli línanna. Þá
fæst botn í þetta.“
Ekki fyrir sitjandi áheyrendur
Og fyrir þá sem hafa áhuga á að
kynna sér efni disksins þremur vik-
um áður en hann kemur út geta
mætt á Spotlight í kvöld þar sem
Palli verður með plötu-
kynningu.
„Mér fínnst tJa
vel við
hæfi
að frum-
flytja þetta efni
á eina „gay“ klúbbi
bæjarins sem er dans-
staður, því ég vil ekki
flytja þessa tónlist fyrir sitj- | j
andi áheyrendur. Það er ekki | |
við hæfi í þessu tilfelli. Ég vil að t í
fólk dansi og fríki aðeins út. Allir \ií
úr að ofan! Ég stíg á svið klukkan
eitt, og verð eins stundvís og ég get,
því mér fínnst dónalegt að láta fólk
bíða, sérstaklega ef húsið verður
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Palli býður alla hjartanlega
velkomna á Spotlight í kvöld.
orðið fullt. Ég keyri næstum alla
plötuna í gegn og leyfí fólki að finna
smjörþefinn af plötunni áður en hún
kemur út. Svo blanda ég inn í þetta
eldri lögum ... ef það er klappað nógu
mikið! Ha, ha.“
Full af fortíðartilvísunum
„Þegar við strákarnir vorum að
vinna plötuna köstuðum við boltan-
um svolítið á milli okkar. Kannski
kom ég með hugmynd, þess vegna
tvær línur af texta sem ég var að
bauka við. Svo settumst við niður og
fundum út hvernig lag þetta gæti
orðið. Stundum komu lögin í heiminn
svona bara af sjálfu sér, eins og fal-
legasta lagið á plötunni „No One To
Love“.
Þeir sem til þekkja fatta alveg að
platan hefur mjög mikið af tilvísun-
um í eldri tónlist. Það heyrast vel
áhrif frá Giorgio Morode, sem ég og
Jói í Lhooq alveg dýrkum og Donnu
Summer náttúralega sem vann með
honum. En líka í Kraftwerk, Human
League, Gazebo, Modern Talking,
Amanda Lear, Pet Shop Boys og líka
smá Dusty og Burt Bacharach þegar
kemur að melódíunum.
Ég vil meina að sú tónlist sem
maður elst upp við á sínu heimili í
barnæsku, sé tónlistin sem er í æða-
kerfinu á manni og þannig tek ég of-
an fyrir áhrifavöldum í lífí mínu.
Þessi tónlist er ég!
Og í tónlistinni á „Deep Inside
Paul Oscar“ er mjög mikið af mér,
en ég hefði ekki getað gert hana
hjálparlaust og er mjög heppinn að
vera umkringdur flottustu töffuran-
um í tölvupopps-
bransanum á ís:
landi í dag. í
fyrsta sinn á
ævinni er ég að
senda frá mér plötu
sem ég er alveg
fullkomlega sátt-
l ur við og fullviss um að ég
hefði ekki getað gert betur
- eða nokkuð sem ég hefði viljað
gera öðruvísi,“ segir Páll Óskar sem
kynnir hluta af sjálfum sér fyrir
gömlum og nýjum aðdáendum á
Spotlight í kvöld.