Morgunblaðið - 20.10.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 20.10.1999, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fimm veiðifélagar gerðu góða ferð til rjúpna Morgunblaðið/Kristján Nýtt mat á verðmæti Landssíma Islands hf. SAMGÖNGURÁÐHERRA kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær að hann hafí ákveðið að láta fara fram nýtt mat óháðra aðila á verðmæti Landssíma Islands hf. og á því verki að vera lokið á fyrri hluta næsta árs. Er þetta gert að tillögu starfshóps, sem fjallað hefur um álit samkeppnisráðs vegna GSM- þjónustu Landssímans, en starfs- hópurinn hefur nú skilað af sér skýrslu í þessum efnum. Ekki fullnægjandi mats- aðferðir samkvæmt EES I áliti samkeppnisráðs er komist að þeirri niðurstöðu að stofnefna- hagur Pósts og síma hf. hafi falið í sér ríkisstuðning sem nemi að minnsta kosti 10 milljörðum króna auk þess sem 1,5 milljarða kr. lækkun á langtímaskuld við Lífeyr- issjóð starfsmanna ríkisins teljist ólögmæt ríkisaðstoð. Starfshópurinn kemst að þeirri niðurstöðu að það mat sem fram fór á Póst- og símamálastofnun vegna yfirtöku Pósts og síma hf. á rekstrinum hafi byggst á matsað- ferðum sem ekki verði taldar full- nægjandi samkvæmt þeim kröfum sem leiði af ákvæðum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Af því verði hins vegar ekki dregin sú ályktun sjálfkrafa að um vanmat eigna Póst- og símamálastofnunar- innar hafi verið að ræða. Til að meta það þurfi að koma nýtt mat og án þess sé ekki unnt að fullyrða neitt um það hvort fastafjármunir og viðskiptavild Póst- og símamála- stofnunar hafi verið vanmetin mið- að við þær forsendur og áætlanir í rekstri fyrirtækisins sem fyrir lágu í lok ársins 1996, að því er fram kemur í minnisblaði samgönguráð- herra sem lagt var fram á ríkis- stjórnarfundinum. Lagt er til að nýtt mat óháðra aðila fari fram á eignum, skuld- bindingum og viðskiptavild Póst- og símamálastofnunar sem Póstur og sími hf. yfirtók 1. janúar 1997, sem auk matsins sem matsnefnd framkvæmdi byggist á útreikning- um á núvirtu tekjuflæði miðað við þær forsendur, áætlanir og upplýs- ingar í rekstri fyrirtækisins sem fyrir lágu í árslok 1996. Lækkun á langtímaskuld við LSR ekki ríkisaðstoð Þá segir að með hliðsjón af því að ekkert verði fullyrt um hvort Póstur og sími hf. hafi notið ríkis- aðstoðar við stofnun hlutafélagsins séu ekki efni til þess fyrir sam- gönguráðherra að verða við tilmæl- um um að fyritækið haldi að sér höndum. Fram kemur að í lækkun á lang- tímaskuld stofnunarinnar við Líf- eyrissjóð starfsmanna ríkisins hafi ekki talist ríkisaðstoð samkvæmt 61. gr. EES-samningsins. I Veiddu 400 rjúpur á fjórum dögum VEIÐIFÉLAGARNIR Kjartan Gunnarsson, Þorlaugur Gunnars- son, Jóhann Birgisson og Vigfús Þór Arnason úr Reykjavík og Þórður Kárason frá Akureyri komu til Akureyrar undir kvöld í gær, eftir fjögurra daga ijúpna- veiðiferð og komu þeir til byggða með samtals um 400 rjúpur. Þeir félagar voru við veiðar á Austur- landi en vildu í samtali við Morg- unblaðið ekki nefna nánar hvar þeir voru nákvæmlega í íjórð- ungnum. Fjölmargir veiðimenn voru á því svæði sem þeir félagar voru á fyrstu tvo dagana en mun færri þar sem þeir voru við veiðar í gær og fyrradag. Þeir félagar voru sammála um að þarna hafi verið mikið af rjúpu og sagðist Kjartan, sem hefur stundað ijúpnaveiði til fjölda ára, aldrei séð hafa annað eins af fugli. Litið var af snjó á veiðisvæðunum og var ijúpan mjög stygg. Akureyringurinn Þórður var aflahæstur þeirra félaga með 133 rjúpur eftir þessa fjóra daga og Kjartan skaut 92 fugla en allir fengu þeir félagar vel í jólamat- inn og rúmlega það. Kjartan hafði hundinn sinn Gassa með i för, sem hann sagði alveg ómissandi við veiðarnar. Veiðifélagarnir urðu góðfús- lega við því að stilla sér upp með feng sinn handan Akureyrar seinni partinn í gær. F.v. Þórður, Þorlaugur, Jóhann, Vigfús Þór, hundurinn Gassi og Kjartan. Mörg mál afgreidd á kirkjuþingi sem lýkur í Reykjavík í dag Þörf á þjónustu könnuð í öllum prestaköllum KIRKJUÞING hefur samþykkt tillögu um að kannað verði í öllum prestaköllum landsins hver sé þörfin á þjónustu kirkjunnar. I því skyni verði litið til þátta eins og fólksfjölda, aðstöðu sóknarinnar, félagslegra aðstæðna, vegalengda, fjallvega og annarra þátta er taldir eru hafa áhrif á þjónustu kirkjunn- ar. Tvær tillögur voru lagðar fyrir kirkjuráð um að móta skuli tillögur um þjónustu kirkjunnar. Önnur fjallaði um tillögur um skipan kirkjustarfs á höfuðborgarsvæðinu var sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson flutningsmaður hennar. Hin fjall- aði um könnun á þjónustuþörf í prestaköllum en hana fluttu Bjami Eir. Grímsson, sr. Hreinn Hjartar- son og Jóhann E. Bjömsson. Var efni tillagnanna sameinað í eina og biskupafundi falið að hrinda könn- uninni í framkvæmd. Breytingar á byggð á höfúðborgarsvæðinu í greinargerð með tillögu sr. Jakobs segir meðal annars að mikl- ar breytingar hafi orðið á byggð á höfuðborgarsvæðinu og flutningur fólks af landsbyggðinni hafi haft mikil áhrif á þróun sveitarfélag- anna. Kanna þurfi hvort önnur sóknarmörk en nú gildi komi ekki til greina og uppbygging nýrra starfsstöðva sé kostnaðarsöm og leggi þungar byrðar á sóknir. Þá segir að heppilegt kunni að vera að fjölga prófastsdæmum. „Þá er ljóst að prestar á höfuðborgarsvæðinu era mjög störfum hlaðnir. Því gæti verið kostur að ætla próföstum á höfuðborgarsvæðinu færri skyldur en öðrum próföstum en ætla þær forystumanni svæðisins. Á skrif- stofu hans mætti jafnframt koma fyrir þjónustu við sóknarnefndir svæðisins á sviði starfsmannahalds og ráðgjafar um rekstur sem þær kostuðu sjálfar," segir m.a. í grein- argerð Jakobs. I greinargerð þremenninganna segir einnig að ný hverfi á höfuð- borgarsvæðinu kalli á aukna þjón- ustu og að á landsbyggðinni hafi orðið fólksfækkun og samgöngur batnað. Því sé eðlilegt að láta meta sérstaklega hver sé þjónustuþörfin í hverju prestakalli. „Einungis á grandvelli slíks mats er hægt að taka ákvarðanir um hvernig best er að haga málum innan kirkjunn- ar varðandi skipan sókna og starfs- manna.“ Fjölmörg mál hafa verið til um- fjöllunar á kirkjuþingi og er stefnt að því að ljúka afgreiðslu þeirra síðdegis í dag og slíta þá kirkju- þingi. Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson í ræðustóli á kirkjuþingi í gær. Fremst situr Karl Sigurbjörnsson biskup. I Vinnulöggjöf brotin við uppbyggingn Kringlunnar Brotið uppgötvaðist of seint VINNUEFTIRLIT ríkisins varð þess áskynja í síðustu viku að verktakar við nýbyggingu og end- urbætur Kringlunnar bratu vinnulöggjöfina. Höfðu iðnverkamenn og starfsfólk verslana brot- ið gegn ellefu stunda hvíldarákvæði til að hægt væri að opna verslanir á tilsettum tíma. Vegna þess hve brotið uppgötvaðist seint sá Vinnueftir- litið ekki ástæðu til þess að kæra. Guðmundur Eiríksson, umdæmisstjóri í Reykjavík, segir að brot verktaka og verslunar- fólks í Kringlunni hafi uppgötvast of seint. „Það fór nú svona í hita leiksins að of seint var í rass- inn gripið. Öll vinnutímaákvæðin voru nú brotin þarna en þegar við áttuðum okkur á þessu var orðið of seint að grípa til ráðstafana.“ Að sögn Guðmundar voru það ekki eingöngu iðnaðarmenn og verkamenn sem ekki héldu þá reglu að hvíla sig ellefu stundir á sólarhring. „Þetta var ekki síður verslunarfólkið. Það var bara einblínt á tilsettan opnunardag og allt kapp lagt á að hann stæðist. Auðvitað hefði verið eðli- legast að opnunardegi hefði verið frestað en menn espuðu hver annan upp í þessu.“ Vinnueftirlitið á að skerast í leikinn þegar brot af þessu tagi uppgötvast og ef undanþágu- ákvæði eiga ekki við, eins þegar unnið er að björgun verðmæta. „Ef gert er út á þetta, ef það er reglan að mönnum er þrælað út, þá höfum við afskipti af því og kæram. En við uppgötvum þetta oft ekki fyrr en einhver kærir og þegar þetta vildi til í Kringlunni var bara komið fram á síðasta dag. Þess vegna var þetta nú ekki stopp- að,“ segir Guðmundur og bendir á að til standi í náinni framtíð að leggja harðar að aðilum, at- vinnuveitendum, verktökum og launafólki, að halda löggjöfina. Leitarhlé stendur yfír LEIT að lettneskum skip- verja, sem hvarf með ókunnum hætti af flutningaskipinu Mermaid Eagle í Straumsvík- urhöfn í síðustu viku, var hætt að kvöldi síðastliðins miðviku- dags. Ekki verður leitað meira fyrr en í fyrsta lagi eftir eina viku þegar fjörar verða gengn- ar við Álftanes og nágrenni. ítarleg leit kafara í höfninni bar ekki árangur og mun ekki verða leitað frekar þar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.