Morgunblaðið - 29.10.1999, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.10.1999, Blaðsíða 20
20 A'wr yqEVíTVn t'iK'? ff’ríMurrTTWí(& FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI „Jólabærinn Akureyri“ opnaður 20. nóvember UNDIRBÚNINGUR vegna verkefnisins „Jóla- bærinn Akureyri" stendur nú sem hæst, en það eru Miðbæjarsamtökin á Akureyri sem hafa umsjón með þessu verkefni í samstarfi við At- vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og fleiri. Ingþór Ásgeirsson formaður Miðbæjarsam- takanna sagði að jólabærinn yrði að þessu sinni á Ráðhústorgi og í göngugötunni í Hafnar- stræti. A síðasta ári var jólaþorpi undir nafninu Norðui-póllinn komið fyrir á flötinni neðan við Samkomuhúsið. „Við ákváðum að hafa þetta í miðbænum núna og reyna að lífga þannig upp á,“ sagði Ingþór. Markaðsstemmning Nú er unnið að því að hanna sérstaka sölu- bása sem komið verður fyrir á Ráðhústorgi og upp eftir göngugötu, en þar getur fólk fengið inni til að bjóða upp á varning af ýmsu tagi, handverk, hannyrðir og hvaðeina. Sölubásarnir verða skreyttir með viðeigandi hætti og þannig reynt að skapa sem skemmtilegasta markaðs- stemmningu. Þá verður í tengslum við verkefnið boðið upp á skemmtidagskrá, söng og glens auk þess sem jólasveinar verða á ferli svo sem vera ber á þessum árstíma. Leitað hefur verið eftir sam- starfi við félaga í skátunum og hafa þeir tekið vel í að vera með. Þannig mun svæði jólabæjar- ins teygja sig upp í Skátagil og ef veður leyfir verður útbúin þar upp braut fyrir snjóbretta- iðkendur og leiktæki að hætti skáta sett þar upp. Ingþór sagði að menn hefðu lært af reynslu síðasta árs og reynt yrði að bæta úr því sem þá fór aflaga. Allt það sem vel tókst til með verður í boði nú, eins og jólapakkasöfnun, kórsöngur barna og fleira. „Við viljum halda þessu verkefni áfram, að bjóða upp á skemmtilega jólastemmningu á Akureyri, en umfangið verður minna nú en var í fyrra. Við byrjum í smærri stíl en vonandi mun þetta vaxa og dafna í áranna rás,“ sagði Ingþór. Jólabærinn Akureyri verður formlega opnað- ur 20. nóvember næstkomandi, en þá má gera ráð fyrir að búið verði að færa miðbæinn í jóla- búning. Um það, sem og samræmdan af- greiðslutíma verslana, verður rætt á fundi Kaupmannafélags Akureyrar í næstu viku. Þrennir tónleikar kammerkórs KAMMERKÓR Norðurlands heldur þrenna tónleika á Norðurlandi um komandi helgi. Fyrstu tónleikarnir verða í Snart- arstaðakirkju við Kópasker laugar- j daginn 30. október kl. 13.30. Um j kvöldið verða tónleikar í Dalvíkur- j kirkju og hefjast þeir kl. 20.30 og þeir síðustu verða í Hvammstanga- kirkju á sunnudag kl. 15. Stjórnendur eru Sigurbjörg Krist- ínardóttir og Björn Leifsson en und- irleik á orgel annast Hlín Torfadóttir. Efnisskráin ber yfirskriftina Heili þér María og samanstendur af Mar- íuversum eftir erlenda og innlenda höfunda frá ýmsum tímum, ásamt fleiri sönglögum sem flest má tengja lofgjörð til Maríu meyjar. Kammerkór Norðurlands var stofnaður á haustdögum árið 1998 og er söngfólkið af Norðurlandi, frá Húnaþingi til Norður-Þingeyjarsýslu. ► Morgunblaðið/Kristj án Biðröð við Bókval Reglustrika og sími í kaupbæti FJÖLDI fólks stóð í biðröð við verslunina Bókval á Akureyri þegar opnað var í gærmorgun, en ástæða þess að svo margir létu sig hafa það að bíða var til- boð verslunarinnar; ef keypt var reglustrika af ákveðinni lengd fylgdi GSM-sími með í kaupun- um og var verðið 16 krónur. Ingþór Ásgeirsson, verslunar- stjóri í Bókval, sagði að alls SKIPAPLOTUR - INNRETTINGAR JL plötur í lestar B \ servant plötur I B I I I SALERNISHÓLF LMXJLJI baðþiljur ELDSHÚSBORÐPLÖTUR Á LAGER-N0RSK HÁGÆÐAVARA PP &co Þ.ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 S: SS3 8640 & S68 6100 hefðu 100 símar verið í boði og þeir farið á örskammri stund. Hann sagði að tvær stúlkur hefðu komið fyrstar í biðröðina og mættu þær um miðnættið. Þær gátu hallað sér í bíl sem þær höfðu til umráða þar til fólk fór að streyma að um fjögurleyt- ið um nóttina og fram eftir morgni. Hann sagði að fólk á öll- um aldri hefði verið í röðinni, allt frá unglingum og upp í sjö- tugt. „Það sem kom mér mest á óvart var hve rólegt og afslapp- að fólkið var. Ég var búinn að gera ráðstafanir, var með fjóra menn til taks til að hafa hemil á fólkinu, en það kom aldrei til þess að þeir tækju til starfa, fólk var afskaplega kurteist," sagði Ingþór. Þó nokkrir þurftu frá að hverfa án þess að fá síma með reglustrikunni, eða um 50 manns. Fundur um framtíðarskipulag ferðamála á Norðurlandi Ferðamálasamtökin á Norðurlandi efna til stórfundar á Hótel KEA laugardaginn 30. oktober nk. kl. 14. Fundurinn er öllum opinn Gestir fundarins verða: Tómas Ingi Olrich, formaður ferðamálaráðs Pétur Rafnsson, F.S.I. Erna Hauksdóttir, S.A.F. Sigrún Jakobsdóttir Ferðamálasamtök Norðurlands eystra og Norðurlands vestra Háskólinn á Akureyri og sveitarfélög við utanverðan Eyjafjörð Samningur um sérfræðiþj ónustu ^Morgunblaðið/Halldór Ingi Ásgeirsson Ásgeir Logi Ásgeirsson, bæjarstjóri í Ólafsfirði, Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, og Pétur Bolli Jóhannesson, sveitar- stjóri í Hrísey, undirrita samninginn. SKRIFAÐ hefur verið undir sam- starfssamning milli Háskólans á Akureyri og þriggja sveitarfélaga við utanverðan Eyjafjörð, Olafs- fjarðar, Dalvíkurbyggðar og Hrís- eyjar. I samningnum felst að há- skólinn tekur að sér að tryggja leik- og grunnskólunum sveitarfélaganna aðgengi að sérfræðiþjónustu á sviði kennslu- og þjónustustarfa um leið og skólamir tryggja stúdentum við kennaradeild aðgengi að vettvangs- námi. Háskólinn á Akureyri hefur falið Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri, RHA, að sjá um fram- kvæmd samningsins og hefur Bene- dikt Sigurðarson, sérfræðingur á skólaþróunarsviði RHA, verið ráð- inn verkefnastjóri. Samningurinn er til þriggja ára en framlengist sjálf- krafa um eitt ár í senn sé honum ekki sagt upp. Vildum taka við þessum verkefnum sjálf Rögnvaldur S. Friðbjömsson, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, sagði að eftir að Skólaþjónusta Eyþings hefði verið lögð niður hefðu um- rædd sveitarfélög ákveðið að standa saman um að veita þessa þjónustu og ráðið Benedikt til að starfa með verkefnahóp á vegum sveitarfélag- anna. „Niðurstaðan var sú að við vildum taka við þessum verkefnum KYNNING á verkum Rósu Krist- ínar Júlíusdóttur verður opnuð í Samlaginu, listhúsi, á laugardag, 30. október. Rósa Kristín útskrifaðist frá listaakademíunni í Bologna á Italíu árið 1972, úr málunardeild. Hin síð- ari ár hefur hún fundið listsköpun sinni farveg í textíl án þess þó að skilja alfarið við málaralistina, en verk hennar eru „máluð vattteppi". sjálf. Þessi samningur er fyrst og fremst gerður til að tryggja aðgang að þeirri þjónustu sem við teljum okkur þurfa á að halda. Við munum leysa einhver verkefni með því starfsfólki sem við höfum á að skipa hér í sveitarfélögunum, aðra þjón- ustu fáum við hjá starfsfólki rann- sóknarstofnunarinnar og þá munum við kaupa eitthvað af þjónustu að, t.d. sálfræði- og talmeinaþjónustu, en sem betur fer er nægt framboð á slíkri þjónustu á Eyjafjarðarsvæð- inu,“ sagði Rögnvaldur. Fyrstu teppin gerði hún fyrir börnin sín, litla frænkur og frændur og vini. Þetta voru teppi til að breiða yfir sig og kúra undir. Rósa leitar gjai’nan að innblæstri úti í náttúrunni, skoðar allar ábreiðum- ar sem móðir náttúra breiðir yfir bamið sitt, jörðina. Samlagið er opið frá kl. 14 til 18 alla daga nema mánudaga, þá er lokað. Kirkjustarf LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkjuskóli í Svalbarðskirkju á morgun, laugardag, kl. 11. Fermingarfræðsla í kirkjunni kl. 11 á sunnudag, 31. október. Guðsþjónusta á sunnudag kl. 14. Minnst verður látinna og geta kirkjugestir kveikt á kert- um í minningu látinna vina. Kirkjuskóli verður í Grenivík- urkirkju á morgun, laugardag kl. 13.30. Kyrrðar- og bæna- stund kl. 21 á sunnudagskvöld. Guðsþjónusta í Grenilundi á sunnudag kl. 16. Minnst lát- inna. MÖÐRUVALLAPRESTA- KALL: Barna- og fjöl- skylduguðsþjónusta verður í Möðruvallakirkju næsta sunnu- dag, 31. október og hefst hún kl. 11. Fermingarbörn aðstoða. Stuttur fundur um barnastarfið á eftii’. Þeii- sem hafa áhuga á að vera með í barnastarfi í vet- ur eru hvattir til að mæta. Rósa Kristín í Samlaginu Til leigu verslunar-/skrifstofuhásnæði á besta stað í miðbæ Akureyrar. Upplýsingar í símum 896 4393 og 898 9802
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.