Morgunblaðið - 29.10.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.10.1999, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Maskhadov biður páfa um liðveislu SÞ huga að mann- úðarhjálp í Tsjetsjníu New York, Grosní. AFP, AP, Reuters. ÁKVEÐIÐ hefur verið að senda á næstunni nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna til Tsjetsjníu til að sinna þar mannúðarmálum, að sögn tals- manns samtakanna í gær. Hann vitnaði einnig í yfirlýsingu Kofis Annans, framkvæmdastjóra SÞ, sem hvatti jafnt Rússa sem Tsjetsjena til að sýna stillingu og leggja sig fram um að koma í veg fýrir mannfall í röðum óbreyttra borgara. Nær 190 þúsund manns hafa að sögn Rússa flúið frá Tsjetsjníu eftir að átökin hófust 1. október, flestir til grannhéraðsins Ingúshetíu. Aðstæð- ur flóttafólksins eru bágbornar og er óttast að þær eigi enn eftir að versna þegar vetur gengur í garð á þessum slóðum. Fulltrúar rússneskra hernaðaryf- irvalda hafa látið frá sér fara mót- sagnakenndar yfirlýsingar um fyrir- ætlanir Moskvustjórnarinnar varð- andi höfuðstað Tsjetsjníu, Grosní. Hershöfðingjar hafa þó sagt að ætl- unin sé að Ijúka því að umkringja borgina í byrjun nóvember og þegar sé búið að ioka um 80% allra undan- komuleiða frá henni. Rússar hafa nú um helming upp- reisnarhéraðsins á valdi sínu. ígor Sergejev varnarmálaráðherra sagði í sjónvarpsviðtali, sem tekið var í bækistöð Rússa í Mozdok í Suður- Ossetíu í gær, að hermenn hans myndu aldrei hverfa aftur frá hérað- inu eins og þeir gerðu 1997. Hersveitir Rússa eru komnar inn í útjaðar Grosní og stöðugt eru gerðar á hana sprengjuárásir auk þess sem beitt er flugskeytum. Rússar segjast heyja styrjöldina til að binda enda á starfsemi hryðjuverkamanna sem talið er að hafi verið að verki í til- ræðum sem kostuðu nær 300 manns lífið, m.a. í Moskvu í sumar. „Her Tsjetsjena mun verja Grosní og aldrei gefast upp,“ hafði Interfax- fréttastofan í gær eftir Aslan Mask- hadov, forseta Tsjetsjníu. Hann hef- ur ritað Jóhannesi Páli páfa bréf og beðið hann að fá Rússa til að hætta hernaðinum. Glæsileg hreinlætistæki Ifö Cera. Innbyggt frárennsli auðveldar þrif. Tvívirkur skolhnappur, hægt er að velja um 3ja eða 6 lítra skol. Ifö - Sænsk gæðavara T€nci Smiðjuvegí 11 • 200 Kópavogur Sími: 564 1088 • Fax= 564 1089 Fást í byggíngavöruverslunum um land allt Reuters Mohammad Khatami, forseti Irans, virðir fyrir sér útsýnið frá Pantheon-hofinu í París í gær, í fylgd umsjón- armanns hofsins, Bernard Joannot, og menningarráðherra Irans, Mostafa Moin. Enginn frið- ur með friðarverð- launahöfum Jóhannesarborg. AP. ÞÓTT þeir hafi unnið til ein- hverra eftirsóttustu verðlauna, sem um getur, friðarverðlauna Nóbels, þá eru þeir Desmond Tutu, erkibiskup í Suður-Af- riku, og F.W. de Klerk, fyrr- verandi forseti landsins, komn- ir í hár saman og spara ekki stóru orðin hver um annan. í bók, sem Tutu hefur gefið út, kallar kann Kterk „lítil- menni“ og Klerk svaraði fyrir sig í fyrradag og sagði, að Tutu væri „blindaður af eigin þröng- sýni“. Veltir hann því einnig fyrir sér hvaða áhrif þessi deila hafi á sambúð hvítra manna og svartra í landinu en svo virðist sem æ fleiri S-Afríkumenn vilji reyna að gleyma fortíðinni og takast heldur á við framtíðina. Khatami líkir hnattvæðingu við nvja nvlendustefnu París. AFP, AP, Reuters. MOHAMMAD Khatami, forseti írans, sagði í ræðu í Pantheon-hofinu í París í gær að aukin hnattvæðing væri ef til vill einungis ný útgáfa af nýlendustefnu Vesturianda. Aflýsa þurfti fyrir- huguðum ræðuhöldum forsetans í höfuðstöðvum Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) þar sem ekki þótti sýnt að unnt væri að tryggja öryggi hans. Khatami átti á öðrum degi heimsóknar sinnar morgunverðarfund með 40 helstu viðskiptajöfr- um Frakklands. í Pantheon-hofinu, þar sem flest mikilmenni Frakka frá lýðveldistímanum liggja grafnir, lagði forsetinn blóm að leiðum vísindamannanna Pierre og Marie Curie, rithöf- undarins Emile Zola og fleiri merkra manna. í ræðu sinni sagði hann að íslamska byltingin í ír- an „væri komin á gelgjuskeiðið" og hvatti til þess að sameiginlegur arfur ólíkra menningar- heima yrði viðurkenndur. „Hin nýja heimsskip- an og hnattvæðing, sem ákveðin stórveldi reyna að fá okkur til að fallast á í dag ... minna helst á einhvers konar endurborna nýlendustefnu," sagði Khatami og var greinilega að vísa til Bandaríkjanna. Andófsmaður fær 13 ára fangelsi Heimsókn Khatamis varð tilefni undirritunar tveggja stórra viðskiptasamninga milli Frakka og Irana. Tilkynnt var í gær að Iranar hyggðust kaupa fjórar Airbus-flugvélar að verðmæti 14 milljarða ki-óna, og á miðvikudag var skýrt frá því að franska fyrirtækið Alstom myndi selja Irönum dísel- og rafknúnar lestar fyrir jafnvirði 33,6 milljarða króna. Byltingardómstóll Irans hefur dæmt helsta forsprakka mótmælanna, sem fram fóru í Iran í júlí, í 13 ára fangelsi, að því er íranska dagblaðið Quods skýrði frá í gær. Dómurinn yfir hinum 35 ára gamla Manuchehr Mohammadi þykir til marks um að írönsk stjómvöld vilji bæta ímynd sína í augum alheimsins, einkum á meðan á heim- sókn Khatamis í Frakklandi stendur, en bylting- ardómstóllinn hafði gefið til kynna í september að fjórir menn hefðu verið dæmdir til dauða fyrir aðild að mótmælunum. Kappræður A1 Gores og Bill Bradleys Monicu-mál Clintons rædd Hanovcr. AP. FÁTT kom á óvart í fyrsta einvígi þeirra A1 Gores, varaforseta Banda- ríkjanna, og Bill Bradleys, fyrrver- andi öldungadeildarþingmanns, en þeir keppa eftir að verða frambjóð- andi demókrata í forsetakosningun- um á næsta ári. Skiptust þeir kurt- eislega á skoðunum en það, sem vakti einna mesta athygli, voru um- mæli Gores um Bill Clinton forseta og samband hans við Monicu Lewinsky. Gore var spurður um álit hans á framferði Clintons og hann kvaðst skilja það vel, að fólki hefði mislíkað það. „Mér var líka þannig innan- brjósts en ég veit, að almenningur í þessu vill horfa fram á veginn en ekki aftur. Clinton er vinur minn,“ sagði Gore. Báðir hrósa sigri Aðstoðarmenn Gores sögðu, að hann hefði sigrað með afgerandi hætti í einvíginu en ráðgjafar Brad- leys voru jafn vissir um, að hann hefði borið hærri hlut. Gore tókst þó að pína Bradley dálítið með gagnrýni á þá ákvörðun hans að hætta þingmennsku 1996 eftir að repúblikanar voru komnir í meiri- hluta á þinginu. Umræðuefnin í einvíginu voru meðal annars hugsanlegar breyt- ingar á fjármögnunaraðferðum frambjóðenda og ekki síst heilbrigð- ismálin. Bradley vill koma á alls- herjarsjúkratryggingakerfi en Gore hélt því fram, að sú áætlun væri allt of dýr, kostaði meira en allur áætl- Reuters Bradley svarar spurningum áheyrenda áður en kappræð- urnar hófust. aður fjárlagaafgangur næstu tíu ár- in. Báðir frambjóðendur voru hins vegar sammála um, að breyta yrði lögum til að draga úr vægi pening- anna í kosningabaráttunni. Stundum var slegið á létta strengi og Gore var spurður að því hver væru hans mestu mistök sem stjómmálamanns. Sagði hann, að þau væru sú yfirlýsing hans, að hann væri í raun faðir alnetsins. „Eg skammast mín dálítið fyrir hana,“ sagði Gore, sem kvaðst þó hreykinn af því að hafa útvegað al- ríkisfé fyrir fyrirrennara netsins. Kínversk stjórnvöld herða róðurinn gegn Falun Gong-söfnuðinum Sagður ógna stöðugleika Pekmg. Ap, Afp, Reuter. KÍNVERSK lögregla handtók að minnsta kosti 20 meðlimi sértrúar- safnaðarins Falun Gong á Torgi hins himneska friðar í Peking í gær. Lögreglan leitaði einnig meðlima víðsvegar um borgina, á gistihúsum og einkaheimilum. Undanfama daga hafa þúsundir félaga í Falun Gong streymt til höfuðborgarinnar frá ýmsum hémðum Kína í þeim til- gangi að mótmæla banni stjórn- valda við starfsemi safnaðarins og ofsóknum á hendur meðlimum hans. Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að herða róðurinn í baráttunni gegn Falun Gong. Meðal annars ræða þingmenn á þinginu í Peking nú um að setja lög sem þyngi refsingar meðlima sértrúarsöfnuða. Sértrúar- söfnuðir era bannaðir með lögum og eiga meðlimir þeirra á hættu að verða handteknir og dæmdir til margra ára fangelsisvistar. Dagblað kínverska kommúnista- flokksins í Peking, Dagblað alþýð- unnar, réðst í gær harkalega að Fa- lun Gong. „Flokkurinn og ríkis- stjórnin munu ekki sýna lærisvein- um djöfulsins neina miskunn vegna þess að hvers konar undanlátssemi við söfnuðinn mun skerða mann- réttindi annarra þegna landsins," sagði í blaðinu. I sama streng tók talsmaður kínverska utanríkisráðu- neytisins, Zhang Qiyue. „Engin ábyrg ríkisstjóm friðmælist við sér- trúarsöfnuð. Að sýna slíkum hópi vægð og umburðarlyndi er að troða á mannréttindum þegnanna. Engin ábyrg ríkisstjóm getur heldur leyft sértrúarsöfnuði að stefna lífi og ör- yggi þegnanna í hættu, né ógna stöðugleika og reglu í samfélaginu," er haft eftir talsmanninum. Segja 10 hafa látist í varðhaldi Meðlimir Falun Gong héldu í gær leynilegan fund með erlendum fréttamönnum í Peking. Þar lýstu þeir illri meðferð lögreglu á safnað- armeðlimum, pyntingum og bar- smíðum, sem hafi orðið 10 þeirra að bana. Félagar í söfnuðinum báðu Sameinuðu þjóðimar, ríki heims og frjáls félagasamtök um víða veröld að leggja sér lið gegn ofsóknum kín- verskra stjómvalda. Falun Gong byggist á blöndu hefðbundinna kínverskra trúar- bragða og búddisma og taoisma. Andlegur leiðtogi safnaðarins, Li Hongzhi, er eftirlýstur í Kína en býr í Bandaríkjunum. Hann hefur predikað heimsafneitun og boðar fylgjendum sínum að snúa baki við vísindum og tækni og því sem hann álítur úrkynjaða fjöldamenningu Vesturlanda. Talið er að 100 milljónir manna um heim allan tilheyri söfnuðinum en stjómvöld í Kína segja að með- limir þar í landi séu um 2 milljónir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.