Morgunblaðið - 12.12.1999, Page 19

Morgunblaðið - 12.12.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1999 B 19 Þvörusleikir kemur í heimsókn í Ráðhúsið á miðvikudaginn. Jólasveinarnir 13 í nýjum bún- ingum í Ráðhúsi Reykjavíkur ISLENSKU jólasveinarnir 13 munu leggja leið sína í ráðhús Reykjavík- ur síðustu 13 dagana fyrir jól og heilsa þar upp á börn og fullorðna. Það eru Þjóðminjasafn íslands og Möguleikhúsið sem hafa milligöngu um heimsóknir sveinanna. í ár koma þeir í nýjum búningum sem íslenskt handverksfólk hefur saumað og prjónað handa þeim undir forystu og fyrirsögn Bryndís- ar Gunnarsdóttur kennara. Islandspósti rann, eins og fleir- um, til rifja hve sveinarnir voru tötralegir og styrkti hann gerð hinna nýju búninga. Islandspóstur sýnir líka ný jólasveinafrímerki í ráðhúsinu á sama tíma. Að venju kemur Stekkjarstaur fyrstur sunnudaginn 12. desember. Grýla og Leppalúði hafa Iika fengið ný föt og munu líta inn í ráðhúsinu á sunnudag. Jólasveinarnir koma síðan einn af öðrum sem hér segir: Mánudag- inn 13. desember Giljagaur, þriðju- daginn 14. desember Stúfur, mið- vikudaginn 15. desember Þvörusleikir, fimmtudaginn 16. desember Pottasleikir, föstudaginn 17. desember Askasleikir, laugar- daginn 18. desember Hurðaskellir, sunnudaginn 19. desember Skyr- gámur, mánudaginn 20. desember Bjúgnakrækir, þriðjudaginn 21. desember Gluggagægir, miðviku- daginn 22. desember Gáttaþefur, fimmtudaginn 23. desember Ket- ki'ókur, föstudaginn 24. desember Kertasníkir. Jólasveinarnir koma kl. 14 nema Kertasníkir sem kemur kl. 11 á að- fangadag. Bókin MIKILVÆGUSTU TUNGUMÁL JARÐAR svarar: Mun íslenskan deyja út? www.tunga.is Bókin MIKILVÆGUSTU TUNGUMÁL JARÐAR svarar: Hver eru mikilvægustu tungumál heims? www.tunga.is Veltukort SPRON léttir þér jólahaldið og nýja árið á einfaldan hátt. Þú ræður ferðinni. Hver mánaðarmót berþér aðeins að greiða 5% af úttektarstöðu. Kynntu þér máliö i næsta útibúi SPRON Opið í Smáranum á sunnudag frá kl. 12 til 18. Sími: 550 1720 SPARISJÓÐUR REYKJAVlKUR 0E NAGRENNIS PUISAR ORIENT Úr op klukkur við allra hæfi o ÚR&GULL GRÉTAR HELGASON ÚRSMIÐUR •R 565 4666 glaesilegt úrval FjÖRÐUR - miðbœ Hqfharjjarðar Jóiasveinar spila í dag kl 16-17:30 Sill ia> maylce up> sfu4io Slml 555-1380

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.