Morgunblaðið - 19.12.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999 25
Vaka gagnrýnir þjón-
ustusamning Háskól-
ans og Stúdentaráðs
Sex sátu
hjá og þrír
samþykktu
VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúd-
enta, vill í tilefni af samþykkt þjón-
ustusamninga Stúdentaráðs (SHÍ)
og Háskólans vekja athygli á að
samninginn hafi aðeins þrír af tíu há-
skólafulltrúum samþykkt. Sex hafi
setið hjá og einn greitt atkvæði á
móti.
í fréttatilkynningu Vöku segir:
„Samningur milli HI og SHÍ er gerð;
ur í þrennu lagi að þessu sinni. I
fyrsta lagi er um að ræða samning
um rekstur hinna ýmsu miðlana, eins
og húsnæðismiðlunar; í öðru lagi er
um að ræða samning um þjónustu
við erlenda stúdenta og deildarfélög;
í þriðja lagi er um að ræða samning
um rekstur réttindaskiifstofu. í hin-
um tveimur fyrrnefndu samningum
er ekki um hagsmunaárekstra að
ræða og er Vaka fylgjandi gerð
þeirra.
Réttindaskrifstofan hefur það
hlutverk að gæta hagsmuna stúd-
enta gagnvart háskólayfirvöldum.
Með gerð samnings þess er sam-
þykktur var af háskólaráði í dag er
SHÍ gert ábyrgt gagnvart háskóla-
yfirvöldum um réttindabaráttu stúd-
enta. Þetta er ekki ósvipað því og ef
Félag stórkaupmanna færi með yfir-
stjóm Neytendasamtakanna."
í bókun Vöku við undirritun
samningsins segir að félagið líti svo á
að SHI fórni sjálfstæði sínu með
samþykkt samningsins. Stúdentaráð
verði þar með hluti af stjórnsýslu HÍ
og glati við það trúverðugleik sínum
sem óháður hagsmunagæsluaðili
íyrir stúdenta.
SHÍ sé nú algjörlega háð háskóla-
yfirvöldum um fjánnagn en á engan
hátt stúdentum og því sé hætt við að
hagsmunabarátta stúdenta verði
máttlausari. Ný lög um fjárreiður
ríkisins veiti HÍ lagalegan rétt til
beinnar íhlutunar í einstaka mál
stúdenta, sem rekin séu af réttinda-
skrifstofunni. Auk þess hafi Háskól-
inn lagalega skyldu til þess að fylgj-
ast með öllum rekstri skrifstofunnar
og rétt til beinnar íhlutunar um
hvernig skipulagi og starfsemi rétt-
indaskrifstofu stúdenta sé háttað.
♦ ♦♦
Vesturgata 7,
innkeyrsla frá Vesturgötu um Mjóstræti.
106 stæði.
Kolaportið,
við Mkofnsveg veslan við Seðlabankann.
174 stæði.
Ráðhús Reykjavíkur,
innkeyrsla í kjallara frá Tjamargötu.
130 stæði.
Traðarkot,
Hverflsgötu 20, gegnt Þjóðleikhúsinu.
271 stæði.
Bergstaðir,
á homi Bergstaðastrætis
og Skólavörðustígs. 154stæði.
111»!»!!!^^
....
Vitatorg,
bílahús með innkeyrslu frá Vitastíg
og Skúlagöta. 223 stæði.
; - - -,
1 ] 1
1 r ] i [ 1 rlu
—fMSsSsfcáí
~~
\
0D
Landsbank-
inn og Is-
landspóstur
í samstarf
LANDSBANKINN og íslandspóst-
ur hafa hafið samstarf í Sandgerði.
Samstarfið gengur út á samnýtingu
afgreisluhúsnæðis. Húsnæði
íslandspósts á Suðurgötu 2-4 hefur
verið endurbætt til að rúma starf-
semi beggja fyrirtækja.
„Þegai- fram líða stundir og lög
heimila mun Landsbankinn taka yfir
starfsemi íslandspósts á staðnum
sem verktaki. Með þessu hefur starf-
semi beggja fyrirtækja verið tryggð
á staðnum.
Samstarf Landsbankans og
íslandspósts verður með þeim hætti
að öll almenn bankaþjónusta og
póstþjónusta verða á einum og sama
stað. Landsbankinn og íslandspóst-
ur vilja leggja áherslu á að engin
skerðing verði á þjónustu til við-
skiptavina Landsbankans og ís-
landspósts.
í tilefni opnunarinnar gáfu
Landsbankinn og Islandspóstur
æskulýðsmiðstöðinni Skýjaborg
veglega ELITE 408 hátalara að
verðmæti 130.000 kr. Hátalararnir
munu koma í góðar þarfir en á und-
anförnum árum hefur starfsemi
æskulýðsmiðstöðvarinnar aukist
jafnt og þétt. Forstöðumaður æsk-
ulýðsmiðstöðvarinnar veitti hátölur-
unum viðtöku," segir í fréttatilkynn-
Framboðið af bílastæðum í miðborginni er mikið. Valkostimir eru
stöðumælar, sérstök miðastæði og sex glæsileg bílahús.
# Bílahúsin eru þægilegur kostur.
Þú ekur beint inn í vistlegt hús,
sinnir þínum erindum og gengur
að bílnum á vísum, þurrum stað.
í bílahúsinu rennur tíminn ekki út
og þú borgar aðeins fyrir þann
tíma sem þú notar.
# Stöðumælar eru skamm-
tímastæði með leyfilegum
hámarkstíma frá 15 mm.
upp í 2 klst.
# Miðastæðin eru víða og
góður kosmr. Þú borgar fyrir
þann tíma sem þú ætlar að
nota; korter, hálftíma,
klukkustund eða lengri tíma.
Mundu eftir miðastæðunum.
Bílastæðasjóður
Hönnun: Gfsti B & SKÓP