Morgunblaðið - 07.01.2000, Side 68

Morgunblaðið - 07.01.2000, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLANl, 103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. t. -v Skógafoss í vetrarbúningi Morgunblaðið/RAX Útlit fyrir að kvdtalaus skip haldi til veiða Fiskistofa mun kæra veiðar án kvdta FISKISTOFUSTJÓRI, Pórð- ur Ásgeirsson, segii- að Fiski- stofa muni áfram vinna eftir gildandi lögum um stjórn físk- veiða og ákæra þá sem haldi til veiða án þess að á skipunum séu fullnægjandi aflaheimildir. Útlit er fyrir að fjöldi skipa án kvóta haldi nú til veiða eftir að Héraðsdómur Vestfjarða sýknaði útgerð Vatneyrar BA fyrir veiðar án aflaheimilda. Þórður segir Fiskistofu ekki eiga erfitt með að fylgjast með skipunum, jafnvel þótt þau yrðu mjög mörg. Hann á von á því að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar og þangað til Hæstiréttur hafi úrskurðað í málinu séu núgildandi lög í gildi og eftir þeim verði unnið. ■ Ætla sér/22 SKÓGAFOSS í Austur-Eyjafjalla- hreppi er ekki síður vígalegur á veturna en sumrin. Fossinn, sem steypist um 60 metra niður, er ekki árennilegur umkringdur klaka- brynju og grýlukertum og víst að ekki munu margir reyna að ná gullkistu Þrasa við þessar aðstæð- ur, en samkvæmt þjóðsögunni er hún grafin undir fossinum. Rannsókn á aðgengi fslendinga að heilbrigðisþjónustu Vannýta læknisþjón- ustu í veikindum Heiðar Helguson seldur til Watford ~ Hefur 400 faldast í verði á tveimur árum NORSKA knattspyrnulið- ið Lilleström samþykkti í gærkvöld tilboð enska úrvalsdeildarliðsins Wat- ford að upphæð 180 millj- ónir íslenskra króna fyrir íslenska framherjann Heiðar Helguson. Heiðar var seldur frá Þrótti í Reykjavík til Lille- ström í janúar 1998 fyrir ^óO þúsund krónur. Hann ' nefur því fjögurhundruð- faldast í verði á þessum tveimur ár- um. Heiðar, sem er 22 ára, gerði sext- án mörk í norsku úrvalsdeildinni á síðasta keppnistímabili og var markahæsti leikmaður Lilleström. Hann lék einn- ig í fyrsta sinn með landsl- iði Islands á síðasta ári. Heiðar er annar íslenski leikmaðurinn, sem enskt úrvalsdeildarlið kaupir á yfirstandandi keppnistíma- bili. Hinn er félagi hans hjá íslenska landsliðinu, varn- armaðurinn Hermann Hreiðarsson, sem Wimble- don keypti frá Brentford í 3. deild á Englandi í haust fyrii- rúmar þrjú hundruð milljónir króna. ■ Lilleström/C4 Heiðar Helguson ÍSLENDINGAR nota læknisþjón- ustu of lítið í veikindum sínum sé miðað við áætlaða þjónustuþörf skv. erlendum stöðlum. Eru læknaheim- sóknir Islendinga í veikindum í heildina 45% færri en erlendir sér- fræðingar ráðleggja. Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum nýrrar rannsóknar á aðgengi að heil- brigðisþjónustu á Islandi sem kynnt var í híbýlum landlæknisembættis- insígær. I niðurstöðum rannsóknarinnar kemur ennfremur fram að verulegur munur sé á aðgengi einstakra hópa að heilbrigðisþjónustu á Islandi og að töluvert vanti upp á að því markmiði stjómvalda sé náð að öll- um íslendingum sé gefinn kostur á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem kostur er á. Rannsóknin er unnin upp úr gögn- um sem fengust í umfangsmikilli spurningakönnun haustið 1998 en það eru þeir Rúnar Vilhjálmsson prófessor, Ólafur Ólafsson, fyrrver- andi landlæknir, Jóhann Agúst Sig- urðsson prófessor og Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hag- fræðistofnunar Háskóla Islands, sem unnu hana. Kemur fram í niðurstöðum þeirra að það sé einkum yngra fólk, ein- hleypir og fráskildir, bamafólk, úti- vinnandi einstaklingar og lágtekju- fólk sem á erfitt með aðgang að heilsugæslu. Eiga erfitt með að fá sig lausa frá vinnu Ýmsar ástæður liggja þarna að baki, aðgangur þessara hópa er ekki aðeins erfiðari vegna þess að þjón- ustan sé þessum hópum fjárhagslega þungbær, eða ekki fyrir hendi, held- ur einnig vegna þess að þessir hópar eiga t.d. erfitt með að fá sig lausa frá atvinnu eða heimilisstörfum til að fara tO læknis. ■ Verulegur munur/12 Morgunblaðið/Júlíus Maður um fimmtugt lést í umferðarslysi á Vesturlandsvegi við Korpúlfsstaði í gærkvökl. Banaslys á Vestur- landsvegi M AÐUR um fimmtugt lést í umferð- arslysi á Vesturlandsvegi við Korp- úlfsstaði klukkan rúmlega sex í gærkvöld. Að sögn lögreglu er talið að mað- urinn, sem var einn í bifreiðinni á leið til Reykjavíkur, hafi misst stjórn á henni í mikilli hálku og vindi með þeim afleiðingum að hún lenti á ljósastaur. Er talið að maðurinn hafi látist samstundis er bifreiðin skall á staurnum af miklu afli. Umferð um Vesturlandsveg var stöðvuð um tíma vegna atburðarins. Bifreiðin, sem er mjög illa farin ef ekki ónýt, var dregin af slysstað með kranabíl. Mikil umferð var um Vesturlands- veg um það leyti sem slysið varð. Lögreglan óskar eftir vitnum að at- burðinum og eru þau beðin um að- gefa sig fram við rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.