Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Vandaður undirbúningur umhverfís- löggjafar lykilatriði Alþjóðlega lagakerfíð og hvernig hægt er að varðveita líffræðilegan fjölbreytileika í heiminum er meðal þess sem Hildur Einarsdóttir ræddi við Aðalheiði Jóhannsdóttur sem stundar doktorsnám í umhverfís- rétti við háskólann í Uppsölum. UNDANFARNA áratugi hefur athygli manna um heim allan beinst í vaxandi mæli að nauðsyn þess að vernda umhverfið fyrir röskun og spjöllum, hvort sem það er af mannavöldum eða af öðrum ástæð- um. A sviði lögfræðinnar hefur þessara viðhorfa gætt á þá lund að löggjaflnn og lögfræðingar hafa í auknum mæli beint sjónum sínum að því viðfangsefni á hvern hátt réttarreglum verði best beitt til þess að tryggja umhverf- inu viðhlítandi vernd gegn skaðlegum utan- aðkomandi áhrifum. Einn þessara lögfræð- inga er Aðalheiður Jóhannsdóttir, sem nú stundar doktorsnám í umhvefisrétti við há- skólann í Uppsölum en umhverfisréttur er til- tölulega nýtt svið innan lögfræðinnar. Aðalheiður hefur fjölþætta reynslu af um- hverfismálum. Eftir að hún lauk kandidats- prófi í lögfræði við Háskóla íslands árið 1991 starfaði hún hjá umhverfisráðuneytinu í þrjú ár meðal annars að ýmsum verkefnum sem tengdust EES samningum. Vann hún meðal annars að því að semja frumvarpið sem varð að lögum um mat á umhverfisáhrifum Tilviljun að hún réðst til umhverfísráðuneytisins „Það getur verið tilviljunum háð hvar mað- ur byrjar starfsferil sinn að námi loknu og þannig var það þegar ég réðist til umhverfis- ráðuneytisins. En þau verkefni sem ég vann í umhverfisráðuneytinu voru mjög spennandi og fræðandi," segir hún þegar hún er beðin að rifja upp feril sinn. „Ég var síðan ráðin sem framkvæmdastjóri Náttúruverndarráðs og gegndi því starfi til ársins 1997 þegar starfsemi ráðsins var breytt og Náttúruvernd ríkisins sett á laggirnar og varð ég forstjóri þeirrar stofnunar. í því starfi var ég í eitt ár og fór þá að undirbúa námið í Uppsölum sem ég hóf í upphafi árins 1999. A þessum tíma sat ég auk þess í ýmsum ráðum og nefndum sem störfuðu að umhverf- ismálum. Þá var ég í nokkur ár stundakennari í um- hverfisrétti við Háskóla íslands. Dr. Gunnar G. Schram hóf kennslu í umhverfisrétti við háskólann og hefur skrifað þær bækur sem hafa verið samdar um þessi mál á íslenska tungu. Gaf hann mér tækifæri til að koma inn í kennsluna í upphafi sem var ákaflega dýr- mæt reynsla. Aðalheiður er spurð að því hvort umhverf- ismálin hafi verið henni hugleikinn þegar í uppvextinum. „Já, á unglingsárunum voru t.d. hvalamálin ofarlega á baugi og fygldist ég grannt með þeim. Svo þegar ég var rúmlega tvítug fór ég til Suður- Nepal til að dveljast þar í þjóðgarði þar sem var fjöldi villtra dýra. Áhuginn á að fara þangað vaknaði þegar ég sá fræðslu- mynd í sjónvarpinu um þetta svæði og tók þá ákvörðun um að fara. Dvaldi í þjóðgarði í Nepal Ég vann þá hjá Flugleiðum á sumrin og fékk afsláttarmiða frá London til Nýju -Delhi sem gerði þessa ferð mögulega. Ég fór með vinkonu minni og tókst okkur að kría út ódýr: an miða frá Delhi til Katmandu í Nepal. I þjóðgarðinum bjuggum við við afar frum- stæðar aðstæður. Við ferðuðumst um þjóð- garðinn á fílum og voru venjulega tveir á hverjum fíl auk leiðsögumanns. Mér var minnisstætt þegar ég heyrði þjóðgarðsvörð- inn segja frá því að í upphafi aldarinnar hefði verið þama urmull af tígrisdýrum en nú væru aðeins 40 eftir. Þeim fækkaði gífurlega eftir að konungur Nepal fór að bjóða vesturlanda- búum að stunda þarna veiðar. Sá áhugi sem kviknaði á umhverfinu á þessum árum hefur haldist æ síðan. Það er ekki þar fyrir að ég hafi ekki áhuga á öðrum greinum lögfræðinn- ar því ég gæti vel hugsað mér að eyða tíma í að kynna mér betur stjórnskipunarrétt. En umhverfisrétturinn var eðlilegt framhald af því sem ég hef verið að fást við.“ Vantar kennslu í lögfræðilegum orðaforða á erlendum málum Lögfræðin var þó ekki það nám sem Aðal- heiður fór í fyrst eftir stundentspróf frá MH heldur hélt hún til Flórens á Italíu og lærði þar ítölsku og listasögu. Þegar hún kom heim settist hún í sagnfræðideild Háskóla íslands í eitt á en segist hafa hætt vegna þess að henni hafi ekki fundist námið nógu hagnýtt og at- vinnumöguleikarnir einkum á sviði kennslu. „Svo fer ég í tíu ára nám í lögfræði og á ör- ugglega eftir að enda sem kennari," segir hún og hlær. Aðalheiður víkur aftur að doktorsnáminu í Svíþjóð og má heyra á henni að það sé afar at- hyglisvert. Hún segir námið taka fjögur ár og sé því lengra en í ýmsum öðrum löndum. Þrjú ár séu ætluð fyrir ritgerðina en eitt ár fari í að sækja fyrirlestra í almennri lögfræði og réttarheimspeki og sé því ótengt því efni sem doktorsefnið hefur valið sér. „Ég var ágætlega búin undir námið og tel að íslenskir lögfræðingar séu almennt vel búnir undir framhaldsnám erlendis.,“segir hún. „En ég þurfti að eyða meiri tíma í að finna réttu hugtökin á sænsku og ensku yfir það sem ég var að fást við en ég hafði gert ráð fyrir. Eftir á að hyggja finnst mér að námið í Háskóla Islands ætti að bjóða upp á að hægt sé að kynna sér betur lögfræðilegan orða- forða á öðrum tungumálum. Fátt sem kemur á óvart í náminu Annars er fátt sem hefur komið á óvart í náminu. Þeir sem fara út í doktorsnám ættu ekki að búast við of miklu. Aðstaðan erlendis er ekkert betri eða glæsilegri en hér heima þar sem hún er með ágætum. Háskólinn í Uppsölum býr við góðan húsakost og þeir sem eru í doktorsnámi hafa eigin skrifstofur sem er mikill munur. En hvers vegna varð Uppsala háskóli fyrir valinu? „í upphafi hafði ég mestan áhuga á að stunda nám við háskóla á Bretlandseyjum en komst að raun um að það er afar kostnaðar- samt. Ég fór þá að hugsa til Norðurlandanna og komu einkum tveir háskólar til greina Uppsala háskólinn og háskólinn í Árósum. Prófessorarnir við þessa háskóla eru leiðandi í rannsóknum í umhverfísrétti á Norðurlönd- um. Það sem gerði svo útslagið var að ég kynntist Staffan Westerlund, sem er prófess- or í umhverfísrétti við háskólann í Uppsölum, á námskeiði í Danmörku í umhverfisrétti. Hann er aðal leiðbeinandi minn. Þegar ég hóf námið hafði ég fyrirfram mót- aðar skoðanir um ritgerðarefnið. Það hefur þó tekið nokkrum breytingum í samráði við Morgunblaðið/Ámi Sæberg. „Alþjóðlega lagakerfið er í eðli sínu frekar veikt,“ segir Aðalheiður Jóhannsdóttir, lögfræðingur. leiðbeinendur mínar. Ritgerðin fjallar um al- þjóðlegan umhverfisrétt. Hvernig hægt er að varðveita líffræðilegan fjölbreytileika í heim- inum og hvernig alþjóðlega lagakerfið er í stakk búið til að vernda hann. Alþjóðlega Iagakerfið í eðli sínu fremur veikt Aðalheiður segir að samningurinn um lif- fræðilegan fjölbreytileika sem Island er aðili að sé hluti af Ríó ferlinu. „Samningurinn skil- greinir líffræðilegan fjölbreytileika sem fjöl- breytileika milli tegunda, innan tegunda og vistkerfa. Talið er að eftir því sem fjölbreyti- leikinn er meiri og honum viðhaldið stuðli það að betra lífi á jörðinni en þetta þarfnast tví- mælalaust meiri rannsóknar,“segir hún. „Alþjóðlega lagakerfið hefur ákveðin ein- kenni,“ heldur hún áfram. „Það er í eðli sínu fremur veikt og hefur lítið af markvissum úr- ræðum sem hægt er að beita ef ríki standa ekki við skuldbindingar sínar eins og við samninginn um líffræðilegan fjölbreytileika. Það er til dæmis ákaflega fátt sem getur komið í veg fyrir að tiltekið ríki geti breytt lífríki sínu svo mikið að það geti haft neikvæð áhrif á alla jarðarbúa. Markmiðið með ritgerðinni er að vinna með þær fyrirstöður sem eru í alþjóðlega laga- kerfinu," segir hún og útskýrir hvernig það er uppbyggt og hverjir séu annmarkar þess. „Sjálfstæð ríki og alþjóðlegarstofnanir mynda þetta laga kerfi. Hvert ríki fyrir sig ræður innanríkismálum sínum. Ein þjóð get- ur ekki sagt annarri þjóð fyrir verkum og það er margítrekuð regla að ríki eigi rétt á að nýta auðlyndir sínar samkvæmt eigin stefnu. Svo allt sem hægt er að gera byggir á þjóð- réttarlegum samningum og venjurétti. Ef ríki skuldbindur sig hins vegar til að grípa til verndaraðgerða þá skoðar það venju- lega fyrst hvort og hvernig þær komi við efnahgslíf þeirra. Þetta tvennt, það er sjálfs- ákvörðunarréttur um eigin mál og alþjóðleg- ar verndaraðgerðir, fara ekki alltaf saman. Ekkí hægt að setja sömu skuldbindingar á þróunarlöndin Þjóðarétturinn hefur engin augljós úrræði sem geta stöðvað ríki í að skaða önnur á um- hverfissviðinu sérstaklega ef áhrifin eru óbein eins og hvað varðar loftlagsbreytingar en þetta skapar ákveðin vandamál," segir hún. „Markmiðið með ritgerðinni er að greina þennan vanda og ef til vill benda á leiðir til úrbóta.“ Hvað er það einkum sem stendur í vegi fyr- ir því að þjóðir heims geti samræmt stefnu sína í umhverfismálum? „Það er misskipting gæða og áhrifa í heim- inum. Við höfum annars vegar Norður- Evrópu og Norður -Ameríku, ríki sem búa við mikla velsæld en eru í minnihluta miðað við fólksfjölda. Þessar þjóðir hafa mikil pólitísk áhrif en frá þeim berst gífurleg mengun. Það er því eðlilegt að leggja ríkari skildur á þess- ar þjóðir en til dæmis þróunarlöndin sem mörg hver eru ekki í stakk búin til að takast á við auknar skuldbindingar á umhverfissvið- inu. Það hljómar kannski kaldranalega og fjar- lægt en í framtíðinni þá tel ég að umhverfis- málin í heiminum muni fyrst og fremst snúast um matvæli og vatn en mannfjöldaspár eru nánast ógnvekjandi. Annars hefur samvinna á milli landa á þessu sviði aukist mikið á umliðnum árum. Við stöndum nú mun betur að vígi en fyrir 1972 þegar Stokkhólmsráðstefnan var haldin en þá var í fyrsta skipti fjallað um umhverfis- mál jarðar á einum vettvangi. Við vitum nú meira um afleiðingar meng- unar og nauðsyn þess að viðhalda líffræðileg- um fjölbreytileika. Samt er mjög margt enn óljóst.“ Mikilvægt að hugtök séu skilgreind nákvæmlega í lagatexta Það kemur fram í máli Aðalheiðar að það sé mjög mikilvægt að hugtök sem verið er að fjalla um og gegna mikilvægu hlutverki í um- ræðunni um umhverfisvernd séu skilgreind nákvæmlega í lögum til að auðvelda fram- kvæmd þeirra. „I kjölfar svokallaðrar Brundtland-skýrslu sem kom út árið 1987 og fjallar um umhverfismál kemur fram hugtak- ið um sjálfbæra þróun. Þegar talað er um sjálfbæra þróun er átt við þróun sem mætir þörfum núverandi kynslóða án þess að stefna í hættu möguleika komandi kynslóða á að geta uppfyllt þarfir sínar. Með sjálfbærri þró- un er átt við að þörfum allra sé fullnægt en að fólk verði að sætta sig við neyslu sem er inn- an marka þess sem vistkerfi jarðar leyfa. Sjálfbær þróun felur einnig í sér að við lögum athafnir okkar og lífsviðhorf, þar með talda nýtingu auðlinda, neyslu, framleiðslu og þjón- ustu, að skilyrðum umhverfisins. Það sem ég er meðal annars að glíma við í minni ritgerð er hvernig þessi hugsun, sjálf- bær þróun, er tekin inn í lagatexta. Það sem vantar oftast inn í löggjöf þjóða er að hugsun-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.