Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Trúverðugleika Los Angeles Times ógnað vegna óljósra skila milli ritstjórnar og auglýsinga Þegar Múrinn er rofínn Bandaríska dagblaðið Los Angeles Times birti einstaka, 14 blað- síðna úttekt eftir einn blaðamanna sinna hinn 20. desember sl. I út- tektinni er rakin sú ákvörðun dagblaðsins að leggja allt sunnu- dagsblað sitt undir umfjöllun um nýja íþróttahöll í borginni. Eftir að sunnudagsblaðið kom út fréttist að dagblaðið hefði skipt auglýsinga- _______tekjum af útgáfunni með eigendum íþróttahallarinnar._________ Ragnhildur Sverrisdóttir segir að blaðamenn, ekki eingöngu á Los Angeles Times heldur um öll Bandaríkin hafí brugðist æva- reiðir við og sagt málið grafa undan trausti almennings á fjölmiðlum. Helgarblað Los Angeles Times, sem ber heitíð Sunday Magazine, kom að venju út sunnudaginn 10. október sl., en í þetta sinn var blaðið, sem oftast er 48 til 64 síður, heilar 168 síður og allar helgaðar nýrri körfu- bolta- og íshokkfliöll í miðborg Los Angeles, Staples Center. I blaðinu kom fram, að Los Angeles Times væri einn styrktaraðila miðstöðvar- innar, sem hafði aldrei verið leyndar- mál. Hins vegar fréttist ekki fyrr en síðar, að dagblaðið og Staples Center hefðu samið um útgáfu blaðaukans og skyldi helmingur ágóða af útgáfunni renna til íþróttamiðstöðvarinnar. Þar með var dagblaðið búið að koma sér í þá óafsakanlegu stöðu, að skipta ág- óða blaðsins með umfjöllunarefni þess. Þeir sem ráða peningamálum dagblaðsins halda því að vísu fram, að enginn innan ritstjómarinnar hafi vit- að af þessu fyrirkomulagi og umfjöll- unin því verið fúllkomlega ólituð af hagsmunum blaðsins, en af hálfu rit- stjómar er bent á að hvort sem svo hafi verið eða ekki sé aðalmálið að les- endur getí ekki treyst dagblaði, sem standi í viðskiptamakki með umfjöll- unarefni blaðamanna. Dagblöð og aðrir fréttamiðlar lúti allt öðrum lög- málum en önnur fyrirtæki, því þau byggi fyrst og fremst á því að lesend- ur treystí áreiðanleika og hlutleysi fréttanna Yfirmenn án reynslu í blaðamennsku Þetta klúður Los Angeles Times, því vart verður fundið mildara orð tíl að lýsa atburðum, er af mörgum rakið til þekkingarleysis yfirmanna blaðs- ins á grundvallarreglum blaða- mennsku. Enginn efast um að Mark Willes, stjómarformaður Times Mir- ror samsteypunnar sem á Los Angel- es Times og íleiri fjölmiðla, sé manna flinkastur í viðskiptum. Hann átti enda góðan feril að baki sem yfirmað- ur General Mills morgunkomsfram- leiðandans þegar hann var kallaður til starfa hjá Times Mirror árið 1995. Þar tók hann við starfi útgefanda árið 1997, en í Bandaríkjunum gegnir út- gefandi, „publisher“, í raun starfi for- stjóra og aðalritstjóra. Willes lýstí því yfir að breyttir tímar kölluðu á ný vinnubrögð. Innan fyrirtækisins þyrftu allar deildir að leggjast á eitt að auka hagnað og útbreiðslu blaðsins og hann ætlaði sér að bijóta niður Múrinn, sem hefði verið milli rit- stjómar og auglýsingadeildar, og nota tíl þess sprengjuvörpu ef ástæða væritil. Willes fann fljótlega eftirmann sinn í stól útgefanda, Kathryn Downing, sem tók formlega við því starfi um mitt síðasta ár, en hún hafði verið hægri hönd Willes frá 1998. Það sama gildir um hana og Willes, enginn frýr henni viðskiptavits, en hún hefur enga fyrri reynslu af blaðamennsku. Kathryn Downing er lögfræðimenn- tuð og starfaði í mörg ár við útgáfu lögfræðilegra rita og við stjómvölinn hjá Los Angeles Times beitti hún þekkingu sinni á viðskiptum til hins ýtrasta, rétt eins og Willes. Hvoragt þeirra áttaði sig á þeim grandvallar- mun, sem er á rekstri dagblaða og annarra fyrirtækja og hvoragt þeirra virðist hafa þegið ráð sér fróðari manna á því sviði. Þegar íþróttamiðstöðin var 1 bygg- ingu leituðu forráðamenn hennar til ýmissa stórfyrirtækja eftir fjárhags- legum stuðningi. Stærsti styrktaraði- linn er Staples-ritfangaverslanakeðj- an, sem greiddi 116 milljónir dollara gegn því að miðstöðin bæri nafn keðj- unnar. Sú upphæð hrökk þó ekki til, því miðstöðin kostaði 400 milljónir dollara, eða hátt í 30 milljarða króna. Til að brúa bilið var samið við ýmis önnur fyrirtæki, t.d. hefúr McDon- ald’s hamborgarakeðjan einkarétt á hamborgarasölu í miðstöðinni og An- heuser-Busch er eini bjórframleiða- ndinn sem fær að selja afurð sína þar innan veggja. Stofnstyrktaraðilar þessir, sem vora alls tíu áður en yfir lauk, fengu einnig vilyrði fyrir því að ekkert annað fyrirtæki á þeirra sviði fengi að auglýsa í miðstöðinni, auk , þess að njóta ýmissa fríðinda, til dæmis einkastúku á áhorfendapöll- um. Sérstök verkefni, báðum til hagsbóta Eigendur íþróttamiðstöðvarinnar vildu að Los Angeles Times yrði í hópi stofnstyrktaraðila, en dagblaðið heyktist á að greiða þær 2-3 milljónir dollara á ári í fimm ár, sem aðrir styrktaraðilar höfðu samþykkt. Eig- endur íþróttamiðstöðvarinnar voru hins vegar tilbúnir að fara aðrar leið- ir, enda viðurkenndu þeir að dagblað- ið hefði nokkra sérstöðu. Arið 1998 kom upp sú hugmynd, að dagblaðið myndi aðeins greiða hluta styrksins til miðstöðvarinnar í beinhörðum peningum, en á móti kæmu ókeypis auglýsingar í blaðinu, auk þess sem báðir aðilar samþykktu að leita nýrra leiða til að afla tekna, t.d. með útgáfu bæklings, árbókar eða auglýsinga- blaðs um Staples Center. Að þessu var gengið og þar með tryggt að Los Angeles Times yrði eina dagblaðið til sölu í miðstöðinni. Niðurstaðan var sú, að dagblaðið greiddi Staples Cent> er 1,6 milljónir dollara á ári í fimm ár, þar af 800 þúsund í peningum, 500 þúsund í auglýsingum og um 300 þús- und áttu að skila sér frá sérstökum verkefnum, sem yrðu báðum aðilum til hagsbóta. Fyrri hluti samningsins var ljós, en þegar farið var að semja um nýjar leiðir til tekjuöflunar reynd- ist Los Angeles Times komið á hálan ís. í fyrstu virðast menn innan dag- blaðsins hafa haft í huga að gefa út auglýsingablað, eins og gert er þar á bæ og hjá öðram blöðum oft á ári. Hjá Los Angeles Times er þess ávallt gætt að merkja slík blöð kirfilega sem auglýsingar og allt efni í blöðin er unnið af auglýsingadeild, ekki rit- stjóm. Önnur hugmynd var sú, að dagblaðið gæfi út eins konar árbók, eða bækling um Staples Center, sem væri hægt að selja á leikvanginum um ókomna framtíð. Af hálfú auglýsingadeildar kom fljótlega upp sú hugmynd, að leggja alla sunnudagsútgáfuna undir um- fjöllun um Staples Center og vísaði auglýsingadeildin m.a. til þess, að sú leið hefði verið farin þegar listasafnið Getty Center var opnað í desember 1997. Þessi hugmynd mættí andstöðu ritstjómar, sem taldi opnun íþrótta- miðstöðvarinnar ekki gefa tílefni til svo mikillar umfjöllunar. Getty Cent- er og Staples Center væra alls ekki sambærileg, hið fyrmefnda væri menningarstofnun sem hefði alþjóð- lega skírskotun, en hið síðamefnda væri íþróttamiðstöð, sem væri ætlað að skila hagnaði og höfðaði eingöngu til heimamanna. Auk þess hefði íþróttadeildin þegar hafið undirbún- ing blaðauka um Staples Center, en slíkir blaðaukar koma út á vegum íþróttadeildarinnar um 20 sinnum á ári. Þá benti ritstjómin á, að meiri- hlutí lesenda sunnudagsblaðsins væri konur, en blað helgað íþróttamiðstöð væri líklegra til að höfða til karla. Loks vísaði svo ritstjómin til þess, að þar sem Los Angeles Times væri einn styrktaraðila Staples Center væri lík- lega eðlilegast að gefa út auglýsinga- blað um miðstöðina. Þar með kæmist blaðið hjá því að vinna ritstjómarlegt efni um aðila sem það ætti í viðskipta- sambandi við. A íúndi í mars sl. ræddu fúlltrúar auglýsingadeildarinnar og ritstjórnar hvað ætti að gera. Fulltrúar auglýs- ingadeildarinnar segja að þá hafi leg- ið ljóst fyrir að skipta ætti hagnaðin- um af væntanlegu blaði milli dagblaðsins og íþróttamiðstöðvarinn- ar. Fulltrúar ritstjómarinnar hefðu engar athugasemdir gert við þá skip- an mála. Þeir síðamefndu neita hins vegar vitneskju um þessa hlið við- skiptanna og segja að hafi slíkt verið nefnt, þá hafi þeir einfaldlega ekki áttað sig á því hvað um var að vera. Samningurinn við Staples Center lá að vísu frammi á fundinum, en full- trúar ritstjómar skoðuðu hann ekki nákvæmlega, fremur en aðra við- skiptasamninga. Þetta var einfald- lega ekki þeirra deild. Auglýsingadeildinni bættist lið- sauki þegar Michael Parks ritstjóri frétta komst að þeirri niðurstöðu að opnun íþróttamiðstöðvarinnar hefði ekki eingöngu skírskotun til íþróttaá- hugamanna, heldur væri mikilvægur liður í endurreisn miðborgar Los Angeles. Hann taldi best að fjalla um miðstöðina og allt sem henni tengdist á einum stað, í sunnudagsblaðinu, en segist ekki hafa haft hugmynd um að Staples Center ættí að fá helming auglýsingatekna. Ef hann hefði vitað það, hefði hann svo sannarlega sagt Willes stjómarformanni og Downing útgefanda að slíkur samningur gengi gegn hagsmunum ritstjómar. Undirbúningur að sérstöku Stap- les Center sunnudagsblaði hófst þeg- ar í stað. í fyrmefndri 14 blaðsíðna $ « Wm 1, 1* - fk j£JR íþróttamiðstöðin Staples Center sést hér til vinstri á myndinni, sem tek- in er við Figueroa Street í miðborg Los Angeles. Nokkur íþróttalið eiga aðsetur í Staples Center, m.a. ísknattleiksliðið Los Angeles Kings og körfuboltaliðin Los Angeles Lakers og Clippers. úttekt Davids Shaws, blaðamanns LosAngeles Times, á atburðum kem- ur fram, að í lok mars á síðasta ári hafi sjö manns verið boðaðir til fund- ar innan blaðsins, en í fundarboði kom skýrt fram að fjalla ættí um út- gáfu sem Staples Center myndi hagn- ast á. Þá kom einnig fram, að fjalla ætti um hugmyndir að efni í blaðinu, þrátt fyrir að enginn fundarmann- anna sjö hafi verið frá ritstjóm. Þeir vora allir af auglýsingadeild. David Shaw tókst ekki að sýna fram á það með fúllri vissu hvenær ritstjóminni hefði verið kunnugt um að Staples Center fengi hluta ágóðans af blaðinu. Ritstjórinn, Michael Parks, segir að hann hafi ekki frétt af þessu fyrirkomulagi fyrr en 14. sept- ember. Daginn áður hafði komið til rifrildis milli auglýsingadeildar og rit- stjómar, þar sem auglýsingadeildin hafði séð prófaridr af blaðinu og mót- mælti því kröftuglega að vísað væri til Staples Center sem „the Staples Center", því eigendur íþróttamið- stöðvarinnar vildu ekki nota ákveðinn greini með heití hennar. Ritstjómin sagði hins vegar að þetta væri eðlileg orðnotkun, enginn myndi sleppa ákveðna greininum í daglegu tali (þ.e. segja t.d. „go to Staples Center“, í stað þess að segja „go to the Staples Center“). Auglýsingadeildin ætti ekkert með að reyna að breyta eðli- legri orðnotkun í blaðinu. Niðurstað- an varð sú, að ákveðni greinirinn var látinn halda sér, enda var blaðið langt komið í vinnslu. Fimm dögum eftir útgáfu blaðsins, þ.e. kvöldið fyrir opn- un íþróttamiðstöðvarinnar, sendi Parks hins vegar tílkynningu tíl blaðamanna um að hér eftír bæri að sleppa ákveðna greininum. Þetta at- riði var eitt af mörgum, sem hleyptu illu blóði í blaðamenn og ýtti undir gífurlega óánægju þeirra þegar Stap- les Center púðurtunnan sprakk. En Michael Parks frétti þó af samningum við Staples Center áður en blaðið kom út og hefúr verið gagn- rýndur mjög fyrir að stöðva ekki út- gáfuna, því enn var tími til þess um miðjan septembermánuð, þegar 26 dagar vora til útgáfú. Hann ræddi við útgefandann og útskýrði hvers vegna vinnubrögð af þessu tagi væra ekki dagblaði sæmandi, en hvoragt þeirra greip til aðgerða. Parks hefur einnig verið gagnrýndur harðlega fyrir að ræða málið ekki við aðra á ritstjóm- inni, en Kathryn Downing útgefandi hefur haldið því fram, að hún hafi vís- vitandi haldið samningnum leyndum fyrir ritstjóm, til þess að hlutíeysi hennar yrði ekki stefnt í voða. Upphaflega var við það miðað að Staples Center útgáfa sunnudagsbl- aðsins yrði um 100 blaðsíður, sem var nær tvöfoldun á venjulegri stærð, en það endaði í 168 blaðsíðum. Blaðið halaði inn 2,1 milljón dollara í auglýs- ingatekjur, en þegar allur kostnaður hafði verið greiddur fékk Staples Center um 350 þúsund í sinn hlut, eða um 25 milljónir króna. Opinber niðurlæging og sársaukafúll úttekt Ellefu dögum eftír útgáfu sunnu- dagsblaðsins um Staples Center birt- ist dálkur í vikublaðinu New Times, smáblaði í Los Angeles, þar sem skýrt var frá því að stórblaðið Los Angeles Times hefði samþykkt að deila ágóðanum af sunnudagsútgáf- unni með Staples Center. Þrátt fyrir að margir innan Los Angeles Times hafi haft spumir af samningnum þeg- ar hér var komið sögu kveikti þessi dálkur ekki í púðurtunnunni, enda hafði dálkahöfúndurinn, sem er fyrr- verandi starfsmaður Los Angeles Ti- mes, svo oft farið með rangt mál að enginn tók fúllt mark á honum að þessu sinni. Hins vegar varð dálkur- inn til þess að blaðamaður New York Times kannaði málið nánar. Þriðju- daginn 26. október birtist frétt af mál- inu á forsíðu viðskiptakálfs þessa virta dagblaðs og um leið fréttu allir óbreyttir blaðamenn á Los Angeles Times af því. Daginn eftír birti Wall Street Journal sambærilega frétt og niðurlæging Los Angeles Times var algjör. ►
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.