Morgunblaðið - 11.02.2000, Blaðsíða 60
^,60 FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
!
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Sorgar og
samúðarmerki
Borið við rainningarathafair
og jarðarfarir.
Allur ágóði rennur til
líknarmála.
Fæst á bensmstöðvum,
í Kirkjuhúsinu og í
blómaverslunum.
H KRABBAMEINSSJÚK BÖRN
ÆTtr HJÁLPARSTOFNUN
KIRKJUNNAR
Shell
olís
Bæjarfulltrúinn
Pétur Ottesen gerir
tilraun til að taka í
lurginn á undirrituð-
um í grein í Morgun-
blaðinu 2. febrúar.
Gagnstætt vonum um
að hann færi að ráð-
um mínum og léti öðr-
um nákomnari eftir að
verja tapaðan málstað
skundar hann enn út
á ritvöllinn og vandar
mér ekki kveðjurnar.
Segir hann mig bæði
rökþrota og reyna að
gera sig tortryggileg-
an. Að halda þessu
fram er mikil forherð-
ing. Hann forðast eins og heitan
eldinn að andmæla þeim meginat-
riðum sem ég tíndi til í grein
minni. Hann hóf sjálfur þetta stríð
með mjög óvægnu hnútukasti gegn
núverandi meirihluta bæjarstjórn-
ar Akraness. Hann getur ekki ætl-
ast til að fá að senda
fólki slík hnýfilyrði án
þess að þeim sé svar-
að.
Hinn málefnalegi
vandi Péturs varðandi
SSV er hins vegar
grafalvarlegur:
1. Hann getur ekki
hrakið eitt einasta at-
riði þar sem ég rakti
staðreyndir þessa
leiðinlega máls.
2. Hann getur ekki
með neinu móti rétt-
lætt aðfarir flokks-
manna sinna í for-
mannskjöri SSV, enda
hefur hann lýst því
sjálfur yfir á bæjarstjórnarfundi
að þær hafi verið óheppilegar.
3. Hann getur ekki tilfært eitt
einasta dæmi því til staðfestingar
að úrsögnin skaði almenning í
kjördæminu á einhvern hátt.
4. Hann getur ekki með nokkru
Sveitarstjórnarmál
Þegar þessi atriði eru
vegin saman, segir
Sveinn Kristinsson,
stendur svo sem
ekkert eftir af mál-
flutningi Péturs
nema stóryrðin.
móti komið sér til að greina rétt
frá atburðarás þessa máls.
5. Hann verður að horfa upp á
það að Akurnesingar nái tíma-
mótasamkomulagi um samstarf við
nágranna sína þvert ofan í fullyrð-
ingar um viljaskort meirihlutans
til samstarfs við aðra.
6. Hann getur ekki bent á nein
þau afrek sem unnin hafa verið á
vegum SSV sem ekki hefði mátt
vinna með öðrum hætti.
Þegar þessi atriði eru vegin
saman stendur svo sem ekkert eft-
ir af málflutningi Péturs nema
stóryrðin. Er því engin ástæða til
að elta ólar við ýmsar eyrnafíkjur
sem hann sker undirrituðum. Ég
vil þó taka fram að orð mín til
hans voru ekki ætluð honum til
hnjóðs nema síður væri. Ég hef
hingað til ekki farið í neinar graf-
götur með dálæti mitt á Pétri
Ottesen og stutt hann til margra
góðra verka. Mér leiddist hins
vegar að sjá hann verða gliðsa og
síðan afvelta á hinu pólitíska svelli.
Fer svo að linna skrifum mínum
um málefni SSV.
Eftir situr að vonbrigðin og ráð-
leysið einkenna öll viðbrögð sjálf-
stæðismanna í þessu máli. Þeir
verða að sitja uppi með sín mistök
og sína skömm og mega naga sig í
handarbökin fyrir valdagræðgina.
Við hin höldum ótrauð áfram á leið
til framtíðar sem ber í skauti sér
aukna samvinnu og samstöðu
þeirra sem hafa til þess þrek og
vilja.
Höfundur er formaður bæjarráðs
Akraness.
UMRÆÐAN
Af „málefnafátækt,
lítilsvirðingu og hroka“
Sveinn
Kristinsson