Morgunblaðið - 11.02.2000, Síða 60

Morgunblaðið - 11.02.2000, Síða 60
^,60 FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ ! Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 Sorgar og samúðarmerki Borið við rainningarathafair og jarðarfarir. Allur ágóði rennur til líknarmála. Fæst á bensmstöðvum, í Kirkjuhúsinu og í blómaverslunum. H KRABBAMEINSSJÚK BÖRN ÆTtr HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR Shell olís Bæjarfulltrúinn Pétur Ottesen gerir tilraun til að taka í lurginn á undirrituð- um í grein í Morgun- blaðinu 2. febrúar. Gagnstætt vonum um að hann færi að ráð- um mínum og léti öðr- um nákomnari eftir að verja tapaðan málstað skundar hann enn út á ritvöllinn og vandar mér ekki kveðjurnar. Segir hann mig bæði rökþrota og reyna að gera sig tortryggileg- an. Að halda þessu fram er mikil forherð- ing. Hann forðast eins og heitan eldinn að andmæla þeim meginat- riðum sem ég tíndi til í grein minni. Hann hóf sjálfur þetta stríð með mjög óvægnu hnútukasti gegn núverandi meirihluta bæjarstjórn- ar Akraness. Hann getur ekki ætl- ast til að fá að senda fólki slík hnýfilyrði án þess að þeim sé svar- að. Hinn málefnalegi vandi Péturs varðandi SSV er hins vegar grafalvarlegur: 1. Hann getur ekki hrakið eitt einasta at- riði þar sem ég rakti staðreyndir þessa leiðinlega máls. 2. Hann getur ekki með neinu móti rétt- lætt aðfarir flokks- manna sinna í for- mannskjöri SSV, enda hefur hann lýst því sjálfur yfir á bæjarstjórnarfundi að þær hafi verið óheppilegar. 3. Hann getur ekki tilfært eitt einasta dæmi því til staðfestingar að úrsögnin skaði almenning í kjördæminu á einhvern hátt. 4. Hann getur ekki með nokkru Sveitarstjórnarmál Þegar þessi atriði eru vegin saman, segir Sveinn Kristinsson, stendur svo sem ekkert eftir af mál- flutningi Péturs nema stóryrðin. móti komið sér til að greina rétt frá atburðarás þessa máls. 5. Hann verður að horfa upp á það að Akurnesingar nái tíma- mótasamkomulagi um samstarf við nágranna sína þvert ofan í fullyrð- ingar um viljaskort meirihlutans til samstarfs við aðra. 6. Hann getur ekki bent á nein þau afrek sem unnin hafa verið á vegum SSV sem ekki hefði mátt vinna með öðrum hætti. Þegar þessi atriði eru vegin saman stendur svo sem ekkert eft- ir af málflutningi Péturs nema stóryrðin. Er því engin ástæða til að elta ólar við ýmsar eyrnafíkjur sem hann sker undirrituðum. Ég vil þó taka fram að orð mín til hans voru ekki ætluð honum til hnjóðs nema síður væri. Ég hef hingað til ekki farið í neinar graf- götur með dálæti mitt á Pétri Ottesen og stutt hann til margra góðra verka. Mér leiddist hins vegar að sjá hann verða gliðsa og síðan afvelta á hinu pólitíska svelli. Fer svo að linna skrifum mínum um málefni SSV. Eftir situr að vonbrigðin og ráð- leysið einkenna öll viðbrögð sjálf- stæðismanna í þessu máli. Þeir verða að sitja uppi með sín mistök og sína skömm og mega naga sig í handarbökin fyrir valdagræðgina. Við hin höldum ótrauð áfram á leið til framtíðar sem ber í skauti sér aukna samvinnu og samstöðu þeirra sem hafa til þess þrek og vilja. Höfundur er formaður bæjarráðs Akraness. UMRÆÐAN Af „málefnafátækt, lítilsvirðingu og hroka“ Sveinn Kristinsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.