Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.03.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 11 því að greina erfðaefnið og kannar hvort það bregst vel eða illa við lyfl sem hann telur að sjúklingurinn þurfi. Tæknin sem við höfum notað er eins konar sambland af tölvutækni, sameindalíffræði og DNA-vísind- um.“ Hann segist sjá íyrir sér að Nan- ogen geti átt samstarf við UVS í krabbameinsrannsóknum, örgjörf- inn geti nýst þegar rannsaka þarf áhættuþætti og bera saman fjölmörg lífsýni með tilliti til krabbameins- gena eða gena sem hafa áhrif á þróun krabbameins. Rannsóknin tæki mun skemmri tíma en ella. Ekki fengu fréttamenn að fylgjast með öllum viðræðunum á Madison- hótelinu í Washington enda stundum verið að fjalla um viðskiptaleyndai’- mál. En ljóst var að erlendu sérfræð- ingarnir voru hrifnir af því sem ráða- menn og starfsmenn UVS kynntu. „Þetta var erfitt en mjög gefandi," sagði einn starfsmanna UVS eftfr umræðumar og bætti við að í sumum tilvikum hefðu rannsóknimar á Is- landi verið komnar mun lengra áleið- is en gestimir hefðu átt von á. Rannsóknir vísindamanna hér- lendis á stökkbreyttum genum er eiga þátt í myndum brjóstakrabba- meins hafa vakið athygli í vísinda- tímaritum og þar að auki hefur UVS tekist að greina genabreytinguna sem talið er að valdi svonefndri snemmkominni fullorðinssykursýki. UVS hefur þegar gert þrjá sam- starfssamninga, við Landsspítala-há- skólasjúkrahús, Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri og Krabbameins- félagið og er ljóst að það er í krabba- meinsrannsóknunum sem ráðamenn fyrirtækisins gera sér mestar vonir um að að ná árangri. Gögnin sem Krabbameinsfélagið hefur safnað um ýmsar gerðir krabbameins á Islandi undanfama áratugi geta orðið fjár- sjóður íyrir vísindamenn. Um 700 miHjónir í bankanum Fyrirtækið var stofnað 1998 og nú vinna alls 16 manns í húsakynnum þess við Lyngháls. Einnig fjármagn- ar UVS fimm stöðugildi á rannsókna- stofum Krabbameinsfélags íslands en öflugir aðOar standa að fyrirtæk- inu. Má nefna Burðarás, eignar- haldsfélag Eimskip, Nýsköpunar- sjóð, Þróunarfélag íslands og Uppsprettu sem er í eigu Kaupþings. Starfsmenn UVS fá auk þess að gera kaupréttarsamninga á hlutabréfum. Stefnt er að því að fyrfrtækið fari á markað eftir tvö ár. Þegar er búið að útvega vel yfir 700 milljónir króna til rekstrarins og mest af því fé er enn í bankanum. A hinn bóginn eru tölvur dýrar og ann- ar stofnkostnaður við rannsóknir hár og því brýnt að finna leiðir til að markaðssetja þekkinguna sem verið er að framleiða. Einkarekin fyrir- tæki verða, þegar upp er staðið, að hafa tekjur á móti útgjöldunum en reynslan erlendis er samt sem áður að fjárfestar eru stundum reiðubúnír að sýna mikla þolinmæði gagnvart hátæknifyrirtækjum sem rekin eru með tapi í upphafi. Vonin um mikinn ágóða síðar meir, ekki síst af einka- leyfum og lyfjaframleiðslu, er þá haldreipið en oft munu líftæknifyrir- tæki hafa starfað árum saman án þess að hafa krónu í tekjur. Snorri Þorgeirsson segir að vænt- anlegir liðsmenn alþjóðlega vísinda- ráðsins séu ekki eingöngu mjög færir vísindamenn heldur hafi sumir ára- tuga reynslu af fyrirtækjarekstri á þessu sviði. Þeir geti orðið mikilvæg- ir bakhjarlar og hugmyndasmiðir, geti varað við mistökum og bent á leiðir til að selja það sem UVS býr til; nýtt, íslenskt hugvit. „Það er að verða til algerlega ný atvinnugrein í líftækni og erfðarann- sóknum á íslandi, þegar búið að stofna tvö fyrirtæki sem ég held að eigi bæði að geta blómstrað og þau eiga að geta orðið fleiri. Við þurfum að tryggja að til staðar sé nóg af menntuðu fólki á þessu sviði. Einnig verðum við að geta séð til þess að starfið sé til langs tíma og ég er mjög bjartsýnn á að okkur takist það. Tækifærin sem hafa orðið til bæði hjá íslenskri erfðagreiningu og nú hjá okkur hafa fengið fólk til að halda heim frá útlöndum. Eg held að þetta geti á nýrri öld og kannski næstu orðið sá atvinnuvegur sem verði um- svifamestur hjá okkur, þar verði helstu tækifærin." V ísindamenn mega ekki fullyrða um of LEROY Hood, sem er prófessor í líf- fræðilegri læknisfræði við læknadeild háskólans í Washington-ríki, er upp- runalega menntaður í ónæmisfræði. Staða hans við háskólann er kostuð af aðaleig- anda tölvurisans Microsoft, Bill Gates. Hefur Hood átt mikið samstarf við Gates sem sagður er hrifinn af mikilli hugmyndaauðgi prófessorsins. Hood er mikill áhugamaður um bætta vísinda- kennslu í grunnskólum en ekki síst þekktur fyrir að hafa á sínum tíma með rannsóknum sínum lagt grundvöllinn að því að hægt yrði að greina genamengi mannsinns en líkur eru taldar á að því starfi verði lok- ið á árinu. „Okkur hjá Caltech tókst að hanna sjálfvirka raðgreininn sem notaður er við að greina genarað- frnar, sem er mikilvægasta tækið við genamengisrannsóknimar. Ég vann hjá Caltech í 22 ár og á þeim árum bjuggum við til tæki sem notuð eru við DNA- og prótín- rannsóknir. Þama er um að ræða margvíslegan búnað sem skiptir sköpum í sameindalíffræði. Sjálfur stofnaði ég fyrirtæki sem framleiðir þessi tæki fyrir markað, nú er það hluti af öðra fyrirtæki, Perkin-Elmer, er tók þátt í að stofna Celera Genomies og leggur til tölvubúnaðinn sem Celera notar við genamengisvinnu sína. Perkin-Elmer er nú orðið heimsfrægt milljarðafyrirtæki í dolluram. Sjálfvirkur greinir var skilyrði fyrir því að hægt yrði að finna genaraðirnar vegna þess að gögn- in eru svo mikil að vöxtum." Óljóst hvort Celera nær markmiðinu Einkafyrirtækið Celera Gen- omics hefur beitt sams konar tækni en annarri nálgun en Gena- mengisáætlunin (The Human Genome Project) við greininguna, en að hinni síðamefndu standa op- inberar stofnanir eins og Banda- ríska heilbrigðisstofnunin, NIH, orkumálaráðuneytið í Washington auk nokkurra háskóla í Bandaríkj- unum og Sanger-stofnunarinnar í Bretlandi. Hood segir að enn sé ekki ljóst hvor aðferðin sé betri. „Ég á eftir að sjá hvort Celera- mönnum tekst sjálfum að greina allt genamengið og mikið af því sem fyrirtækið er að birta byggist á gögnum sem opinberir aðilar í Bandaríkjunum hafa gert aðgengileg öllum. Ég á við að ef Celera nyti ekki þessara gagna er ég ekki viss um að þeir gætu lokið verkinu," segir Hood. Hann segist þó telja það hrapalleg mistök að banna fyrirtækjum að fá einkaleyfi á genaröðum í mönnum. Lyfjafyrirtæki muni þá ekki leggja hundrað milljóna dollara í rannsóknir á hættu- legu meingeni. „Þá gæti annað fyrirtæki hugsan- lega hirt allan hagnaðinn af rannsóknunum, fjár- festingin væri til einskis. Á hinn bóginn ætti að setja mjög skýrar reglur og takmarkanir um einkaleyfi á þessu sviði. Ég álít að menn ættu að- eins að geta fengið einkaleyfi á ákveðnum hlut- um gensins, ekki öllu geninu sem slíku. Ef ríki ákvæði að banna öll einkaleyfi í gena- rannsóknum myndi það merkja að líftækni myndi ekki geta náð þroska, uppfinningar myndu ekki njóta vemdar.“ Hood hefur sjálfur stofnað mörg líftæknifyrir- tæki og þau náð góðum árangri. En oft er rætt um hagkvæmni stærðarinnar, er ekki betra að reka eitt, stórt fyrirtæki sem ræður við margvís- leg verkefni samtímis? „Haft hefur verið eftir Bill Gates að markviss stefna sé undirstaða alls annars í nýju fyrirtæki. Öll fyrirtækin sem ég hef komið á fót hafa haft afar ólík markmið. Eitt fyrirtækið sem ég stofn- aði fékkst við gerð tækja til að nota við rannsókn- ir í sameindalíffræði, annað var hefðbundið genarannsóknafyrirtæki og þau vora því í eðli sínu mjög ólík. Einnig hef ég átt framkvæði að stofnun fyrir- tækja sem helga sig rannsóknum í ónæmisfræði, krabbameinsrannsóknum, genamengisrann- sóknum og fleira. Skammvinn ævi fyrirtækja AJlt era þetta ólík svið í líffræðinni og ef markmiðin væru öll í einum potti myndi aldrei verða neitt úr neinu. Menn myndu ráfa fram og aftur. Fyrirtæki hafa takmarkaða getu til að Miklu skiptir að nýju fyrir- tæki í líftækni sé stjórnað af fólki sem er reiðubúið að leggja nótt við dag fyrstu árin, segir bandaríski vís- indamaðurinn Leroy Hood. byrja með, ég á við fjölda starfsmanna, tæki og fjármuni." Mörg líftæknifyrirtæki hafa átt skamma ævi. Hvað telur Hood að þurfi að hafa í huga til að tryggja vöxt og viðgang nýs líftæknifyrirtækis? „Eg held að þau gefi upp öndina af tveim ástæðum. Annars vegar vegna þess að þau hafa ekki skýra framtíðarsýn og hafa ekki markað sér ákveðna stefnu í rannsóknunum og rekstrinum. Hins vegar skortir þau stjómendur sem era fær- ir um að fylgja stefnunni og hugmyndunum eftir. Síðari ástæðan er mjög oft mikilvægasti þátt- urinn í að fyrirtækið hrynur. Stjórnandi nýs fyr- irtækis þarf að vera afar hugmyndaríkur og hann þarf að vinna 18 stundir á sólarhring, alla daga vikunnar. Það er svo margt sem þarf að sinna fyrstu árin og starfið er því ógnvekjandi, ekki á færi allra. Býsna erfitt getur verið að finna fólk sem getur og vill taka að sér svona starf.“ Hann er spurður um genalækningar, era lík- legt að mönnum takist einhvern tíma að vinna bug á sjúkdómum með þeim? „Ég tel að mjög erfitt sé að ná tökum á gena- lækningum, enn er eftir að leysa tæknileg vanda- mál í tengslum við þau. Og þar að auki er hugs- anlegt að aldrei hafi hugmynd í líffræði einkennst af jafn miklu skrami og genalækning- ar. Fyrir tíu áram sögðu talsmenn genalækninga að þær væra svarið við öllum sjúkdómum og það álít ég að sé ragl. En ég held að tæknilegu vand- kvæðin verði leyst á næstu fimm til tíu áram og þá muni genalækningar geta komið að góðu gagni gegn vissum sjúkdómum. Þær verða samt sem áður ekki allsherjarlausnin sem sumir tals- menn hafa fullyrt að þær verði.“ Hood er spurður hvernig hann meti líkumar á að jafn fámenn þjóð og íslendingar verði öflug á sviði líftækni- og genarannsókna. „Ætli menn sér að ná árangri, og það skiptir ekki máli hvert viðfangsefnið er, verða þeir að átta sig á því hvað þeir hafa til ráðstöfunar fram yfir aðra. Ég er sannfærður um að fyrirtæki á borðviðUVS getur átt sér bjarta framtíð og grandvöllur er fyrir mörg fyrirtækd á sviði líftækni á íslandi þar sem menn nýta sér sérstöðu þjóðarinnar. Þá á ég meðal annars við að fyrir hendi era traustar upp- lýsingar um sjúkdóma langt aftur í tímann og til era söfn lífsýna, einnig að fyrir hendi er um- fangsmikil þekking á ættartengslum. Mestu skiptir að nýtt fyrirtæki fylgi markvissri stefnu, þá nýtast mannafli og peningar vel. Ég álít að fyrirtækin sem notfæra sér þessar aðstæður í landinu ættu að vera fleiri en tvö eða þrjú. Það væri hryggilegt ef þau yrðu ekki fleiri af því að þarna er um að ræða svo mikilvæga auð- lind og svo margvíslega, einstæða möguleika að eitt fyrirtæki gæti ekki hagnýtt sér nema lítið brot af þeim.“ íslendingar um allan heim Hann bendir á að hægt sé að stækka grunninn sem byggt er á með því að kanna aðstæður meðal fólks af íslenskum ættum í Kan- ada og annars staðar. Þá myndi fjöldi sjúkdómstilfella fara að verða svo mikill að hægt yrði að fást við veralega flókin viðfangs- efni. „En þúsund tilfelli er nógu mik- ið til þess að hægt er að gera ýms- ar athyglisverðar rannsóknir í líf- fræði og læknisfræði og niður- stöðurnar komið að miklu gagni, einnig með því að hagnýta upplýs- ingar um tíðni í fjölskyldum og fleira. Hægt væri að finna og greina t.d. gen sem valda brjóstakrabba- meini á íslandi og ég geri ráð fyrir að þau hafi sams konar áhrif á þró- un meinsins meðal annarra þjóða, í öllum samfélögum. Við vitum þegar að ákveðið gen, BRCA2, sem veldur brjóstakrabba á ís- landi gerir það einnig í öðrum löndum, munstrið er svipað. Þarna gæti því verið um mjög mikilvægar uppgötvanir að ræða. Niðurstöðurnar yrðu almenns eðl- is og því hægt að yfirfæra þær milli samfélaga." Brjóstakrabbamein og viðbrögð Dæmi era um að konur í Banda- ríkjunum hafi látið fjarlægja bijóstin vegna þess að þær reynd- ust vera með gen sem geta valdið brjóstakrabba. Síðan hefur með frekari rannsóknum komið í Ijós að áhættan í tengslum við genið er minni en fyrst var talið. Hvaða lærdóma má draga af þessu? „Ef vísindamenn fullyrða of mikið er það slæmt. Vandinn er sá að við getum greint sjúk- dóm án þess að geta læknað hann og hvemig á þá að nota greininguna? Margir era þess vegna á móti því að gerðar séu reglubundnar skoðanir meðal almennings til að uppgötva gen sem geta valdið sjúkdómi. Það eina sem hægt er að segja er að viðkomandi sé með slæmt gen, ákveðnar líkur séu á að hann eða hún fái sjúkdóminn um sextugsaldur. Kannski er hægt að gera ýmislegt til að reyna að spoma við honum en við vitum í reynd ekki með vissu hvort aðgerðirnar koma að gagni. Ein af þeim getur verið að fjarlægja bæði brjóstin, eins og var gert þegar konurnar reynd- ust vera með BRCAl eða BRCA2. Mér finnst þetta mjög harkaleg aðgerð til að fyrirbyggja sjúkdóm. Þetta djúp á milli greiningar og lækningar er óhjákvæmilegt þegar við beitum rannsóknum til að berjast gegn sjúkdómum og skilja hvað veldur þeim. En við verðum að gæta okkar vel í sam- skiptum við almenning þegar við eram á því stigi að geta greint en ekki læknað. Fólk verður að skilja til fulls hvernig upplýsingamar geta komið því að gagni en einnig valdið tjóni. Vandinn er að sumir vilja vita en aðrir ekki og því ekki til eitt einfalt svar við því hvað beri að gera. Læknar verða þess vegna að gera sér grein fyrir því hver sjúklingurinn er og aðstoða hann við að ákveða hvort hann vilji vita um áhættuna vegna slæmra gena. Fyrir suma er betra að vita en fyrir aðra er það hræðilegt áfall.“ Vitum við, almenningur, yfirleitt hvað átt er við þegar sagt er að áhættan sé svo og svo mikil í prósentum? ,Alnienningur hefur oftast ekki hugmynd um hvað þetta merkir. Þetta verða því læknar og ráðgjafar að vera færir um að útskýra vel,“ segir Leroy Hood. Ljósmynd/Kristján Jónsson Leroy Hood, prófessor við Washington-háskóla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.