Morgunblaðið - 16.03.2000, Page 75

Morgunblaðið - 16.03.2000, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 75 .........t 5r»l «5<M> f!4 SUM VÉUMENKl SKEMMTA|»”* SETUR ÖM|U« FRUMSVNING: BLOKUR i-i i.í iri! i kui i n i AII Mv.lOl S 'MSKUKU) 1 U Im ilfAiaL. - Girl, Interjjpted Sérstök lokuð forsýning kl. 8 í SAMVINNU vio Bylgjuna og Séd og Heyrt Dixielandsveit Árna Isleifssonar í einkennisbúningum sínum. Undravert landslag „Dixielandsins“ „Dixielandsveit“ Árna ísleifssonar ætlar sér að hrista allverulega upp í yngri kynslóðinni í kvöld með fjör- legri hamingjusveiflu á Grandrokk. Birgir Örn Steinarsson, sem er alltaf að reyna að elta hamingjuna uppi, skellti sér í heimsókn til Arna og fræddist um tónlistarstefnuna. Hamingjusamasta ríki jarðarinnar er lík- legast „Dixieland- ið.“ Þetta er land án landa- mæra sem teygir anga sína langt inn á yflrráðasvæði annarra ríkja og er líklegast eina landið (fyrir utan Disn- ey-land) sem á ekki hættu á sprengjuárás í kjölfarið. Landslag „dixielandsins“ kallar nefniiegá alltaf fram bros á vör með glettnum tónum og jákvæðu hugar- fari. Hermenn „dixielands- ins“ berjast heldur ekki með vopnum. „Það verður að vera trompet, klarinett, básúna og svo takturinn með nátt- úrulega,“ svarar Árni ís- leifsson þegar hann útskýrir tónlistarstefnuna. „Helst þarf að hafa banjó í stað gít- ars.“ Vöggu þessarar einstöku tónlistar er að finna í hjarta New Orleans-borgar í Bandarikjunum. Hún er djassskotin sveifla sem byggist aðallega á spilagleði. Árni sá sig tilneyddan að stofna „dixielandsveit" eftir heimsókn til mekka tónlist- arstefnunnar sem hann fór til fyrir tveimur árum. Það er eitthvað við „dixieland“- tónlist sem færir hlusta- ndanum gleðistrauma um líkamann. „Ég myndi segja að þetta væri gleðitónlist, þó svo að hún sé notuð í jarð- arfarir í New Orleans. Það væri kannski ekkert svo ★ /■ 'f.rrA ★ 'T'D-' ' ★ ;======= ALVÖRU BÍBí mDolbý z = SiaFRÆNT '== = I I l_l X '= ðLLUMSdLUMI Forsýnd í dag Bruce Willis Frá leikstjó-, „Tfsiinspotting’ Spennutryilirinri með teonani,- iVar- io alln hala bpðið cftu! Sýnd kl. 5.45, 8, og 10.15 www.laugarasbio.is slæm hugmynd að safnast til feðra sinna með þeim hætti. Ég vona bara að strákarnir spili þegar ég gef upp önd- ina,“ segir Árni og á þar við hina meðlimi „Dixielan- dssveitar“ Árna ísleifssonar. „Dixie“ og unga fólkið Hljómsveit hans mun leika í kvöld á veitingahús- inu Grandrokk á Smiðjustíg. Á föstudagskvöldinu flytja þeir sig svo upp á Akranes þar sem þeir spila á nýjum stað sem heitir Breið-Inn. Yngri tónlistarunnendur kynntust líklegast tónlistar- stefnunni í gegnum meistara eins og Louis Armstrong, sem lagði sína hönd á plóg til að gera lög eins og „When The Saints Go Ma- rching In“ ódauðleg. „Það sem mér finnst svo skemmtilegt er það að unga fólkið sem hefur ekkert heyrt svona músík hefur gaman af þessu líka, þetta er svona dálítið öðruvísi.“ Hljómsveitarmeðlimirnir koma alltaf fram í ein- kennisbúningum „dixiel- ands“-hersins og breiða út boðskapinn í gegnum allan hamaganginn. Eitthvað vill blaðamaður nú tengja æsku- minningar sínar um fyrstu kynni sín af tónlistarstefn- unni við teiknimyndir. „Nei, þetta er nú ekki þannig tónl- ist,“ leiðréttir Árni. „Það er ekki eins og þetta eigi að vera einhver skrítla.“ Súludansmærin Dixie „Annars er ég alltaf að bíða eftir því að nektarstaðir bæjarins bjóði upp á dixiela- ndið. Þetta er músík sem passar vel við súludans,“ til- kynnir Árni hlæjandi og veldur því að blaðamanni svelgist á vatnssopanum sín- um. „Það var oftast notast við dixielandið þegar þetta var að byrja úti. Það voru yfirleitt svona hljómsveitir sem spiluðu undir svona skemmtanir." Það er ekki erfitt að sjá fyrir sér þá all- sérstæðu stemmingu sem gæti myndast við þannig samruna, en myndu meðlim- ir „Dixielandsveitar“ Árna ísleifssonar slá til ef jafn undarleg bón bærist þeim^ „Alveg umsvifalaust. Okkur finnst þessar stelpur ekkert ljótar, og við værum hvort eð er ekkert að hugsa um það. Þó ég verð að játa það að ég hef ekki komið inn á svona stað ennþá.“ Það er jafnvel umhugsun- arefni hvort hamingjuneist- inn í tónlistarstefnunni sé það kraftmikill að fólk sé hreinlega knúið til að rífa af sér fötin af kæti. „Já, það kom einu sinni fyrir mig þegar ég var að spila dixiel- and á Hótel Borg með ann- arri hljómsveit árið 1974 að ein kona var byrjuð að rífs^- sig úr og var orðin nær nak- in. En svoleiðis fyrirbæri þekkjast nú líka í venjulegri popptónlist,“ segir Árni hóg- vær að lokum. rAðhústorgi 'ÞIX.VR DOUJ\ FKÁ f LRNST/ JK í. ; Shawskank RltDEMPTION ★★★ Simi462 3500 ■ Akureyi: • vovw ncil.iS.-'&orgarbio SiM Aiati sofiLtabi aiMaftabi swLtftifci swaftHífi iasr NVJAtaf) Thx Keflavik - simi 421 1170 - samfilm.is Sýnd kl. 8. «1«™.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.