Morgunblaðið - 07.04.2000, Blaðsíða 3
+
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2000 C
3
_*
IÞROTTIR
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
i Andreassen, Andrea Atiadóttir,
gbjörn Óskarsson þjálfara: Ingi-
lannesdóttir.
og
jum
Vissi að myndi snúast okkur i hag
iiÉg man ekki hvað ég sagði, mig
minnir að ég reyndi að segja þeim
að við værum ekki að spila eins og
eðilegt væri - yrðum að laga vörn-
ma,“ sagði Sigbjörn Óskarsson,
þjálfari IBV, eftir leikinn. „Við fór-
um að spila eðlilega vörn og unnum
boltann sem skiiaði okkur hraða-
upphlaupum Það skilaði okkur fjór-
um mörkum á mínútu og þá snerist
leikurinn okkur í hag en ég var
reyndar viss um að hann myndi
snúast fyn- eða síðar. Það var auð-
vitað taugaveiklun og stundum eins
og boltinn væri sjóðandi heitur hjá
báðum liðum, sem er eðlilegt þegar
mikið er í húfí og mikil pressa fyrir
fullu húsi húsi stuðningsmanna.“
Þjálfarinn sagðist aldrei hafa
verið vafa um að liðið færi langt í
mótinu, jafnvel alla leið. „Við tók-
urn þetta í þremur leikjum eins og
ég bjóst við. Ég sagði að við hefðum
lið til að fara alla leið ef allir yrðu
heilir og legðu eitthvað á sig og það
gerðu þær. Svo er á bak við okkur
frábært fólk sem starfar í kringum
þetta því rekstur á svona liði með
ullar þessar ferðir og fjóra útlend-
inga er viðamikill, svo segja má að
þetta fólk eigi líka titilinn skilið.
Það hefur líka verið mikið um-
stang í Eyjum útaf leiknum. Þú
ferð ekki út í búð án þess að sé
klappað á bakið á þér og lagt til
málanna, svo að maðui- er hvergi
óhultur. Þótt þetta sé gott getur
það líka truflað rétt fyrir leik því
sálfræðin spilar svo mikið inn í
svona leikjum."
+
Meistaralið ÍBV í handknattleik kvenna
Leikm.
Nr. Staða Aldur
Leikið
með ÍBV
Með öðrum liðum
Árangur og titlar
Vigdís Sigurðardóttir 12 Markmaður 24 ára Uppalin í ÍBV Haukar (1995-99) íslandsmeistari 1996 og 1997 og bikarm. 1998
Luckrecya Bokan 1 Markmaður 24 ára Frá 1998 Zagreb í Króatíu Komst tvisvar í úrslit í Króatíu
Ingibjörg Jónsdóttir 6 Lína (Fyrirl.) 31 árs Uppalin í ÍBV Stjarnan (1992-93) í bikarúrslitum með ÍBV árið 1994
Anna Rós Hallgrímsdóttir 17 Lína 18 ára Uppalin í ÍBV
Mette Einarssen 2 Miðja 21 árs Frá 1999 Larvik Handball klub í Noregi . Noregsmeistari með liði 19 ára og yngri
Hind Hannesdóttir 10 Miðja 18 ára Uppalin í ÍBV Unglingalandslið (18 ára og yngri, 16 ára og y.)
Amela Hegic 8 Vinstri skytta 26 ára Frá 1998 Split í Króatíu
Andrea Atladóttir 15 Hægriskytta 31 árs Uppalin í ÍBV Víkingur ("90-92), Haukar ("96-97) Islandsmeistari 1992 og 1997 og leikið í landsl.
Anita Andreassen 7 Hægra Horn 27 ára Frá 1999 Larvik Handball klub (1994-98) Noregsmeistari '95, '96, '98 og bikarm. '96, '98
Bjarný Þorvarðardóttir 4 Hægra horn 16 ára Uppalin IÍBV
Guðbjörg Guðmannsdóttir 13 Hægrahorn 19 ára Uppalin í ÍBV Unglingalandslið (18 ára og yngri, 16 ára og y.)
Eyrún Sigurjónsdóttir 9 Vinstra horn 18 ára Uppalin f ÍBV
Keflavíkurstúlkur
standa vel að vígi
KR-stúlkur tóku á móti Keflavík í
gærkvöldi í þriðja úrslitaleik lið-
anna um íslandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik. Eftir
jafnan og spennandi
Bþmason leik voru það gestim-
skrífar ir sem fóru með sig-
ur af hólmi, 68:73, og
er staðan í viðureignum liðanna því
orðin 1:2, Keflavíkurstúlkum í hag.
Standa þær nú vel að vígi fyrir næsta
leik sem leikinn verðui- á þeirra
heimavelli þar sem þær geta tryggt
sér íslandsmeistaratitilinn.
Skiptum
yfir í árás-
arham
„VIÐ breyttum um stefnu í leiknum og
skiptum úr vamarham í árásarham,"
sagði Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði
Eyjaliðsins. „Þetta var mjög erfiður
leikur, sérstaklega þegar við voram
komnar fjórum mörkum undir, en þá
náðum við tveimur hraðaupphlaupum,
sem kom okkur á bragðið á ný.“
Ingibjörg sagði að liðið hefði einsett
sér að ná Qórða sætinu í deildinni, allt
annað væri bara bónus, en svo náði
það þriðja sætinu. „ Við þurftum síðan
að hafa mikið fyrir því að komast í úr-
slitaleikinn, sérstaklega var erfitt að
eiga við FH því það vofði yfír okkur
grýla eftir að þær höfðu leikið okkur
illa í deildarleikjum okkar. Það hefúr
verið mikið í kringum þessa síðustu
leiki og stundum hugsaði maður hvort
ekki væri betra að vera uppi á landi
því það var svo erfítt að halda einbeit-
ingunni. Við fórum því til sálfræðings,
sem gat hjálpað okkur að halda ein-
beitingu á lcikjunum sjálfum og nú
getum við gengið kátar um göturaar.“
Þær voru fljótar að ganga á lagið
„Þetta var mikill leikur vama og
líka mikið um mistök en við höfðum
yfirhöndina, sem gerir það ennþá sár-
ara að tapa þessu niður því við vorum
Qórum mörkum yfír þegar við misst-
um einbeitinguna og þær voru fljótar
að ganga á lagið,“ sagði Ágústa Edda
Björasdóttir fyrirliði Gróttu/KR eftir
leikinn.
En fannst þér ekki erfítt að koma til
Eyja með tvö töp á bakinu?
„Það skipti engu máli, við ætluðum
að vinna þennan leik fyrst til að fá
heimaleik og sjá svo til þegar kæmi að
næsta leik. Annars ættum við að vera
sáttar við gengi okkar í vetur, því við
komumst í úrslit í tveimur stærstu
leikjum vetrarins. í bikarleiknum var
heppnin ekki með okkur en við áttum
mikið í síðustu tveimur leikjunum
gegn IBV og áttum hreinlega að vinna
þá. Að Iokum vil ég óska Eyjastelpun-
um til hamingju, þær áttu skilið að
vinna, eins og þær spiluðu."
Keflavíkurstúlkur hófu leikinn af
krafti og þegar fyrri hálfleikur var
hálfnaður höfðu þær náð góðri for-
ystu, 11:17. Þá tóku KR-stúlkur við
sér og sigu fram úr með mikilli bar-
áttu og var staðan í hálfleik þeim í vil,
36:33. í síðari hálfleik skiptust Uðin á
að halda forystunni. Eftir æsi-
spennandi lokamínútur voru það þó
Keflavíkurstúlkur sem stóðu uppi
sem sigurvegarar enda héldu þær
einbeitingunni í lokin þegar mest á
reyndi. Lokatölur voru 68:73 og mikil-
vægur sigur gestanna í höfn.
„Það var fyrst og fremst mjög góð-
ur varnarleikur sem skóp sigur okk-
ar. Sóknarleikurinn var hins vegar af-
ar kaflaskiptur. Þetta var gríðarlega
mikilvægur sigur og nú er sjensinn
okkar og við ætlum okkur svo sannar-
lega að grípa hann,“ sagði Kristinn
Einarsson, þjálfari Keflavíkur, eftir
leikinn.
„Það sem khkkaði í kvöld var vam-
arleikurinn. Þær voru að fá allt of
mikið af galopnum skotum auk þess
sem þær tóku allt of mikið af sóknar-
fráköstum. Við munum mæta dýrvit-
laus til næsta leiks og þar verður lag-
að það sem þarf að laga,“ sagði Óskar
Kristjánsson, þjálfari KR-stúlkna,
eftir leikinn.
Bestar í hði Keflavíkur voru
Christy Cogley, Erla Þorsteinsdóttir,
Alda leif Jónsdóttir og Bima Val-
garðsdóttir, sem skoraði 4 af 9
þriggja stiga körfíim hðsins í leiknum.
I hði KR bar Deanna Tate af, en
Guðbjörg Norðfjörð var góð i fyrri
hálfleik.
Vialli opn-
ar sjóði
Chelsea
GIANLUCA Vialli, knatt-
spyrnustjóri Chelsea, und-
irbýr kaup á þremur leik-
mönnum frá ítalska liðinu
Inter Milan. Leikmennirn-
ir eru sagðir kosta enska
félagið um þijá milijarða
ísl. króna. Leikmennirnir
sem um ræðir heita: Javier
Zanetti, 26 ára, Nicola
Ventola, 21 árs, og mark-
vörðurinn Sebastian Frey,
20 ára. Zanetti og Ventola
eru sagðir kosta um 1,2
milljarða ísl. króna hvor en
Frey á um 700 milljónir.
Vialli ræðir við fulltrúa
ítalska liðsins í næstu viku
en hann gælir við að semja
um kaup á einum leik-
manni fyrir lok leiktíðar.
Jens Jeremies í landsleikjabann
JENS Jeremies, landsliðsmaður
Þýskalands og leikmaður Bay-
ern MUnchen, var í gær settur í
eins leiks landsleikjabann fyrir
að gagnrýna þjálfarann Erik
Ribbeck, sagði landsliðið mátt-
laust undir hans stjóm. Ribbeck
var búinn að banna leikmönnum
að tjá sig um landsliðið og sér-
staklega eftir að einn leikmanna
tjáði sig um atvik í búningsklef-
anum þegar Þjóðveijar léku
gegn Hollandi. Sá leikmaður
hefur ekki ennþá fundist en hans
er leitað.
Jón Kristjánsson spáir í spilin í meistarabaráttu karla
Afturelding og Fram
mætast í úrslitum
JÓN Kristjánsson var sannspár um hvaða lið kæmust í undan-
úrslit karla í handknattleik þegar hann spáði fyrir um úrslit leikja
í átta liða úrslitum á dögunum. Morgunblaðið leitað því á ný til
Jóns og bað hann um að spá um hvaða lið kæmust í úrslit. Jón
var ekki í vandræðum með það, sagði að Afturelding og Fram
myndu leika til úrslita. í kvöld verða fyrstu ieikir liðanna í undan-
úrslitum en þar leika þau fjögur lið sem urðu í efstu sætunum í
deildarkeppninni.
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson
Jón spáði réttum úrslitum í viður-
eign KA og FH og Fram og
Stjömunnar en Eyjamenn náu ekki
að vinna leik á móti
Haukum eins og Jón
taldi liklegt en HK
náði hins vegar að
vinna leik gegn
UMFA eins og Jón lét raunar í veðri
vaka þótt hann spáði 2:0 fyrir
meistarana.
„Það verður sífellt erfiðara að spá
en fyrsta tilfinning mín fyrir leik Aft-
ureldingar og Hauka er að Mosfell-
ingar sigri 2:1 og fari í úrslit,“ sagði
Jón og segist í rauninni ekkert hafa
fyrir sér í málinu.
„Haukar hafa leikið mjög vel síð-
ari hluta mótsins en Aftureldingar-
menn hins vegar ekki verið sannfær-
andi enda hafa lykilmenn verið
meiddir. Samt tel ég UMFA sigur-
stranglega, en ég held að fyrsti leik-
urinn verði lykilleikur. Takist Hauk-
um að sigi-a í honum getur allt gerst.
Trúfan verður ekki með og það mun-
ar um minna í vörninni.
Haukar eru með fjölbreyttan og
reyndan hóp leikmanna og það er
þeirra helsti kostur. Mosfellingar
eru hins vegar með sterkari einstak-
linga og þá sérstaklega útilínan hjá
þeim, Bjarki og Litháarnir tveir.
Komist Afturelding í gegnum fyrsta
leikinn án Trúfans kemst hún örugg-
lega áfram.
Haukar eru seigh- og skynsamir
og þeir geta komist langt á því. Ég á
von á skemmtilegum leikjum þar
sem hraðinn fær að njóta sín og það
verður örugglega hamagangur og
læti í þessu. Bæði lið eru með góða
heimavelli, gamlar ljónagryfjur sem
verða troðfylltar," sagði Jón.
Hann segir að KA hafi komið á
óvart með því að komast áfram gegn
FH enda hafi ástandi leikmanna-
hópsins hrakað frá því hann spáði.
„Hreyfanleiki hópsins minnkaði en
reynslan jókst mikið,“ segir Jón um
að Erlingur bróðir hans fékk að leika
meira en venjulega vegna forfalla í
liðinu og Atli þjálfari kom einnig inn
á.
„Ungu strákarnir í KA sýndu svo
ekki verður um villst að þeir eru full-
ir vilja og metnaðar og miklir keppn-
ismenn. Fram er með sterkara lið og
kemst i úrslitakeppnina eftir þrjá
leiki við Akureyringa, Fram nær
sem sagt að vinna annan leikinn fyriri
norðan.
Þetta segi ég vegna þess að Safa-
mýrarpiltar eru með sterka erlenda
leikmenn og þrjá aðra sem eru í
svokölluðum landsliðsklassa. Að öllu
jöfnu eiga Framarar að vera sterkari
en samt getur svo sem allt gerst í
þessu eins og alltaf í íþróttunum,"
segir Jón.
Hann segir þessa viðureign verða
nokkuð öðruvísi en viðureignir
UMFA og Hauka. „Framarai’ hafa
leikið nokkuð breytilega vörn, oft
með einn fyrir framan en ekki endk
lega á sama stað. KA hefur verið ao
bakka í flata vörn eftir að hafa verið
mikið í 3-2-1 í vetur og ég held að
þeir fari raunar í þá vöm á móti
skyttum Fram.
Þessir leildr verða ekki eins hraðir
og hinir og ég á von á meiri mistök-
um og meiri maður á mann átökum,"
segir Jón. 'f