Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 37 LISTIR Tilbrigði við kvöldmáltíð MYNDLIST II a 11 g r í m s k i r k j a MÁLVERK- SIGURÐUR ÖRLYGSSON Opið á tíma kirkjunnar. Til 1. júní. Aðgangur öllum opinn. MÁLARINN Sigurður Örlygsson er enn á ferð og nú með fjögur stór málverk í Kirkjuhúsi Hallgríms- kirkju, viðfangsefnið sótt í Kvöldmál- tíðina sem hæfir tímasetningunni, sett upp í fostubyijun, páskar í nánd og lýkur fyrir hvítasunnu, himnaför Krists. Við sáum síðast til listamannsins í litlum myndum í húsakynnum SPRON í Mjódd og þá var hann aldrei þessu vant með myndverk í minni stærðunum, féllu inn í húsa- kynnin þótt ekki hafi þau verið sniðin fyrir þau. Mestu skiptir að þessi kú- vending frá risaflekunum vakti óskipta athygli listunnenda og við- skiptavina bankans og mun sýningin hafa gengið framar öllum vænting- um. Málarinn sýndi þar og sannaði að hann þarf ekki endilega yfirvíddir til að njóta sín og að auk engin útbrot, enga aðskotahluti né skapalontækni. Þessu hef ég löngum haldið fram og sé ekki betur en að hann staðfesti það með miklum tilþrifum í helgimynd- unum, sem hafa ekki síður vakið at- hygli og sterk viðbrögð kirkjugesta en hinar í peningastofnuninni. Óneitanlega setja flekarnir mikinn svip á anddyrið og eru með því áhrifamesta sem þar hefur ratað á veggi og að auk táknrænasta í mörg- um skilningi. Frá þeim stafar ekki einasta kraftbirtingur helgisögunn- ar, heldur sækja sitthvað til nútím- ans um leið og þær segja margræða sögu af málaranum sjálfum og þeim sem næst honum standa. Á þann veg öðlast þær sálrænar víddir og tíminn verður afstæður, stendur bæði kyrr og er á hreyfingu, sem er í tengslum við margt í hugmyndafræði mynd- listarinnar á seinni árum og síðnúið, postmódernismann. Hér eru sagðar sögur í bland við yfir- og andraun- veruleikann, surrealismann, sem eru þó meira sjónræns og heimspekilegs eðlis en bókmenntalegs, ásamt því að hvunndagurinn og nánasta umhverfi málarans verður honum helst að upp- ljómun. En hefur það ekki verið svo frá fyrstu tíð helgimálverksins, að gerendurnir sóttu sér fyrirmyndir í næsta umhverfi, ekki eru andlitin skálduð og samtíðarmenn þeirra myndu á sama hátt kenna vini og kunningja sína í þeim, jafnvel fjöl- skyldumeðlimi málaranna, börn þeirra, eiginkonur og foreldri. Að ekki þurfi að leita langt yfir skammt að myndefni í seinni tíma myndlist sannaði Alberto Giacometti einna áþreifanlegast í höggmyndum sínum, teikningum og málverkum, þar helg- ar vægi myndefnisins ekki árangur- inn heldur hin hreinu myndrænu átök. Hið sama á sér stað í málverk- um Sigurðar, sem eru afar efnis- kennd, vel útfærð og búa yfir sterkri og hreinni trúarvísun án nokkurrar skinhelgi né helgigljáa. Hann gengur hreint og hiklaust til verks, brýtur brýr að baki en heldur sig við sína myndrænu sannfæringu en þar vill hann standa báðum fótum á jörðinni. Bragi Ásgeirsson Nýjar bækur • ÚT ER komin ljóðabókin Orð og mál eftir Björn Sigurbjörnsson. Þetta er fyrsta bók Björns, sem búið hefur í Danmörku um langt ára- bil og verið þar starfandi prestur. Á síðustu árum hefur hann fengist nokkuð við þýðingar og önnur rit- störf. Þrátt fyrir langa fjarvist frá heimahögum hefur Bjöm haldið góð- um tengslum við ættjörð sína og móðurmál. Viðfangsefni hans spanna vítt svið en áberandi eru vangaveltur skáldsins um tungumál og heimaland og togstreituna í brjósti þess sem á sér tvö lönd og tvö mál. Ljóð Björns eru einlæg og pers- ónuleg en um leið ljúf og kímin, segir í kynningu. Orð ogmál er 105 bls., prentuð bjá Odda hf. Wilfried Bullerjahn hann- aði bókarkápu en útgefandi er Vaka- Helgafell. leiðbeinandi verð er 1.990 kr. Kvennakór Reykjavíkur í Langholti VORTÓNLEIKAR Kvennakórs Reykjavíkur, Vorkvöld í Reykjavik, verða í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30 í Langholtskirkju. M.a. verða flutt íslensk þjóðlög og lög eftir Sigfús Halldórsson. Gestur tónleikanna er Szymon Kuran fiðlu- leikari. Kirkjur í Vesturheimi RÖNG mynd birtist með mynda- texta í umfjöllun um sýninguna Kii-kjur í Vesturheimi í blaðinu á sunnudag. Um leið og rétt mynd birtist með réttum texta er beðist velvirðingar á mistökunum: Lúterska kii'kjan Thingvalla er staðsett í Pembina-sýslu um 5 km suður af Mountain í Norður-Dakota- ríki. Fyrir framan kirkjuna er stórt minnismerki um Káin, Kristján Ní- els Júlíus. Kirkjan er sveitakirkja og stendur ein og afskekkt þar sem áð- ur var lítið samfélag, Eyfjord. Höfum flutt okkur um set! Skrifstofa og afgreiösla Bílastæðasjóðs Reykjavíkur er nú á Hverfísgötu 14,101 Reykjavík. Nýtt símanúmer er 585 4500 en faxnúmer er óbreytt: 561 1248 Afgreiðslan er opin frá kl. 10:00 -16:15 alla virka daga. Bflastæðasjóður Frábært páskatilboð! Innifalinn gæðabíll, ótakmörkúð ánægja og frábær ferð. KtUNBMR , Car Rental Við erum með frábært tilboð á úrvalsbifreiðum. Skelltu þér í ferðalag og njóttu lífsins í frábærum bíl. Hafðu samband og við leiðum þig í allan sannleikann. Hertz býður mikið og gott úrval Toyota bifreiða. Afgreiðslustaðir: Reykjavík, Isafjörður, Akureyri, lígilsstaðir, I löfn, \ esintaunaeyjar og á kellax íkurilugvelli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.