Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 4
500 vélar á sólarhring með 150.000 farþega NÝTT umferðarmet var slegið á ís- lenska úthafsflugstjómarsvæðinu í fyrradag er 498 flugvélar fóru þar um á einum sólarhring. Reikna má með að um 150.000 farþegar hafi verið um borð í þessum flugvélum. Ástæðan fyrir þessari miklu flugumferð á svæði Islands eru hagstæðir austlæg- ir háloftavindar en flugumferð yfir Norður-Atlantshafi sveiflast milli norðurs og suðurs eftir veðrakerfum. Petta er fjölgun um 24 flugvélar frá síðasta metdegi, er var 10. júlí 1998, og 268 fleiri vélar en á meðaldegi und- anfama tólf mánuði. Eitt af einkennum umferðarinnar á íslenska svæðinu yfir sólarhringinn er að yfirgnæfandi meirihluti flugferl- anna liggur í vesturátt, frá Evrópu til Norður-Ameríku. Flugvélamar byrja að streyma inn í austurhluta svæðis- ins um kl. 11 fyrir hádegi en straum- rás þeirra lýkur yfirleitt um kl. 16 síð- degis. Því stendur háannatíminn í aðeins um fimm klukkustundir. Síðan snýst flæði umferðarinnar við og ligg- ur í austurátt, frá Norður-Ameríku til Evrópu, á tímabilinu frá kl. 22 að kvöldi til kl. 7 næsta morgun. Þegar vindáttir í háloftunum á ís- lenska úthafsflugstjómarsvæðinu era hagstæðar fýrir umferð í vestur- átt era þær að sama skapi óhagstæð- ar fyrir flugvélamar sem era að fara í austurátt, frá Norður-Ameríku til Evrópu, enda vora aðeins 68 á þeirri leið í fyrradag. Hins vegar vora hvorki meira né minna en 86% heild- aramferðarinnar, eða 430 flugvélar, á leið vestur um haf, frá Evrópu til Norður-Ameríku, flestar á aðeins fimm kiukkustunda tímabili. 85 þúsund vélar flugu um svæðið í fyrra Síðastliðið ár fóra samtals 85.005 flugvélar um íslenska úthafsflug- stjómarsvæðið, sem er 2% aukning miðað við árið áður. Flugumferð á ís- lenska úthafsflugstjómarsvæðinu hefur rúmlega tvöfaldast á síðastliðn- um fjórtán áram eða frá árinu 1984. Reiknilíkön gera ráð fyrir að flugum- ferðin árið 2010 verði orðin helmingi meiri en núna, eða í kringum 170.000 flugvélar á ári. Um þriðjungur allra flugvéla sem leið eiga yfir Norður-Atlantshaf fara um svæði íslands. Fyrir utan flug- stjómarmiðstöðina i Reykjavík þjóna fimm aðrar flugstjómarmiðstöðvar umferð í loftrýminu yfir Norður-Atl- antshafi. Þær era Bodö í Noregi, Prestwick }' Skotlandi, Gander í Kan- ada, New York í Bandaríkjunum og Azor-eyjar. íslenska úthafsflug- stjórnarsvæðið er meðal hinu stærstu í heiminum, samtals 5,3 milljónir fer- kílómetra, en það svarar til rúmlega helmings af flatarmáli Bandaríkj- anna. Svæðið nær frá norðurpólnum suður að ströndum Skotlands í suðri, upp undir strendur Kanada í vestri að Noregsströndum í austri. Svo tekið sé dæmi þá er Boeing 747-risaþota að meðaltali um þrjár og hálfa klukku- stund að fljúga þvert yfir svæðið frá austri til vesturs. Algengustu flug- leiðir flugvéla á íslenska úthafsflug- stjómarsvæðinu árið 1998 vora í eft- irfarandi röð: London-Los Angeles, London-San Francisco, London- Chicago, Frankfurt>-Chicago, Kaup- mannahöfn-Keflavík, Keflavík- Kaupmannahöfn, London-Vancou- ver, San Francisco-London, Los Angeles-London, Vancouver-Lon- don. Rekstrartekjur íslendinga af flugumferð á íslenska úthafsflugum- ferðarsvæðinu í ár era áætlaðar um 1,5 milljarður króna. Samkvæmt út- reikningum Hagfræðistofnunar Há- skóla íslands era efnahagsleg áhrif af starfsemi alþjóðaflugþjónustunnar ígildi aflaverðmætis fimm frystitog- araáári. Þjónusta númer eitt! Til sölu VW Passat 4x4 turbo diesel station 5 gíra grár nýskráður 29.12.1998 ekinn 45.000 km. Ásett verð 2.090.000. ath. skipti á ódýrari. Nánarí upplýsingar hjá Bílaþingi Heklu, sími 569 5500. Opnunartimi: Mánud. - föstud. kl. 9-18 laugardagar kl. 12-16 BfLAÞINQ HEKLU Ni'Hicr ciii í noivJum bdvm! Laugavegi 174,105 Reykjavík, sfmi 569-5500 www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is h 4 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000_______________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjómenn and- mæla verkfalli EKKI hefur verið boðað til fundar með starfsmönnum fiskimjölsverk- smiðja á Norður- og Austurlandi og vinnuveitenda að nýju en þessir aðilar hittust á fundi hjá rfldssáttasemjara sl. laugardag. Sigurður Ingvarsson, formaður Alþýðusambands Austur- lands, segir að mál hafi skýrst á fund- inum sl. laugardag án þess að hann hafi leitt til niðurstöðu. Hann kveðst bjartsýnni nú en áður að menn finni flöt á þessu máli. Hann segir að um- ræðan hafi verið opnari milli delluað- ila og það hljóti að skila mönnum áfram. Sigurður kveðst eiga von á því að deiluaðilar setjist niður aftur í þessari viku og ræði málin. Þórður Jónsson, framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs SR-mjöls, er al- gerlega á öndverðum meiði og er svartsýnn um lausn málsins. Þórður segir að verkfallið sé ekki farið að snerta beinlínis hagsmuni SR-mjöls þar sem starfsemin sé með minnsta móti nú. Búið var að vinna allt hráefni áður en til verkfalls kom. „Þetta er hins vegar alvarlegt mál og það geng- ur seint að leysa það,“ segir Þórður. Hann telur að þegar sé búið að bjóða starfsmönnum loðnuverksmiðj- anna það sem hægt er að bjóða þeim og lítil hreyfing hafi verið í þessu máli. Hann kveðst ekki bjartsýnn með lausn deilunnar og hún hafi valdið sér miklum vonbrigðum. „Utgerðir og verksmiðjur era reknar við mjög erf- iðar ytri aðstæður, gríðarlega lágt af- urðaverð, hátt olíuverð og það er mik- ið tap á rekstrinum. Á þeim tíma fara menn fram með háar launakröfur og hefja verkfall," segir Þórður. Sjómenn lýsa óánægju með vinnubrögð verkalýðsfélagsins Magnús Bjamason, framkvæmda- stjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar, segir að bræðslan hafi stöðvast. Ekk- ert hráefni sé í vérksmiðjunni en skip era úti og reiknað með því að þau landi annars staðar. „Mér líst illa á þetta. Það er sérstaklega erfitt núna vegna þess að útgerðin er að afla ís- lendingum veiðireynslu úr kolmunna- stofninum vegna þess að hann verður kvótasettur á næstunni. Það má reikna með að okkar hlutur skerðist ef veiðar stöðvast vegna verkfallsins,“ segir Magnús. Hann segir að það liggi á að menn leysi deiluna en þar með sé ekki sagt að gengið verði að öllum kröfum. Mik- ið beri á milli aðila. Áhafnir Jóns I Kjartanssonar og Hólmaborgar hafe | sent Verkamannafélaginu Árvakri á • Eskifirði bréf þar sem lýst er megnn * óánægju þeirra með vinnubrögð fé- lagsins og ásetning þess um að koma í veg fyrir að skipin fái að landa. Þeir segja að verkfall starfsmanna í loðnu- verksmiðjunum sé sjómönnum alger- lega óviðkomandi og að áframhald- andi vera þeirra í félaginu ráðist af viðbrögðum Árvakurs til málstaðar sjómannanna. Sigurður Ingvarsspn, j sem jaíhframt er varafbrmaður Ár- i vakurs, segir að menn séu furðu lostnir yfir viðbrögðum sjómanna. * „Þetta höfum við aldrei upplifað í ára- tuga baráttu. Við munum á engan hátt bregðast við þessu. Þeir senda þetta á eigin ábyrgð og munu væntan- lega svara sjálfir fyrir það. Við erum einfaldlega að framfylgja lögum og samþykktum félagsins og föram að lögum í þessari vinnudeilu," segir Sig- urður. Hann kveðst ekki trúa því að j sjómennimir gangi úr Árvakri heldur séu bréliösett. fram í hita leiksins. —------------- Sölusýning Sól- heima í Perlunni 50% meiri sala en áætlað var MUN meiri aðsókn var að sýning- unni Sól í borg, sem vistheimilið Sól- heimar í Grímsnesi stóð fyrir í Perl- unni um síðustu helgi, en búist var við, að sögn Óðins Helga Jónssonar, framkvæmdastjóra Sólheima. Sýn- ingin var opin frá föstudegi fram á sunnudag og sýnd var starfsemi heimilisins og varningur sem þar er f framleiddur. Óðinn Helgi segir að | sýningargestir hafi verið mun fleiri p en gert hafi verið ráð fyrir. Hann seg- ir að sýningin hafi verið einn af stærri viðburðunum á 70 ára afmælisári Sól- heima. Salan á sýningunni hafi farið um 50% fram úr áætlun. Mest var keypt af handverki, hljóðfærum, kertum, grænmeti og sumarblómum. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Fjölmenn danssýning í Laugardalshöll Um 1.500 börn á aldrinum sex til tdlf ára tóku þátt í danssýningu í Laugardalshöllinni á laugardag- inn, en danskennarar sem annast hafa danskennslu í grunnskdlum Reykjavíkur í vetur stdðu fyrir sýningunni. í fréttatilkynningu segir að þetta sé stærsta danssýn- ing sem haldin hafi verið hér á landi. Nýtt met slegið í umferð um íslenska flugstjórnarsvæðið Ratsjármyndin sýnir þær 100 flugvélar sem voru innan ratsjárdrægis á sama augnabliki á íslenska flugsljdrn- arsvæðinu í fyrradag. Ratsjárskjámyndin er grundvölluð á tölvugögnum frá 6 ratsjárstöðvum en sett fram á einni og sömu myndinni og er þetta í fyrsta skipti sem slík mynd birtist í fjölmiðli. Slasaðist á Þingvöllum STÚLKA slasaðist eftir að hafa dottið aftur fyrir sig af handriði á útsýnispalli við Lögberg á Þingvöll- um um hádegið í gær. Að sögn lög- reglunnar á Selfossi féll hún tæpa tvo metra niður og var flutt með sjúkrabíl á slysadeild í Reykjavík. Þá var ekið á 7 ára gamlan dreng sem var að fara yfir gangbraut á grænu ljósi á Selfossi rétt eftir klukkan 14 í gær. Drengurinn slas- aðist ekki alvarlega en marðist að sögn lögreglunnar á Selfossi og var fluttur á heilsugæslustöðina í bæn- um til rannsóknar. 11:45 »*» t»» WSt 58144:113 H StttÞSg »1 m. FO.IW 8t QFF fitt riUÍS: QfT ®i«t te-tst i W»OSt 2 nin RMÍSC: 4J2 m ' Htft «38 3583 F3S8 58 5435 F3S8 45í 'V 34SS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.