Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 51

Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐ JUDAGUR 23. MAÍ 2000 51 ÞORGERÐUR JÓNSDÓTTIR + Þorgerður Jóns- dóttir fæddist að Syðri-Hömrum 22. apríl 1912. Hún lést á elliheimilinu Grund 8. maí síðast- liðinn. Foreldrar Þorgerðar voru Jónína Þorsteins- dóttir frá Berustöð- um, f. 9. október 1883, d. 3. maí 1970, og Jón Jónsson frá Hárlaugstöðum, f. 2. mars 1877, d. 5. jan- úar 1954. Systkini Þorgerðar voru: Guðrún Jónsdóttir, f. 14. maí 1913; Guðlaug Jónsdóttir, f. 8. júní 1914, d. 19 ágúst 1994; Jó- hanna Jónsdóttir, f. 10. nóvem- ber 1915; Þórhallur Jónsson, f. 4. októ- ber 1917, d. 15. september 1929; Þorsteinn Jónsson, f. 8. október 1918, d. 17. ágúst 1919; Aðalsteinn Jónsson, f. 22. ágúst 1920, og uppeldisbróðir Hilmar Bjarnason, f. 23. ágúst 1930. Þorgerður bjó að Sumarliðabæ til 1960, er hún flutti til Reykjavíkur. Síðustu æviárin bjó hún að Melhaga 9. Útför Þorgerðar fer fram frá Neskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Með nokkrum orðum langar okkur að minnast frænku okkar Þorgerðar Jónsdóttur, sem lést á elliheimilinu Grund 8. maí síðast- liðinn. Frá því við systkinin mun- um eftir okkur var Gerða, eins og hún var alltaf kölluð, einn af föstu punktunum í tilveru okkar. Alltaf ríkti mikil eftirvænting hjá okkur systkinunum til jólanna vegna þess að þá var von á Gerðu frænku yfir hátíðarnar. Gerða var alltaf svo hress og kát og hafði alltaf tíma fyrir okkur krakkana, t.d. að spila, lesa fyrir okkur eða eitthvað annað sem okkur þótti skemmtilegt. Ekki má gleyma sumardeginum fyrsta, því þá var alltaf farið í matarboð til Gerðu, en þar uppgötvuðum við að það er hægt að verða saddur af ís. Elsku Gerða, við minnumst þín með hlýju og virðingu og hafðu þökk fyrir allt og allt. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Systkinin frá Sumarliðabæ, Jóhanna, Sigparður, Guðrún og Steinn Þórhallsbörn. Elsku Gerða, Ég þakka þér fyrir samveru- stundirnar. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa.) Þín Andrea Óskarsdóttir. Nú þegar komið er að leiðarlok- um hjá henni Gerðu, langar mig að þakka henni fyrir samfylgdina í þau nærri 26 ár sem við höfum þekkst. Ég man okkar fyrsta fund mjög vel. Við urðum samferða austur að Sumarliðabæ, ég þá nýkomin inn í fjölskylduna og hafði verið ögn kvíðinað hitta hana. En sá kvíði reyndist auð- vitað með öllu ástæðulaus því hressileg framkoma Gerðu feykti honum burt á skammri stundu, og alla leiðina austur spjölluðum við um alla heima og geima. Það var strax eins og við hefðum alltaf þekkst, og ætíð síðan voru sam- fundir okkar ánægjulegir. Þegar kynnin urðu nánari kallaði hún mig í gamni frú Sigríði eða bara frúna. Hún var þannig manneskja sem maður ber virðingu fyrir og finnur að það er gagnkvæmt. Orðtakið sælla er að gefa en þiggja átti svo sannarlega vel við Gerðu. Alveg fram á síðustu ár var hún á þeytingi um bæinn fyrir vini og vandamenn. Alltaf boðin og búin að hjálpa til hvar sem hún gat. Var alltaf sparsöm við sjálfa sig, en lét aðra njóta þess sem hún aflaði. Á hverju heimili voru til lopapeysur, sokkar og vettlingar sem hún prjónaði. Hún var sístarf- andi, og oft í fleiri en einni vinnu. Aldrei heyrði ég hana þó tala um að hún hefði mikið að gera. Fjöl- skylda mín hefur oft notið greiða- semi og gjafmildi Gerðu í gegnum árin. Ekki einungis í fullum poka af ullarsokkum og vettlingum á hverju hausti, heldur deildum við t.d. því áhugamáli að vera bóka- ormar og oft gaukaði hún að mér góðri lesningu. En þannig var hún, ætíð að bera eitthvað í aðra. Oft hefur hún Gerða glatt mig og kom- ið mér á óvart með gjöfum sínum. Þó aldrei eins og þegar hún kom með fulla dós af steinum sem hún hafði tínt handa mér í Danmörku og hafði orðið alveg undrandi yfir því að þau sem voru með henni vissu ekki að hún Sigga safnaði steinum. í dag eru steinarnir vel geymdir í glerkrúsum og munu ætíð minna mig á hana Gerðu sem í mínum huga var engri lík. Ef breytni okkar í þessu jarðlífi er reiknuð okkur til tekna í sælli veröld þá á hún Gerða mín svo sannarlega von á góðri heimkomu. Blessuð sé minning hennar. Sigríður Marteinsdóttir. Mér brá illa við heimkomu frá útlöndum nýlega, er mér var tjáð að Gerða frænka hefði látist þá um morguninn. Ekki það að hún hafi ekki verið komin á þann aldur að við þessu mætti búast, í raun hve- nær sem var, því heilsan var farin að gefa sig og Gerða mín, blessun- in, að missa veruleikaskyn æ oftar. En mér brá því ég missti af ákjósanlegu tækifæri til að kveðja hana. Faðir minn hafði hringt í mig á laugardegi fyrir páska til að minna mig á að „kona sem hefði verið mér góð í æsku“ ætti afmæli og það yrði kaffísamsæti á Mel- haganum. Víst var Gerða frænka, uppeldissystir föður míns, mér af- ar góð á bernskuárum mínum, sem ég eyddi að talsverðu leyti hjá henni og Steina, bróður hennar, í Sumarliðabæ. Og hún var mér góð fram á fullorðinsár; gaf af rausnar- skap og auðlegð hjartans, fremur en veraldlegu ríkidæmi, ungum manni eitt sinn ritsafn mikið í út- skriftargjöf, fyrir hartnær 30 ár- um. Þá varð ég hissa, því ég vissi að slík stórgjöf hlyti að koma illa við takmarkaðan fjárhag verka- konu úr sveit. Gerða frænka hafði hjarta úr gulli og glampa í augum, svo ég naut þess að hitta hana, þótt sam- SÓLSTEINAR skiptin hefðu vissulega mátt vera meiri hin síðari ár, þegar amstur hversdagsins kemur í veg fyrir eðlilega ræktun fjölskyldutengsla og annarra við fólk sem manni þykir vænt um. - Ég hafði á sínum tíma gaman af að sýna Gerðu dæt- ur mínar sem ég er afar stoltur af. Hún tók þeim svo vel og blíðlega að þær urðu hálf-hissa á því hvað þessi, þeim ókunna kona, sýndi þeim mikla hlýju. Þegar pabbi hringdi á 88 ára af- mælisdegi Gerðu var úr vöndu að ráða, og þó. Ég var á fullu í vinnu, en hafði þó eina klukkustund á milli verkefna svo vissulega gat ég skroppið í heimsókn. En ástkær móðir mín var á spítala svo það var ekki um neitt val um það hvernig tímanum skyldi varið, þótt gaman hefði verið að samfagna Gerðu á þeim degi sem reyndist vera hennar síðasti afmælisdagur. Gerða var í minni síðustu af- mælisveislu og þótti mér mjög vænt um heimsókn hennar og systranna í Akraselið, rétt eins og heimsókn þeirra á fyrra heimili mitt þegar Gerða var enn ern og hress, lék á als oddi við ungviðið á heimilinu, setti á sig kínverskan hatt fyrir myndatökur og var eins og ég kýs að minnast hennar, hlý, glettin og góð. Nú er annað skarð höggvið í systkinahóp föður míns. Systurnar samrýndu úr Sumarliðabænum orðnar tvær eftir, af fjórum sem skipað hafa svo stóran sess í lífi mínu, allt frá barnæsku. Mér þykir miður að hafa ekki náð að kveðja Gerðu frænku á þann hátt sem hún átti skilinn, en hún vissi hvaða hug ég bar til hennar. Orð voru þar óþörf. Ég votta samúð mína eftirlifandi systkinum Gerðu, þeim Steina, Rúnu, Hönnu og föður mínum, Hilmari Bjarnasyni. Guð blessi minningu Þorgerðar Jónsdóttur, góðrar konu sem gleymist aldrei. Hörður Hilmarsson. Varanleg minning er meitluö ístein. S.HBJGAS0NHF STHRISMIÐJA Skemmuvegi 48, 200 Kóp. Sími: 557-6677 Fax: 557-8410 Netfang: sh.stone®Vortex.is Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma. GUÐJÓNA ALBERTSDÓTTIR frá Súgandafirði, lést föstudaginn 19. mai sl. Jarðarförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 26. maí kl. 13.30. Jón Valdimarsson, Jóhannes Kr. Jónsson, Guðrún M. Hafsteinsdóttir, Valbjörg Jónsdóttir, Albert F. Jónsson, Julie V. Jónsson, Sveinbjörn Jónsson, Elín Bergsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri faðir, GUÐMUNDUR BRYNJÓLFSSON, Fellsmúla 11, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 24. maí kl. 13.30. Bryndís S. Guðmundsdóttir, Guðrún H. Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir,Kolbrún B. Guðmundsdóttir, Ólöf G. Söebech, Ágúst G. Hróbjartsson, Sævar Ö. Guðmundsson, Ingi Bergmann, og fjölskyldur. + Faðir okkar EMANÚEL GUÐMUNDSSON, dvalarheimilinu Jaðri, Ólafsvík, andaðist á Landspítalanum laugardaginn 20. maí. Útför hans fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 27. maí kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Sunna Emanúelsdóttir, Ellert Emanúelsson. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR MAGNÚS SIGURJÓNSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést mánudaginn 22. maí. Sigríður Rósmundsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Kristinn Hlíðar Kristinsson, Sigurjón Hjörtur Sigurðsson, Theodór Sigurðsson, Ragnhildur G. Júlíusdóttir, Guðrún Sæmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS GUÐJÓNSSON sjómaður, Eyktarási 13, Reykjavík, sem andaðist á Vífilsstöðum laugardaginn 20. maí, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. maí kl. 13.30. Alda María Magnúsdóttir, Tómas Hauksson, Gunnar Daníel Magnússon, Margrét Sigurðardóttir, Hekla Gunnarsdóttir, barnabörn og langafabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK VIGFÚS SIGURBJÖRNSSON, sem lést á Sunnuborg laugardaginn 20. maí, verður jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 27. maí kl. 11.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Sími 564 4566

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.