Skírnir - 01.01.1829, Page 68
68
stadar hljómudu saungvar i múli honumj Mán-
udaginn næstan eptir, var aptr dýrdligasta stór-
veizla, og gekk þad á allan hátt til sem enri
fyrsta dag. þridjudaginn pann 4jl1 nóvember
um liádegisbil, helt konúngr og en nýgiptu
konúngligu brúdhjón og konúngshúsid fráKrislj-
ánsborg til Amalíuborgar í dýrdligustu pró-
cessíu, vóru þau stræti borgarinnar, er haldid
var í gegnum, þéttsett á bádar hlidar af stríds-
mannalidi, stúdentum og borgurum, en blómstr-
um strád á veginn; var J)á og slíkr manngrúi
samankominn á nálægum götum og strætum, ad
eigi vard tölu á komid, jók þad og allmjög
gledina, ad vedr var blidt og fagrt. Kvöldid
eplir (5. nóvember) var, í vidrvist gjörvalls kon-
úngshússins, í því konúngliga sjónarleika-húsi
leikid nýtt sjónarspil, samid í Jjví skyni af dr.
Heiberg (er mörg slík snillilig samid heíir); var
tekid á móti þeim konúngligu brúdhjónum, med
fagurri saungvísu, er skáldid, prestrinn Boje,
hafdi orkt; og J>egar henni var lokid, med
þiúteknu gledihrópi, af þeim mikla og tígugliga
mannfjölda, er J>á var J>ar samankominn; J>egar
forljaldid lyptist, gckk enn mikli leikari Ifielsen
fram á sjónarplázid, hertýgjadr ad fornum sid,
og lét J>ar, í nafni Skjaldar konúngs, snjallt og
fagrliga mæltan formála (Prólóg) nokkurn, sam-
antekinn af ofanncfndu gódskáldi, prestinum
Boje, og þvínæst hófst sjálft sjónarspilid, sem
endadi med fögru eptirmæli (Epílóg) og marg-