Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1897, Blaðsíða 19

Skírnir - 01.01.1897, Blaðsíða 19
Ansturríki — TJngaraland. 19 að Rúaar fengu hBfnina til fullra umráða í 99 ár, sem vitanlega þýðir sama sem fult afsal til ævarandi eignar. Jafnframt fengu þeir leyfi til að leggja járnbraut snður um Mandsjúri og til Port Arthnr, og hafa setu- lið eftir þörfum í Mandsjúríi. Þó að Mandsjúríið sé enn að nafninu eign Kínaveldis, þá er enginn vafi á þvi, að það er með þessu móti komið á Rúsa vald og verður von bráðara alger eign þeirra. Jafnframt samdist svo um, að Rúsar skyldu leggja álmu af járnbraut til Peking, aðsetur- staðar Kínlandskeisara og höfuðborgar Kínaveldis. Port Arthur er gott til vígis, enda reisa Rúsar þar ramger varnar- virki, höfn er þar in bezta og koma þar aldrei ísalög. í stað þess að Vladivostok var áður ætlað að verða endastöð Siberíubrautarinnar að aust- an, þá verður nú Port Arthur endastöðin. Hvort heldur litið er á verzl- unarhag eða herþarfir Iandsins, þá dylst það eigi, að þetta er einhver hinn þýðingarmesti ávinningur fyrir Rúsaríki, sem því hefir hlotnast um lang- an aldur. E>ó að engum þyki torskildar þessar aðfarir Rúsa þar eystra, þá er þó óhætt að segja, að þær komu flestum eða öllum á óvart þá í svipinn og ekki síst Bretum, enda sendn þeir á gamlársdag Seymour aðmírál af stað til Kínlands til að gerast yfirforingi flota þeirra þar eystra. Austurríki — Ungaraland. — Eftir því sem liðið hefir á öld þessa hefir reynslan þótt sýna þess merki víðast um heim, að það sé ekki litlum annmörkum bundið, að stjórna þjóðum, svo að í lagi fari, þar sem lög- gjafarþing ráða lögum og lofum og binda hendur stjórnanna. Hefir víða svo farið, að alþýða manna, sem kosningarréttinn hefir í höndum, hefir reynst því illa vaxin, að fara skynsamlega með valdi sínu. Þau löndin hafa þótt sleppa skaplega, er stórslysalitið hefir tekist að stýra milli skers og báru þó talsvert hafi á gefið með köflum. Sumstaðar hefir konungs- valdið gerst þingvaldinu æði nærgöngult, og þurfa danskir þegnar ekki langt að skygnast til þeirra dæmanna. í öðrum löndum hefir fásinna þinganna teflt þjóðunnm ærið nærri háska. En hafi þannig reynslan sýnt það, að þjóðkjörin þing með þvi fyrir- komulagi, sem enn hafa þau, séu illa fallin til að stjórna alsherjarmálum þjóðanna, þá er þó síst kyn, þó að allir þeir annmarkar, sem þingstjórn- inni eru samfara, komi hvað berast í ljós í sambandsrikjaheild þeirri, sem kölluð er austurríksk-ungvorBka einvoldið, enda hefir sérstaklega á því brytt á þingi Austurríkis (ríkisráðinu). Eiga þar sæti 425 þingmenn og b*

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.