Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1897, Blaðsíða 31

Skírnir - 01.01.1897, Blaðsíða 31
Norðurlönd. 31 NorðurlÖnd. — í Danmörku urðu engin stðrtíðindi á árinu. Ráð- herraskifti urðu þar um vorið, fór Reeds-Thott og hana ráðaneyti frá völdum, en við tók Hörring. Engin stefnuhreyting mátti heita að á yrði við þetta. — í Noregi sætti það mestum tíðindum, að við nýjar þingkosningar um haustið unnu vinstrimenn svo mikinn sigur, að þeir stýra fullum a/3 allra atkvæða á þingi. Yarð þvi flokkblendings-ráðaneytið frá völd- um að fara, en Steen skólastjóri myndaði nýtt ráðaneyti. Nefnd sfl, er skipuð hafði verið Svíum og Norðmönnum til að koma tram með tillögur um ágreiningsmál Svía og Norðmanna og reyna að koma þar á sáttum eða finna nokkur þau flrræði, Bem báðar þjóðirnar vildu við una, lauk starfi sínu í árslokin, en ekki var nefndarálitið birt fyrri en eftir nýár, enda varð hún að öllu árangurslaus. Á árinu kom flt bók Friðþjófs Nansens um norðurför hans, samtímis i Noregi, Þýzkalandi, Frakklandi, Englandi og Ameriku, og fékk hann að ritlaunum fyrir fltgáíurnar samtals yfir 200,000 króna. Andri sænski, sem Skírnir gat um í fyrra, lagði loks af stað 11. Júlí þetta ár i loftfari sínu til að leita norðurheimsskauts, og hefir ekki til hans frézt siðan. Tilraunir til að koma á nýjum lögum um tollivilnun milli Noregs og Svíaríkis fóru út um þúfur. Þegar Svíar sögðu upp hinum eldri samn- ingum um þetta efni hugðust þeir mundu gera Norðmönnum þungar búsifjar með þvi, en Norðmönnum þykir sú reynsla á orðin, að sér hafi þetta að engn tjóni orðið,

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.