Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1907, Page 2

Skírnir - 01.12.1907, Page 2
290 Stephan G. Stephansson. Þín fornóld og sögnr rnér bua í barm og bergmál frá dölum og hörgum, þín forlög og vonir um frægðir og harm mér fylgja á draumþingum mörgum«. Yarir skáldsins fljóta ekki mjög í gælum 'föðurlands- elskunnar, þegar hann syngur þetta kvæði. En þó er það blindum manni bersýnilegt, að hjartað er »viðkvæmt og varmt«. Stephan flutti að vísu fót sinn og hönd frá móðurjörðinni. En hver dirflst þó að væna hann tvöfeldnir þegar hann segir: »En svo ertu Island í eðli mitt fest, að einungis gröfin oss skilur«. Og hann endar kvæðið með þessari ósk: »að alt sem þú, föðurland, fréttir um mig sé frægð þinni að veg, því eg elskaði þig«. Það sannast enn í dag fornkveðna vísan: Köm er taug, sú er rekka dregur föður túna til. Blóðböndin ósýnilegu, sem barnið er bundið móður sinni, frá getnaði til grafar — þau togna að vísu og fara stundum í bláþræði. En þau slitna aldrei til fulls. Svo er og háttað um böndin, sem tengja saman þjóðina og einstaklinginn. Þessir símar bera skeytin milli mannsins einstaka og afskekta og þjóðarinnar, sem ól hann upp. Þorri manna verður þeirra var oft og tíðum, þótt hann þegi. Meðalmaðurinn á enga rödd til í eigu sinni, sem túlkað geti tilfinningar hans fyrir öðrum sálum. En skáldið á röddina til og raddfærið, þegar það leggur sig í líma. Annað ástakvæði Stephans er Mansöngur. Þar kveður hann um unga stúlku, og kastar yfir hana

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.