Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1908, Page 65

Skírnir - 01.08.1908, Page 65
Taugaveiki. 257 Ef einhver legst í taugaveiki, þá stendur heima- mönnum næst að annast þetta, drepa sóttkveikjuna, sem kemur úr sjúklingnum, til þess að hún fari ekki í þá ■sjálfa. Það er auðvitað langbezt bæði fyrir heimilið og fyrir sjúklinginn, að koma honum í sjúki'ahús. Þess er enginn kostur til sveita. Þeim mun meiri vandi hvílir þar á heimilinu. En þó að veikin berist í einn mann á sveitaheimili, þá má vel hirða sjúklinginn svo, að sóttkveikjan komist ekki úr honum í aðra heima- menn, eða á önnur heimili. Og þó að sjúklingurinn geti ekki verið sér í herbergi og verði að liggja í baðstofunni (auðvitað einn í rúmi), þá á sóttvörnin að geta tekist engu að síður. I útlendum sjúkrahúsum er það sumstaðar siður enn i dag að hafa menn með taugaveiki í sömu stofum og aðra sjúklinga. Og það ber afarsjaldan við, að hinir sjúklingarnir taki veikina. En þar er líka gætt allrar varúðar. Hér verður þá um tvent að ræða: 1) Hvernig drepa má sóttkveikjur; 2) hvernig beita skal þeim ráðum við taugaveiki. iUm sótt- 011 sótthreinsun er sóttkveikjudráp. Sóttmeng- hreinsun. aður er hver sá hlutur, sem lifandi sóttkveikjur eru í eða á. Tveim höfuðaðferðum er beitt til að bana sóttkveikjum: hita eða eitri. Ef sóttmengaðir hlutir, t. d. föt, eru soðnir hálfa stund í vatni, þá drepast sóttkveikjurnar. Marga hluti, sem skeminast i sjóðandi vatni, má sótthreinsa í sjóðheitri vatnsguf'u. Sótthreinsunarofn er áhald til þess; það er gríðarstórt járnkerald, sem er sett þvers um gegn um :steinvegg, og járnhlemmur fyrir hvorum enda og má loka loftþétt. Sóttmengaður fatnaður er látinn inn um annað endaopið, á járngrind, lokað og síðan hleypt sjóð- heitri vatnsgufu (eða enn heitari) inn í keraldið úr gufu- katli. Að J/2—1 stundu liðinni er hinn endinn opnaður -og þar tekinn út fatnaðurinn. Því að sitt herbergið er 17

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.