Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1913, Page 62

Skírnir - 01.12.1913, Page 62
350 Nokkur orð um íslenzkan ljóðaklið. Hver smekkvís maður og heyrnarglöggur mun brátt verða þess áskynja, ef hann reynir, að öll Ijóð undir forn- yrðislagi láta miklu betur í eyrum, ef erindin eru þulin í 4 lotum; það mun sannast, ef rannsakað verður, að sá fram- burður á langbezt við efnið í ljóðunum og eðli málsins og veldur miklu geðfeldari klið en hin aðferðin, að hreyta hverju erindi út úr sér í 8 rokum. Tvíliða vísuorð fara oft vel milli lengri vísuorða, en eru jafnan ósnotur ein saman í löngum erindum. Það væri t. d. stórskemd á kvæðinu »Sæunn hafkona® eftir Jónas Hallgrímsson, að búta þar sundur ferliða vísuorðin, bora málhvíldum inn í milli tví- liðanna og þylja erindin í 8 lotum, með 7 hvíldum, t. d.: Hjartað berst — og hjartað titrar — hjartað slær — og berst af mæði; — því óg ann þér — miklu meira, — mannsmynd kær! — en um ég ræði. — Þess er áður getið (III. k.), að ferliða vísuorð falla jafnan ósjálfrátt í 2 tvíliði, án þess þó að nokkur hvíld verði milli liðanna; f y r i r þetta einkenni, þetta t v í 1 i ð s- eðli ferliða vísuorða, hafamennoftvilst út í það, að búta þau sundur í tvö vísuorð (2 lot- ur) og þar með skekkja og skemma kliðinn. Áttskift- ing f o r n y r ð i s 1 a g s i n s er að öllum líkum af þessari rót runnin1). Ef ljóð undir fornyrðislagi eru þulin kliðrétt, í 4 lot- um hvert erindi, þá verður þess fljótt vart, að — 1) v í s u- orðin byrja stundum (ekki mjög oft) á raddléttum forskeytum; (þesskonar forskeyti eru sjaldgæfari í *) Huðhr. Yigfússon segir (i „Corpus poeticum“), að fornyrðislag hafi verið orðið úreltnr hragarhúttur á dögum Snorra Sturlnsonar, enda er þvi enginn sómi sýndur í Háttatali hans. Tviliðseðli ferliða visuorða hefir Snorri ekki þekt; menn höfðu ekki á þeim tímum gert sér grein fyrir þvi. Snorra-Edda er ekki óskeikull visdómur, fremur en ritningin, ekkert vit að trúa í blindni á Háttatalið.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.