Þjóðólfur - 09.03.1894, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 09.03.1894, Blaðsíða 1
Árg. (60 arkir) kostar 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. júlí. Uppsögn, bundin viö áramót, ógild nema komi til útgefanda fyrir 1. október. ÞJÓÐÓLFUR. XLVI. árg. Reykjayík, föstudaginn 9. marz 1894. Sr. 12. Hvað vill Sæimmdur Eyjólfsson? Eptir síra Jóhannes L. L. Jóhannsson á Kvennabrekku. Það hefir rnikið verið ritað um mann þennan og skoðanir þær, er hann setur fram í ritgerðinni „Um landbúnaðinn fyrrum og nú“ og það væri hreint óhugsanlegt, að slík óp úr öllum áttum gæti komið, ef orð hans hefði eigi snert ýmsa viðkvæma og veika strengi í meðvitund manna og þjóðarinnar. En hér er aðgætandi, að flest af því, sem Sæmundi er brigslað um, svo sem hann sé apturfaramaður og apturhalds- maður, e'r byggt á megnum misskilningi á orðum hans. Eg þekki Sæmund per- sóriulega og er kunnugur skoðunum hans; eg veit vel, að hann í stjórnmálum er í- haldsmaður, því að hann hefur litla eða enga trú á, að stjórnfrelsi endurbæti þjóð- lífið og vitanlega gerir það eitt útaf fyrir sig lítið gagn, ef menn eigi kunna að nota það og meta; en að hinu leytinu verður þvi eigi neitað, að stjórnfrelsið er ein af höfuðlyptistöngunum til að hefja fólkið til siðgæðis og velvegnunar. En þegar talað er um búnað, sparsemi, þjóðrækni og sið- gæði, þá er mesti misskilningur að kalla Sæmund apturfaramann, því í þessum greinum er hann af hjarta framfaramaður, sem vill að velmegun þjóðar vorrar aukist í andlegum og líkamlegum efnum. En af því að oss í þessu heíur eigi farið og fer eigi fram, eins og honum líkar, verður hann nokkuð þungorður og gerir oflítiðúr hinum hæglátu framförum vorum. Það er ekki rétt að álíta framför vora einskis virði, þött hún sé eigi svo stórstíg sem nágrannaþjóða vorra, því að bæði lesta- maðurinn og hinn lausríðandi halda áfram hvor í sínu lagi og eru báðir virðingar- verðir fyrir áhuga sinn til að ná takmark- inu, en auðvitað dregst maður með lestina ávallt aptur úr, þrátt fyrir viðleitni sína að komast áfram. Það er rangt að segja, að Sæmundur sé apturfaramaður eða vilji að oss fari aptur, þótt hann skýri skýlaust frá þeim sannleika, að vér séum í öllu eptirbátar nágrannaþjóða vorra og getum þvi eigi staðizt í baráttunni fyrir lífinu á móti þeim, nema vér tökum oss fram, því að með því að sýna þetta í þess réttu en svörtu litum vill hann hvetja oss til að taka oss verulega fram og hugsa alvar- lega um vort voðalega ástand enda myndi enginn hafa liaft á móti því, að lítið væri úr oss gert í samanburði við samtímis- menn vora i útlöndum, ef hann hefði eigi gert langt oflítið úr oss í samanburði við samlanda vora fyrr á tímum. Þessa villu hans hafa menn rekið augun í, en gleymt svo því, sem er aðalatriðið hjá Sæmundi, sem er að sýna oss, hversu mjög vér þurf- um að herða oss í búskap og vöruvöndun til að standast gagnvart öðrum þjóðum. Höfundurinn hefur líka sjálfur skemmt hið góða, sem hann vildi koma til leiðar, með því að lofa hina fyrri íslendinga um of, en lasta hina síðari íslendinga líka um of. Það er heldur engin stjórnkænska álitin við börn, að vera ávallt að lasta þau og láta þau aldrei njóta sannmælis í því, sem hrósvert er, heldur hitt miklu fremur að hæla þeim stundum fyrir það, sem gott er og hvetja þau þannig áfram. Likt er varið með þjóðina, hún batnar eigi við það að hafa vöndinn sífellt á lopti. En þrátt fyrir slíkar yfirsjónir í ritgerð höf- undarins ætti hver sanngjarn maður, að geta séð, að hann vill oss einmitt vel. Sá er alls eigi framfaramaður, sem smjaðrar fyrir alþýðunni og lofar þjóðina á hvert reipi með því að hefja nútíðarmenn til skýja en lasta forfeðurna, svo að hún haldi, að ekkert sé leugur að. Og aptur á hinn bóginn ueita eg því hreint og beint, og víst fleiri með mér, að nokkur með sanni hafi rétt til að kalla mig eða ein- hvern apturfaramann t. d. í trúar- og kirkju- lífinu, þótt eg segi, að þetta standi nú á lægra stigi en um miðja þessa öld, því að þetta þýðir eigi, að eg vilji að því fari aptur, heldur hitt að eg óski að því fari fram, svo að það nái sínu fyrra hærra stigi og komist enn lengra. Eg er eigi gamall, og man þó vel eptir, að í uppvexti mínum var miklu meiri kirkjurækni í Hvanneyrarsókn í Borgarfirði, en þar er nú, þrátt fyrir það, að þar er ágætur prestur, sem víst eigi stendur fyrri prestunum þar á baki. Þá var farið til kirkju í hálfófær- um veðrum, en nú opt eigi í góðu veðri og það af mörgum bæjum, en svo sem eg sjálfur veit um það á þessum stöðvum æsku minnar, svo hef eg víðar að sögu- sagnir áreiðanlegra manna um slíkt hið sama. Hér i Dölum voru menn almennt til altaris, áður en þeir fóru til sjávar, sem nú er aflagt, og mér hefur eigi tekizt að koma því á aptur, það játa eg. í Borg- arhrepp og á Fellsströnd og Skarðsströnd hefur mér verið sagt, að víða sé hætt að lesa húslestur um vetur, og sama á sér stað í mörgum kaupstöðum landsins, svo að trúar- og kirkjulífinu hefur farið aptur síðan 1870, hvað svo sem séra Ólafur í Arnarbæli um það segiy í fyrirlestri sínum. Hitt þori eg eigi að segja, að því sé nú að f'ara aptur, eg held það sé að byrja að batna á ný, og vil það líka. Eg vona nú, að enginn verði með réttu kallaður apturfaramaður, þótt hann bendi á meinsemdirnar og vilji fá fólkið til að bæta úr þeim. En alveg sama er með Sæmund í þeim greinum, sem hann talar um; hann sér, að vér höfum glatað sumu góðu, er áður var, og honum gremst, hversu langt vér erum á eptir öðrum þjóðum. Landbúnaður vor og aðrir atvinnuvegir saxa hér um bil í sama farið sem fyrir 60 árum, þrátt fyrir hinar miklu fram- farir í umheiminum. Þegar vér gætum að, hvað t. d. Noregsmenn gera fyrir at- vinnuvegi sína og hvað alþingi vort gerir fyrir atvinnuvegi íslands, þá getum vér eigi annað en roðnað af blygðun, og sjálfir bændurnir á þingi hafa hreint enga hug- mynd um þetta, sem þeim ætti þó að vera annast um af öllu að kynna sér vel. Þeir elta einungis sýslumennina og aðra stór- málamenn á þingi i eintómri Iagasmíð og stórkostlegum stjórnmálum (stórpólitík) en gleyma liinum þjóðlegu félagsmálum (socialfragen), svo sem atvinnuvegum og fjárráðahagsýni. Oss vantar menn með viti, er gefi sig eingöngu við atvinnumál- um, hin hærri stjórnmál geta haft sinn gang fyrir því. En það er von oss vanti hæfa menn í þessum greiuum, því fæstir hafa séð nokkuð nema gamalíslenzkt hátta- lag, og flestir hafa engar sögur af búnaði annara þjóða; en upplýsing um hann má samt fá í mörgum útlendum landbúnaðar- blöðum væru þau keypt af þeim, er málið skilja. í Noregi á ríkið t. a. m. sauða-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.