Þjóðólfur - 09.03.1894, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 09.03.1894, Blaðsíða 3
47 harðar ytri ástæður. — Nú munu máske sumir segja, að sóminn eintómur, heiðurs- urspeningar og heiðursskjöl verði ekki lát- ið í askana, en það er þó svo; sýningarn- ar eru svo sem sýniskorn af heimsmark- aðiuum og þar fá verzlunarmenn úr öllum álfum að sjá hinar beztu og vönduðustn vörur í hverri grein, og vita uú, hvar þeir eiga að leita að því, sem þá vaukagar um; sýningar geta því orðið til stórkostlegs hagnaðar bæði fyrir heilar þjóðir og eiu- 8taka meuu. Vér konur ættum því að bindast samtökum, og senda vel unna tó- vinnu og aðrar hannyrðir á næstu sýningu, sem kynni að verða í Kaupmannahöfn — það yrði oss hægast — þá sæju, að minusta kosti Norðurlandabúar, að hér má fá fallega viuuu ekki síður en í öðrum löndum, og gæti á þann hátt ef til vill með tímanum myndast atvinnuvegur fyrir marga. Kvennfólkið í Svíaríki stendur mjög framarlega i því, er snertir heimilis- iðnað, hannyrðir og útsaum, og þó dáist það að íslenzkum fornum hannyrðum og tekur þær til fyrirmyndar. Að endingu vil eg geta þess, að eptir mínu áliti á frú S. M. þakkir skilið fyrir viðieitni sína í því að sýna íslenzka tó- vinnu, og sýna heiðurspeningar þeir, er hún hefur hlotið fyrir land okkar, að við enga vansæmd höfum haft af sýniugum hennar. p. p; Strandasýslu 2. febr.: „Heyskapur varð hjá almeuningi með bezta móti og nýting ágæt. Skepnur reyndust vel hjá flestum og sumum ágætlega bæði að þyngsl- um og til frálags, enda fer það saman. Fjársala varð mikil til kaupmanns R. P. Riis á Borðeyri og nokkur til verzlunar- félags Dalasýslu. Verð á slátursfé hjá mun hafa verið 7—9 a. pundið, en 10—12 a. í því fé, er út varð flutt lifandi. Haustið var mjög arðlítið bæði til lauds og sjávar. Veðuráttan frostasöm og óstöð- ug, svo ekkert verulegt varð gert að húsabyggingmn eða jarðabótum. Algert aflaleysi bæði við Steingrímsfjörð og Hrúta- fjörð, og gæftir engar á Gjögri. Þessi ó- stillta tíð hélzt fram í miðjan desember. Þá kom bezta veðurátta, er hélzt framyfir roiðjan janúar. Snjókoma engin og má al- staðar heita auð jörð enn. Hafís rak inn í desember og fyllti hvern fjörð. Með hon- um kom inD hvalur á land á Gautshamri við Steingrímsfjörð. Nokkra háhyrninga hafði rekið á Kleifum í Kallbaksvík, en sumir þeirra fóru út aptur með ísnum. Litilsháttar rak af höfrungum á stöku stöð- um eða náðust í vökum. Nú er allur haf- ís horfinn fyrir löngu. Hey- oqfénaðar- shoðanir hafa farið fram í sumum lirepp um sýslunnar eins og áður, og fé vigtað í einum þeirra. Útlitið fremur gott með heybirgðir í haust, þegar skoðað var. Önn- ur skoðun fer fram innan skams“. Mannalát. 16. f. m. andaðist að Álfgeirsvöllum í Skagafirði merkisbóndinn Pétur Pálmason, er þar hafði lengi búið en fyr í Valadal. Hann var sonur Pálma bónda í Vallholti Magnússonar sama staðar (*j- 1815) Pét- urssonar Skúlasonar Einarssonar og Ingi- bjargar Bjarnadóttur Steingrímssonar Ólafs- sonar bryta á Hólum, en móðir Pálma var Ingunn Ólafsdóttur frá Frostastöðum systir Ólafs lektors í Túnsbergí og þeirra syst- kina. Pétur heit. var kvæntur Jórunni Hannesdóttur frá Hömrum í Skagafirði, og eru 8 börn þeirra á lífi, öll einkar mann- vænleg, 4 synir: Hannes bóndi á Skíða stöðum í Tungusveit, Jón bóndi í Vala- dal, Pálmi bóndi á Sjávarborg og Pétur bóndi á Bollastöðum í Blöndudal, og 4 dæt- ur: Halldóra kona Ólafs Briems alþm. og umboðsmanns á Álfgeirsvöllum, Herdís, Ingibjörg og Steinunn heitin Vilhjálmi Briem kand. theol., er nú hefur fengið veitingu fyrir Goðdölum. Pétur heit. var mesti dugnaðar- og atorkumaður og talinn með hinum mikilhæfustu bændum í Skaga- firði íyrir ýmsra hluta sakir. Aðfaranótt 3. þm. andaðist snögglega hér í bænum fröken Johanna Havsteen (dóttir J. P. Havsteens amtmanns) 26 ára að aldri, gáfuð stúlka og vel að sér ger. Illur gestur er nú kominn hingað til bæjarins — influenza-landfars'ottin. — Ætla menn, að húu hafi flutzt hingað með möun- um, er komu austan undan Eyjafjöllum og úr Mýrdal í næstl. viku. Sóttin læsir sig, eins og eldur í sinn um bæinn, en ekki eru menn þungt haldnir, enn sem komið er. í stöku húsum liggur allt heimafólkið. Latínuskólanum er lokað, því að 40—50 piltar liggja veikir, og í stærstu sölubúð- unum eru ekki nema 1—2 verzlunarmenn á ferli, en sumum er alveg lokað. Þingmennsku-ærslin í Þorláki. Bnn einu sinni hefur Fífuhvammsfulltrúinn, hann Þorlákur, brugðið á kálfadans frammi fyrir kjós- endum sínum og öllum landsmönnum í ísafold 3. þ. m. Það er varla hugsanlegt, að hann sé svo mikið fífl, karlskepnan, að hann imyndi sér, að þessir og þvílikir pistlar styðji hann til kosninga næst, þvi að hann hefur með þessum ritgerðum sínum gegn Þjóðólfi sýnt og sannað svo áþreifan- lega, að hann virðir kjósendur sína einskis og hygg- ur, að hann geti boðið þeim allan þremilinn. Eða liver skynsamur og gætinn maður mundi hafa illsk- azt svo, eins og Þorlákur hefur gert, út af þvi þótt einhver byði sig fram til þingmennsku jafnhliða honum ? Eptir síðasta sparki hans að dæma hefur einhver „illurandi11 auðsjáanlega náð duglegu tangar- haldi á konum og ginnt hann sem þussa til að flana út í allar þessar ógöngur. Það er dálítið, sem síðustu Þorláksgreinina vant- ar til þess að hún geti kallazt svaraverð, dálítið sem menn eru vanir að sjá í ritgerðum eptir full- trúa þjóðarinnar. Það vantar bara heilbrigða hugs- un og skynsemi í greinartctrið. Annaðhvort hlýtur að vera, að aldrei hafi verið sérlega langt til botns í Þorláki, eða þá, að hann er farinn að ganga í barndómi, og veit ekki sitt rjúkandi ráð af ein- tómri þingmennsku-hugsýki. Þetta síðasta myrk- viðursrugl hans sýnir, að hann kann ekki að rita fremur en fimm ára gamalt barn. Það hefði varla orðið lakara, þótt Gvendur „pati“ hefði farið að rita í ísafold, enda er það i almæli, að optast hafi Þor- lákur í sinni þingmennskutíð fengið aðra til að semja það, sem hann hefur borið fram á þingi, hversu lítilfjörlegt sem það hefur verið, og „farið í smiðju“ með það, er hann hefur látið á „þrykk“ út ganga frá sinni hendi, eins og eðlilegt er, því að maðurinn er algerlega ómenntaður og ekki einu sinni fær um að skrifa sendibréf, svo skammlaust sé, og er það ekki sagt honum til hneysu, en oss virðist, að gorgeirinn gæti þó verið dálitið minni i karl- skepnunni. Það hefur verið einhver klunnasmiður sem hefur fjallað um ísafoldar-greinarnar hans. Svo mikið er vist. Það er annars engin furða, þótt karlhróinu sé þungt niðri fyrir, þá er þingmennskan í Árnessýslu er ávallt sem bögglað roð fyrir brjóstinu á honum, og allt landsskjalasafnið sem kökkur í hálsinum á honum. Það hefur mörgum orðið óglatt af minua. Að vísu hefur hann dálítið létt á sér í ísafold, en hann þarf auðsjáanlega að gera það betur. Hann er alls ekki fær um að ganga með þenuan þunga til lengdar. Og svo bætist sagan um skjóðu-þing- manninn ofan á allt saman, saga, semhann hefurtekið sér mjög nærri, því að hann vill nú endilega klína því á Einar í Nesi dauðan, að það sé líklega hann(!) sem átt sé við með þessari sögu i Þjóðólfi, eða jafnvel Gr. Thomsen eða séra Þórarinn i Görðum (!). Skyldi Þorlákur fá marga til að trúa því? Önei. Honum er langsnjallast að stinga hendinni í sinn eiginn barm og láta ekki svona ólíkindalega, eða bendla dána heiðursmenn við þetta. Það vita svo margir, hver fulltrúi það var, sem reiddi skjóðuna með tólgarmolunum og brauðskorpunum fyrir aptan sig niður i bæinn á hverjum mánudagsmorgni meðan þing stóð yfir. Það er engin skáldsaga. Þótt Þorlákur hafi orðið hamslaus af heipt og gremju, sakir þess, að vér höfum skopazt dálítið að honum og rithætti hans, þá hefur það samt haft þann árangur, að hann er hættur að minnast á allar prjónavélar og alla strokka i sambandi við landssjóð. Það var lika hentast. En hins vegar heldur hann nú dálítinn kapítula um pestarkæfu- kvartil, er einhver skólapiltur hafi strandað (!) með

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.