Þjóðólfur - 23.10.1903, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 23.10.1903, Blaðsíða 1
55. árg. Reykjavík, föstudaginn 23. október 1903. Jú 43. Ofna og eldavélar s e 1 u r Kristján Þorgrímsson. Tímamót. AUir þeir, sem ekki eru fullir óvildar og hleypidóma gegn hinu nýja stjórnar- fyrirkomulagi, sem í vændum er, eða þrútnir af gremju yfir því, að hafa orðið undir í hinni pólitisku baráttu, hljóta að viðurkenna hina afarmiklu þýðingu, er stjórnarbreytingin nýja hlýtur að hafa fyrir þjóð vora. Það eru á vissan hátt miklu stór- felldari tímamót nú en 1874, er vér feng- um stjórnarskrána, og hefur hún þó mark- að allstórt framfaraspor í lífi þjóðar vorr- ar. Þá ortu góðskáldin háfleyga söngva um »ágæti hins nýja siðar«, enda studdi 1000 ára afmælishátíð þjóðarinnar og koma konungsins hingað til lands að því, að varpa geislum yfir framtíðina. Þá voru allir — eða flestir — einhuga um, að það stjórnarfyrirkomulag, er þá fékkst, væri að öllu leyti hið viðunanlegasta. Þjóðin var samhuga í því, að nota hið veitta frelsi sem bezt. Þessvegna heyrðust eng- ir ósamróma tónar í söngvum skáldanna þá. En nú, þá er miklu stærra spor er stigið til verulegrar sjálfstjórnar, en gert var 1874, þá rignir hrakspám og heiting- um yfir stjórn þá, sem enn er óskipuð, og yfir alla þá, er unnið hafa að því að kóma henni á. Nú yrkir hinn ungi skálda- vísir lélegar eptirstælingar af íslendinga- brag, með enn freklegri gífuryiðum og fjarstæðum, sogandi í sig feikilegan vind, er á að þeyta um koll þessari væntanlegu nýju stjórn, hvernig sem hún verðurskip- uð, hvernig sem hún stjórnar og hvernig sem hún fer að ráði sínu, hvort heldur vel eða illa. Hún er fyrirfram dæmd ó- alandi og óhafandi, sem svívirðilegt »þrælsmark á frjálsbornum lýð«, eins og eitt unga skáldið kemst að orði. Er þetta heillavænlegt ástand eða giptu- samlegt til frambúðar? Því fer harla fjarri. En sem betur fer er allur megin- þorri þjóðarinnar ekki uppblásinn afsvona löguðu heimastjórnarhatri. En af hverju sprettur öll þessi vitfirring? Naumast af eintómum misskilningi eða blindni. Hún sprettur af fargani því og flokksofstæki, er tætt hefur þjóðina sundur og tvístrað henni í fjandsamlega flokka í hinni póli- tisku baráttu síðustu ára. Og þeir sem loks báru lægra hlut, hafa ekki getað sætt sig við úrslitin, vegna ofurkapps þess og ofstækis, er komið var í baráttuna, þar sem ekki var um annað hugsað, en að láta kné fylgja kviði, hvað sem velferð landsins liði, eins og skýrt kom f Ijós á þinginu 1901. En þá er svo er komið er baráttan komin í óvæntefni, orðin stór- hættuleg. Það þarf alllangan tíma, til að lægja allar þær öldur, er risið hafa á síð- ustu tfmum. Getur vel verið, að það standi alveg á sama, hversu vel og viturlega hinum fyrsta ráðherra tekst að stýra gegnum brimið og boðana, því að ekki munu honum ætlaðir langir lífdag- ar í stjórnarsessinum. Og víst er um það, að enginn verður öfundsverður af þeirri tign fyrsta kastið. Og þó skiptir svo af- armiklu, að þessi maður verði einhver á- gætasti maður þjóðarinnar, sem vér höf- um völ á. Það er hann, sem á að mynda »praxis«, móta stjórnarfar vort, eins og það á að verða í framtfðinni. Hann verð- ur því að vera einkar þjóðhollur maður, enginn flautaþyrill eða fleiprari, heldur fasttækur, stjórnsamur alvörumaður, er geri öllum jafnhátt undir höfði og gæti réttar þjóðarinnar út á við, engu síður en einstaklingsins. En hvar höfum vér slík- an mann, er sé þessum vanda að öllu leyti vaxinn ? Hann verður töluvert vand- fundinn. En hvort sem valið tekst vel eða illa, þá er óhyggilegt þjóðar vorrar vegna, að taka á móti honum með óhug, ótrú eða opinberum fjandskap, eins og hann væri óvinur eða andstæðingur þjóð- arinnar. Á þann hátt getur engin stjórn, hversu góð sem hún er í sjálfu sér orðið landi og lýð til blessunar. Og til þess að nýi ráðherrann geti unnið þjóð sinni fullt gagn, verður hún að styðja hann til allra góðra og þarflegra hluta, vera bak- hjall hans gagnvart útlendu valdi, ef það vill fara að hafa hendur í hári vorra eig- in mála, engu síður en hann á að vera sverð og skjöldur þjóðarinnar út á við. Þá fer stjórnin bezt úr hendi, er báðir aðilar, stjórn og þjóð vinna í eindrægni að heill þjóðfélagsins, en ekki með því að alið sé á tortryggni og úlfúð. En þar sem stjórn og þjóð greinir verulega á, þar á stjórnin að lúta, sé almenningsvilji ann- ars vegar. A því byggist þjóðræðið, og af þjóðræðinu á þingræðið að leiða, því að þing, sem meiri hluti þjóðarinnar er óánægður með getur ekki staðizt til lengdar. , Allar getgáturmanna um það, hver skip- aður verði ráðherra eru alveg í iausu lopti byggðar. Um það hefur enn ekkert heyrzt og mun naumast heyrast fyr en skipunin kemur, en að sjálfsögðu má búast við, að ráðherrann verði tekinn úr þeim flokki — heimastjórnarflokknum, — er ráðandi hefur verið á 2 síðustu þingum, þeim þingum, er lagt hafa smiðshöggið á stjórnarskrár- breytinguna, eins og hún nú liggur fyrir til staðfestingar. í blaðinu »Dannebrog« kvað hafa birzt greinarstúfur héðan frá íslandi 9. f. m., þar sem meðal annars voru talin upp 5 ráðherraefni, þar á með- al síðastur 1 röðinni Halldór Daníelsson bæjarfógeti(l). Það er mjög sennilegt eða hitt þó heldur, að Alberti færi að setja þann mann í ráðherrasætið, mann, sem steyptur kvað vera í sama mótinu í póli- tíkinni sem Landvarnarsendiherrann nafn- frægi. Alberti gæti alveg eins vel gert sendiherrann sjálfan eða bróður hans, séra Sigurð í Flatey að ráðherra. Jafnmikilsvert sem það er, að ráðherra- valið takist ve), eins er það mjög þýðing- armikið, að vér fáum ötulan og vel hæf- an landritara, því að á honum hvílir að mestu stjórnarframkvæmdin sjálf. Hann verður að vera önnur hönd ráðherrans og honum samhentur, og það verður hann, sem getur mjög miklu ráðið um það, hvern- ig stjórn landsins verður út á við. Með því að nýi ráðherrann skipar landritarann má sjá það þegar á þeirri fyrstu stjórnar- athöfn hans í hverja stefnu hann hugsar sér að stýra stjórnarskipinu. Það er því ekki alveg vandalaust fyrir nýja ráðherr- ann að veija sér landritara, því að sé sá maður í litlu áliti hjá þjóðinni, hafi lítið traust almennings, þá lenda öll óþægind- in af því vali á ráðherranum. Það verð- ur hann, sem sýpur seyðið af óheppilegu landritaravali. Allir góðir Islendingar ættu að styðja að því af fremsta megni, að stjórn sú, sem nú er í vændum geti neytt allra krapta sinna landi voru til vegs og viðreisnar. En til þess verða sem flestir að verða sam- taka. Sundrungin, hatrið og hleypidóm- arnir hefur hvarvetna hin verstu áhrif, einkum í lítt þroskuðu þjóðfélagi, eða þá er þjóðin er að stíga fyrstu sporin á sjálfstjórnarbrautinni. Það þjóðfélag, sem jafnan er sjálfu sér sundurþykkt, aldrei getur orðið samtaka, getur ekki náð nein- um verulegum þroska. Þar sem hverhönd- in er upp á móti annari verður ekkert úr framkvæmdum, allt strandar á tvídrægn- inni og sérgæðingshættinum, þar sem sá þykist mestur maðurinn, er mest getur gjammað og hæst hrópað, þótt gjammið sé á litlu eða engu viti byggt. Allir sannir Islendingar munu óska þess, að timamót þau, sem nú fara í hönd með nýrri i n n 1 e n d r i stjórn verði farsæl og heillarík tímamót í sögu þjóðar vorrar, og að gagngerð breyting til hins betra hér á landi komi sem fyrst í ljós, eptir að nokkurnveginn viðunanleg heimastjórn nú er fengin. Það verður oss sjálfum að kenna, ef öðruvlsi fer. Vér verðum hyggi- lega og gætilega að vinna að því marki, að stjórn vor verði það sem hún á að verða: sverð og skjöldur þjóðar vorrar, sannarlega frjálslynd, framkvæmdarsöm og einbeitt þ j ó ð 1 e g stjórn, er skilji sitt hlut- verk rétt og fari viturlega með vald sitt í öllum greinum. Þá mun gamla Island enn eiga vor í vændum. Heimsmál. H. Þá kemur til álita, hvaða mál fullnægi bezt þeim kröfum, sem nefndar hafa ver- ið, og má þá fyrst athuga, hvort ráðlegt sé eða tiltækilegt að taka upp sem heims- mál eitthvert hinna lifandi mála. Hér verða strax í vegi allmiklir örðugleikar, sem stafa af því, að öll lifandi mál eru sérstaklega eign einhverrar þjóðar, en það er afarmikið hagræði fyrir hverja þjóð, að mál hennar sé gert að heimsmáli. Hver þjóð heldur því fram sínu máli. Þjóð- verjar vilja gera þýzku að heimsmáli, Frakkar frönsku, Italir ítölsku og svo er jafnvel um enn fleiri þjóðir. Öll þessi mál hafa nokkuð til sfns ágætis, ítalskan er hljómfögur og auðveld að bera fram, þýzkan er vel löguð til samsetninga og hefur auðugar bókmenntir, franskan er skörp og nákvæm og þegar notuð í stjórn- arviðskiptum ýmsra ríkja, í ensku er mál- fræðin auðveld og hún hefur náð meiri útbreiðslu en nokkurt annað af málum Norðurálfunnar. En aptur á móti hafa þau líka öll meiri og minni galla, f þýzku er málfræðin mjög örðug, frönskuna fellur út- lendingum örðugt að bera fram vegna nef- hljóðanna, einnig er orðaskipun í henni alltorveld, f ensku er réttritun afleit og framburður óreglulegur, og þó að hún í fljótu bragði virðist léttust af málum þess- um, mun hún samt ekki reynast það, þeg- ar fram í sækir. Annars má yfirleitt segja um öll mál, sem lifa á vörum þjóðanna, að þau séu greypt í móti þeirra þjóða, sem tala þau; þau eru öll full af sérstök- um orðatiltækjum, sem einkennileg eru fyr- ir þær þjóðir, sem tala þau. Þau hafa myndazt í blindni og skortir því öll mik- ið á að vera fullkomin; frá öllum reglum er fjöldi af undantekningum, mörg orð eru höfð til að tákna sömu hugmyndina og sama orðið aptur notað í fjöldamörg- um merkingutn. En þótt ekkert væri hirt um alla þessa annmarka, þá er mjög efa- samt, hvort nokkurntfma mundi takast að gera nokkura hinna lifandi þjóðtungna að heimsmáli, vegna samkeppni þeirrar og rígs, sem á sér stað milli stórþjóðanna, að enginn ann annari þess hagnaðar, sem leiðir af því, að fá mál sitt gert að heims- máli. Þær þjóðir, sem mæla á enska tungu, mundu aldrei una því, að transka eða þýzka yrði gerð að heimsmáli, enjafnilla mundu Frakkar og Þjóðverjar una því, að ensk- an yrði heimsmál. Þá er annar vegur, sem sumir hafa bent á. Hann er sá, að taka upp aptur eitt- hvert hinna dauðu mála, sem áður hafa verið heimsmál. Þessi mál hafa þann kost, að þau eru ekki eign neinnar sérstakrar þjóðar, og geta því ekki veitt neinni þjóð nein forréttindi fram yfir aðrar. Af þess- um málum getur varla verið um önnur að ræða, en forngrísku og latínu. Grískan á sér nú fáa formælendur, en latlnan öllu fleiri, einkanlega vegna þess, að ýms vis- indarit hafa til skamms tíma verið rituð á henni. En heiminum hefur farið mik- ið fram, sfðan þessi mál duttu úr sög- unni; þau eru því orðin langt á eptir tímanum og geta engan veginn fullnægt þeim kröfum, sem nú verður að gera til heimsmáls. Þótt ef til vill megi rita á þeim heimspekisrit, guðfræðisrit eða mælskurit, líkt og á miðöldunum og f fornöld, þá geta þau enganveginn dugað verzlunarmönnum eða iðnaðarmönnum vorra tíma. Reyndar er það satt, að lat- na er kennd í skólum um allan heim, en er það ekki einmitt vottur um, aðhún sé, ekki hæf til að vera heimsmál, að menn nota hana þrátt fyrir það ekki 1 viðskiptum sínu"n við útlendinga. Það er einnig aðgætandi, að enginn fastur fram- burður er f málum þessum, hver þjóð ber þau fram eptir sfnu máli. Til dæmis um það er þessi saga: Fyrir eitthvað tuttugu árum síðan var almennur læknafundur haldinn í Genf. Á fundi þessum hélt í- talskur læknir, dr. Baccelli, langa ræðu á latínu og talaði af mikilli mælsku og lær- dómi. Á fundinum var franskur læknir, meðlimur vísindafélagsins franska og góð- ur latínumaður. Hann ritaði fréttir frá fundinum og gat þar ræðu Baccellis á þessa

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.