Gefn - 01.01.1870, Side 56

Gefn - 01.01.1870, Side 56
56 frá fræjum smám, þar fagurlimi grær, er frjóvgast vel, og verða stórir meiðir; frá minnsta hnetti að mestu himinsunnu — því meginstraumar þeir um heiminn runnu: 5 eins stígum vér af myrkum moldar beð, frá minnsta hlut, sem augað fær ei séð, í gegnum list að ljóssins vizkusal, þar lifir sá, er allt í engu fal. Af litlum vísi fram til mikils frama 10 furðuleg æðir mannkynsandans hrönn: svo hríð ei mætti veikan líkam lama, hann lítið bygði kot, og gróf út fönn; í helli flúði, þegar þruman dundi, og þá hann vildi kanna nána ey, 15 hann svamm á tré á mjóu marar sundi, og meiður sá var honum nytsamt fley — * * * Náttúran kendi kynjanæmum anda að kljúfa sollið tilverunnar haf, með ótal myndum, sem um aldur standa, 20 eilífðar vald í mannsins hönd hún gaf. Tindarnir rísa hátt að himinskýjum, hamrarnir gnæfa fram við djúpan sjá, og ótal klettar eilíflega nýjum afbrigðum klofna fjarrum heiðum á; — 25 málarinn skrifar mynd um lángar stundir, mæðist og svitnar — listin er svo þúng! — Eitt augnablik — og guð um svella-grundir goluna lætur mynda frostblóm úng! Og ótal rúnir, eins og furðusalir, 'A

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.