Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1908, Page 36

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1908, Page 36
Laug-artorfa. Þeir Br. Jónsson og Dan. Bruun hafa skoðað og skrifað um Laugartorfu1). Eg skoðaði og þennan stað í sumar (4. júlí), og tel það vafalaust, sem Br. J. heíir haldið fram, að hér sé forn þing- staður. Um það bera tóftirnar vitni, þær eru eins og aðrar þing- búðatóftir frá fornöld. Laugartorfa er fyrir norðvestan Laugarfjall, undir Bjarnarfelli, litlu austar en vegurinn þá er riðið er til Geysis frá Múla t. d., en rétt við götuna þá er riðið er áfram upp að Helludal, í stað þess að beygja út á mýrina yfir að Laug eða Geysi. Ef gengið er frá hverunum upp á Laugarfjall, blasir Laugartorfa við fyrir neðan. Hún er nú hrisi vaxin, sem vaxið hefir fyrir skemstu og nú er aftur að eyðileggjast (sökum skordýrs nokkurs er etur frjó- hnappana, að eg held). Fyrrum hefir verið hér fögur valllendisflöt og einkarfagurt svæði. Hrossahagi góður á engjunum, vatn nóg í giljunum ofan úr fellinu; fiötinni hallar niðurávið og mátti vel finna góða þingbrekku. Eg taldi 2 hringi og 6 tóftir, en vel geta þær verið hér fleiri, þótt þær sé vandséðar sökum skógarkjarrsins. — Staður þessi verðskuldar nákvæmari rannsókn en við varð komið í þetta skifti. >) Sjá Árb. ’05, bls. 51. Matthías Þórðarson.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.