Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1908, Page 38

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1908, Page 38
40 hefir um steininn og hann hangið í, og þannig hefir steinninn verið sýndur á Forngripasafninu síðan hann fanst. I bollanum hefir verið spik eða lýsi og fífukveikur í, svo sem gerðist í kolum og lýsis- lömpum. Á safninu eru allmargir aðrir steinlampar og steinkolur, en enginn annar til þess gerður að hanga, að því er virðist. Mun Árb. flytja síðar myndir af nokkrum af þessum merkilegu steinum og nánari skýrslu um þá. Einn fanst í hörgsrústinni í Hörgsdal (sbr. Árb. 1903, bls. 2, og 5. og 3. mynd á VII. myndablaði). í Efstaclal er steinn aflangur, um 1 al. að lengd. Hann er sléttur að ofan og letrað þar á hann: »land : skjálpti: 1614«. Steinn- inn er nú í tröppum inn að bæjardyrum, en var að sögn áður þröskuldur í kofadyrum nokkrum. — Hvergi annarstaðar mun getið um landskjálfta það ár hér á landi1). í Haukadalskirkjuhurð er hringur fornlegur úr járni, sívalur og sléttur; um hann er sú þjóðsaga, að hann sé úr göngu- staf Bergþórs Bláfellings2 * * * * *). Platan undir hringnum er öllu merkari, steypt úr kopar með rósum í miðju og leturlínu umhverfis8). Skjöldurinn er, eftir letrinu að dæma, gamall reiðaskjöldur, því á honum stendur þetta vísu-upphaf: »mitt star bvid beitla dyr breitt a pell o . . .« (þ. e. Mitt stár búið beitla dýr, | breitt á pell o[g klæði?]. — í kirkjunni er forn klukka, allstór, frá Skál- hölti; mun hún vera úr dómkirkjunni og að líkindum frá fyrra hluta 16. aldar. Að Iiaukadal kom hún 1885. Hagagarður forn er sýnilegur þvert yfir tunguna milli Hvitár og Tungufljóts, langt nokkuð fyrir neðan bæinu Bræðratungu, hér um bil í stefnuna milli Reykholts og Langholts(-fjalls). Er hann nú ') Sbr. Landskj. á Islandi eftir Þorv. Thoroddsen, bls. 243. Þar er getið um landskjálfta árið áður (1613). 2) Sbr. ísl. þjóðs. I, bls. 214. s) Sjá um hring þennan í bók þeirra Collingwoods og dr. Jóns Stefánssonar um sögustaði, bls. 19. Segja þeir hringinn úr kopar (bronze), en það er rangt. Þeir hafa lesið árifhn skjaldarins svo: »Witt star buit britta dyrr, buuit á þau«; leggja þetta svo út(!) á ensku og ræða frekar um. Þar er og mynd af skildinum, en mjög ónákvæm; með sömu mynd er framspjald bókarinnar prýtt.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.