Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Page 6
6
hún myndi meta tillögur þess manns meir en nokkurs annars í þessu
máli. En alt kom fyrir ekki; fjármálastjórnin var ófáanleg til að
veita safninu féð, jafnvel þó að kirkju- og kenslumálastjórnin væri
hlynt safninu, — víst mest fyrir Thomsens orð, sbr. bréf hennar 3.
febr. 18651). Þó gáfust umsjónarmennirnir ekki upp við málaleitanir
sínar í þessa átt; þegar alþingi kom saman næsta ár, rituðu þeir
því bænarskrá 7. júlí 18652 * *). Nefnd var sett í málið og það rætt
allmikið, og samþykt að senda konungi bænarskrá um styrkveitingu
til safnsins8). En alt fór sem fyr. Svarið kom í kgl. auglýsingu til
næsta alþingis 31. maí 1867: Bænarskráin gat ekki orðið tekin til
greina5).
Jafnframt þessum tilraunum við stjórnina um að fá árlegan
styrk af ríkissjóði, leituðu umsjónarmennirnir til einstakra manna
um einhverja bráðabirgðahjálp, en varð lítið ágengt. Þegar séð var
eftir 3 atrennur til stjórnarinnar að safnið gat ekki fengið féð úr
ríkissjóði, skrifuðu umsjónarmennirnir 12. des. 1866 áskorunarbréf til
almennings um að styðja safnið með fjárframlagi, og fengu fimm al-
kunna mentamenn í Reykjavík til að skrifa nöfn sín undir það til
fulltingis6). Sendu þeir áskorun þessa víðsvegar um land og báðu
menn safna fénu. Árangurinn varð þessi: Samkvæmt skýrslu nefnd-
arinnar 11. nóv. 1867, höfðu gjafírnar numið þá samtals 127 rd. 78
sk.. 23. nóv. s. á. hafa samkv. skýrslu þá bæzt við 31 rd. 40 sk.
og samkvæmt skýrslu umsjónarmannanna 16. des. 1868, tveim árum
eftir að áskorunin hafði verið send út, höfðu þeir fengið þá, í við-
bót við það er áður var talið, 26 rd. 9 sk.; samtals verður þá árang-
urinn 185 rd. 31 sk.7).
Enda þótt bænarskrá umsjónarmannanna og alþingis 1865 hefði
ekki tilætlaðan árangur, sömdu þeir nýja bænarskrá til næsta þings
6. júlí 18678), og var þeirri málaleitun tekið vel af alþingi og með-
ferðin lík og á þinginu 1865, bænarskrá send konungi um 300 rd.
árlegan styrk úr ríkissjóði9), en meðferð stjórnarinnar var einnig söm
‘) Tiðindi um stjm. ísl. II, 143.
!) Alþ.tið. 1865, 2., bls. 218—219.
s) Alþ tíð. 1865, 1., bls. 189-91, 243-50, 291.
*) Alþ.tíð. 1865, 2., bls. 297-99.
Ó Alþ.tíð. 1867, 2., bls. 8.
6) Sjá. Skýrslu um Porngripasafn Isl. I., bls. 32—35.
’) Sjá Þjóðólf 20. ár. bls. 7, 16; 21. ár, bls. 36.
8) Alþ.tíð. 1867, 2. bls. 230—32. — Önnur bænarskrá kom þá og til þingsins
frá Skagfirðingum um styrk til Forngripasafnsins.
•) Alþ.tíð. 1867, 1. bls. 42-44, 410-21; 2. bls. 333-34 (nefndarálit), 336 (at-
kvæðaskrá), 534—36 (bænarskráin til konungs).