Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Síða 18
18
Frú Anna Thorlaáus í Stykkishólmi: Eftirmynd lítil af gamla
vefstólnum (nr. 1208).
Þorsteinn Þorsteinsson á Ytra Hvarfi: Hellusöðull og reiði, söfn
af hnöppum og millum, og margir aðrir íslenzkir gamlir gripir (nr.
1230-1578).
Pétur Jónsson í Reykjahlíð: Kertagrind tinuð, úr járni (nr. 1580).
Sveinn Sveinsson búfræðingur: Drykkjarhorn o. fl. (nr. 1592—94).
Þetta ár voru keyptir margir góðir gripir úr silfri: Bikar Sig-
urðar landskrifara (nr. 1227), beltispör (nr. 1586 og 1620), möttul-
skildir (nr. 1587 og 1610), festi (nr. 1588), deshús (nr. 1608), beltis-
stokkar (nr. 1609 og 1611) o. fl.
1878. Einar Guðnason (sbr. 1876): Átta gamlir gripir (nr.
1629—36).
Sigurður Vigfússon forstöðumaður safnsins: Forn spjótsoddur
(nr. 1644).
Margir aðrir gáfu og gripi þetta ár. Keyptir voru ýmsir góðir
gripir: Fléttusaumsábreiða frá 1721 (nr. 1626), silfurskeiðar (nr.
1652, 1660), silfurhálsfestar (nr. 1661—62), hjónaskál (nr. 1676).
1879. Helgi Helgason í Vogi og Einar Guðnason gáfu báðir
fornar hófhringjur úr bronzi (nr. 1696 og 1700).
Snorri Pálsson á Siglufirði og Einar Guðmundsson á Hraunum
gáfu báðir gamla íslenzka hnakka (nr. 1702 og 1703).
Helgi Sigurðsson prestur á Melum: Altarissteinn, hurðarhringur
og krossmark úr Melakirkju (nr. 1720—22).
Keypt voru m. a. silfurbelti (nr. 1701, 1724 og 1725), hempu-
8kildir(nr. 1708), silfurkambur (nr. 1712), kistastór, járnbent (nr. 1713),
silfurskeið (nr. 1718), merkur hökull frá Þingeyrakirkju (nr. 1719),
rafsteinasörvi (nr. 1723).
1880. Lárus sýslumaður Blöndal á Kornsá: Kornsárfundurinn
(nr. 1774—1784)1).
Þorleifur prestur Jónsson í Presthólum: Skrifborð Ólafs Stefáns-
sonar stiftamtmanns og Magnúsar konferenzráðs, sonar hans (nr. 1805).
Jónas prestur Hallgrímsson á Hólmum: Þrír útsaumaðir gamlir
reflar (nr. 1808—10).
Af öðrum gripum er safninu bættust þetta ár má ennfremur
nefna: Silfurbikar (nr. 1785) og fleiri gripi úr silfri, svo sem must-
arðsker (nr. 1786), deshús (nr. 1788), tóbaksdósir Boga Benediktssonar
á Staðarfelli (nr. 1789), loftverksbelti (nr. 1824), útskorinn skápur (nr.
1834), vatnsdýr (vigsluvatnskanna) frá Holtastaða-kirkju (nr. 1854).
Haugavaðsfundur (nr. 1837—53)2).
‘) Sjá Árb. 1880—81, bls. 57—64.
*) Sjá Árb. 1882, bls. 47 o. s. írv.