Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Síða 23
23
1883. Þórður Guðjóhnsen á Húsavík: Könnulok úr silfri (nr.
2175) og róðukross frá Húsavíkur-kirkju (nr. 2397).
Þjóðmenjasafn Danmerkur: Eftirmynd af Valþjófsstaðar-hurðinni
(nr. 2190)1).
Hilmar Finsen: Um 250 myntir og glerbikar Skúla fógeta
Magnússonar (að sögn, sbr. nr. 2191—2368).
Hannes Johnsen: Kvenhempa og skauttreyja (nr. 2374—75).
Guðm. Thorgrimsen kaupm. á Eyrarbakka: Minnisbikar úr silfri
gefinn Jóni Hjaltalín landlækni (nr. 2376).
Jón Þórðarson bóndi í Eyvindarmúla: Framhlið af staðarkist-
unni gömlu trá Skálholti (nr. 2437)2).
Teigs-kirkja: Krists-likneski (»Ecce homo«) og Andrésar-líkneski
(nr. 2440—41).
Kirkjan á Breiðábólstað í Fljótshlíð: Paxspjald(?) samsett af út-
skornum myndum úr rostungstönn og Kristsmynd gylt og smelt (af
krossi, nr. 2444—45).
Herm. E. Johnsen sýslumaður: Ljósberi Skálholtsbiskupa (nr.
2449).
Reykhóla-kirkja: Hökull útsaumaður (nr. 2458).
Guðlaugur sýslumaður Guðmundsson og Pétur Eggerz: Kista
Staðarhóls-Páls (nr. 2461).
Þetta ár bættist safninu ennfremur ókeypis fyrir samskot margra
manna: Ágæt eftirmynd af sextánsessu þeirri, er grafin var úr
haugnum hjá Gauksstöðum við Sandfjörð í Noregi.
Af keyptum gripum má nefna: Hellusöðull (nr. 2405), púns-
skeið úr silfri (nr. 2477); margir aðrir góðir gripir voru keyptir
þetta ár.
1884. Jóhannes Sigfússon, nú adjunkt í Reykjavík: Látúns-
búinn reiði með miklu verki (nr. 2567).
Gunnar Halldórsson bóndi í Skálavík: Forn hárgreiða úr beini
(nr. 2582).
Benedikt Jónsson á Auðnum í Þingeyjarsýslu: Forn spjótsoddur
(nr. 2583).
Ludvig Hansen í Reykjavík: Búningur af fornum hökli frá
Sauðlauksdal (nr. 2585).
Merkastir þeirra gripa, er keyptir voru til safnsins þetta ár,
eru: Forn hökulkross, gullsaumaður, frá Saurbæjar kirkju á Kjalar-
nesi (nr. 2539). Sprotabelti úr silfri, skarband og silfurkanna (nr.
2573—75). Skálholtskaleikur (nr. 2596).
‘) Sjá Árb. 1884—85, bls. 24—37, m. mynd.
2) Sjá Árb. 1894, bls. 39—40, m. mynd.