Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Blaðsíða 38
38
sjóður og vanræktur, á móts við það hvað verða mætti og vera
ætti.
Þegar núverandi forstöðumaður safnsins tók við umsjón þess,
aðgreindi hann það í eitt aðalsafn, nefnilega forngripasafnið sjálft,
sem hann nefndi Þjóðmenningarsafn, og 4 aukasöfn smærri, nefnilega
Steinaldarsafn, Þjóðfrœðissafn, Vídalínssafn og Myntasafn, og eru i 3
þeirra einungis útlendir gripir. Ennfremur byrjaði hann á að safna
sjerstaklega til 5. safnsins, Mannamyndasafnsins, og lagði grundvöll-
inn til þess með þeim mannamyndum íslenzkum, er voru í Forngripa-
safninu. Á meðan á niðurskipun safnanna stóð í Safnahúsinu, bætt-
ist 6. smásafnið við: Fiske’s-safn, ýmsir erlendir forngripir, málverk
og skrautgripir, sem próf. Will. Fiske hafði ánafnað Forngripasafn-
inu eftir sinn dag. Alla safnaheildina nefndi fornmenjavörður Þjóð-
menjasafn Islands, og hefir það nafn verið tekið upp í fjárlögin af
alþingi 1911 — Sérhverju þessara smærri safna var niðurraðað fyrir
sig, en ekkert þeirra gat fengið nægilega stórt né hentugt rúm.
Þjóðmenningarsafninu var raðað niður í tveim höfuðdeildum og voru
allir kirkjugripir hafðir í annari deildinni, en í hinni allir aðrir gripir,
og þeirri deild aftur skift í undirdeildir eftir aldri og eðli hlutanna.
Á þeim 5 árum er safnið heíir verið undir umsjón fornmenja-
varðar hefir það aukist svo sem eftirfarandi skýrsla ber með sér.
í Árb. Fornl.fél. 1909 o. s. frv. hafa birtst skýrslur um hina árlegu
viðbót, með stuttum lýsingum á gripunum. Ennfremur hafa verið
birtar í »Þjóðólfi« 62. árg. nr. 24—27 og 63. árg. nr. 34 skýrslur
um gjafir til safnsins á árunum 1908—10, og í »ísafold« 39. árg. nr.
70 skýrsla um gjafirnar árið 1911.
Þjóðmenningarsafnið:
Gripir fengnir Keyptir Sam- Tala gripa
ókeypis gripir tals við árslok
1908 82 121 203 5664
1909 112 128 240 5904
1910 149 51 200 6104
1911 66 56 122 6226
1912 96 104 200 6426
505 460 965
Vídalínssafn:
1908 18 gripir
1909 1 málverk
1910 48 gripir
1911 3 gripir (2 myndir og 1 silfurgripur)
1912 1 silfurgripur.
í Vídalínssafni eru gripirnir ekki tölusettir.