Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Blaðsíða 59
59
6119. %
6120a-b 4/é
6121. 7/5
6122. —
6123. —
6124. —
6125. —
Grafskrift, prentuð og í umgjörð með gleri fyrir, yflr hús-
frú Olöfu Jónsdóttur, konu Jóns Sigurðssonar, sem grafskr.
nr. 6118 er yfir, d. 1861.
Báðar þessar grafskriftir afh. safninu af Höllu
dóttur þessara hjóna, Jóns og Ólafar.
Kaleikur og patína úr silfri með rómönsku lagi. Verkið
slétt og skrautlaust; kaleikurinn með hálfkúlumyndaðri
skál, hnúður og stétt kringlótt; h. 13 sm., vídd sk.
10,6 sm. og dýpt 4,2 sm., þverm. stj. 11,4 sm., hnúðs
4.8 sm., leggs 2,2 sm. Pat. þung og þykk; þverm.
12,3 sm. Á barminum að ofan er leturlína með róm.
upphafsstöfum: f IN CORPVS XPI CONVERTITVR
HOSTIA PANIS. Þar sem X er hefir fyrst verið grafið
C (átt að verða með latn. rithætti, en svo verið gert
með hinum gríska sem altítt var). Gripir þessir eru
ekki yngri en frá 12.—13. öld. Þeir eru nú ný-
gyltir og nokkuð lagaðir að sögn, en halda þó sínu
gamla lagi og voru áður með fornri gyllingu. Frá
Reynistað.
Andrjes Fjeldsteð, Ferjukoti: Stokkur úr furu, læstur
með vélalæsingu, járnnegldur, skornar 2 höfðaleturs-
línur á lok, hliðar og gafla: »gudbiorg jons dotter a
einarsnese a þennan stock eptir fostra sin(n)«. Stærð 1.
28,5 sm., br. 20,5 sm., h. 23 sm. Litill liandraði er í og
á loki hans stendur: gullid, einnig með höfðaletri.
Sami: Stokkur lítill úr furu og beyki, hefir verið með
renniloki, skúffu undir dotni og renniloki fyrir, utan á
öðrum gaflinum, en lokin vanta og skúffuna. Stokkur-
inn er trénegldur, með útskurði á hliðum, greinum, og
á botninn eru skornir stafirnir IP D A (með skrifletri),
en á annan gafl ártalið 1818. Stærð: 1. 13 sm., br. 8
sm., h. 12 sm.
Sami: Snældusnúður úr furu (rekaviði), þverm. 7,3—
7.8 sm., þ. 2,8 sm.; útskorinn, með rós að ofan og höfða-
leturslínu umhverfis: »asta helga dott(er)«.
Sami: Hornspónn úr ljósu horni, gamallegur og látúns-
spengdur; 1. 15 sm. Skaftið er skorið út.
Sami: Eldstál, í lögun sem sporbaugur, en oddur út
úr báðum endum, þunt og flatt, 1 10 sm., br. 3,7 sm.
Á öðrum endanum eru stimplaðir stafirnir I. P.
8*