Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 78
78
H. v. Jaden hefh’ bent á, að líkir lampar sé enn not-
aðir í Tíról.
6424 a-b 28/12 Mortér með stauti, steypt úr kopar og rend, með strik-
um umhverfis, en skrautlaus að öðru leyti. Hæð mor-
térsins er 13,5 cm., þverm. um botn 12,2 cm., en um
barma 15,9 cm., þykt minst um miðju 0,6 cm., mest
nærri börmunum 1 cm., lengd stautsins er 22,8 cm.,
þverm. 1,6 cm. um legginn, en 4,3 cm. um hnúðana.
Virðast vera frá 17. öld.
6425 a-c— Lóð (met), steypt úr kopar, 2 punds-lóð og 1 merkur-
lóð, ferstrend öll, öll með 5 stimplum: 1) Löggildingar-
merkinu, krýndu C með 5 í (þ. e. Christian 5. konung-
ur), 2) þyngdarmerkinu, 1 P á pundslóðum l/2 P á
merkurlóðinu, 3) merki Kaupmannahafnar, 3 turnum,
í miðju, 4) K (þ. e. Köbenhavn?), 5) ártalinu, 1798 (?)
á öðru pundslóðinu, 1852 (eða 1832?) á hinu, og 1831
á merkurlóðinu. Eldra pundslóðið er 2,8 em. að hæð
4—4,8 cm. að þverm., þ. 499 gr. Yngra pundslóðið er
3 cm. að hæð, 4—4,7 cm. að þverm., þ. 497 gr. Merk-
ur-lóðið er 2,4 cm. að hæð, 3,2—3,8 cm. að þverm., þ.
249 gr.
6426. 81/i2 Kristján Jónsson Auraseli í Fljótshlíð: Plpulykill úr
járni, mjög lítill, 1. 4 cm., handfangið kringlumyndað,
gagnskorið. Allur ummyndaður af ryði. Fundinn í
gömlum uppblásnum rústum skamt frá Auraseli. Lík-
lega frá hengilás, er þar hafði fundist, en var eyði-
lagður; hafði verið kúlumyndaður, sbr. nr. 1108, 2417
og 4009.
Vídalínssafn.
Frú Helga Matzen hefir með bréfi sínu, dags. 1. nóv. 1912, af-
hent safninu litla silfurskál (hjónaskál) með eyrum eða handföngum
við barmana og eru mótaðar englamyndir á þau; öll er skálingraf-
in að utanverðu, blómmyndabekkur í endurlifnunar- og að vísu ská-
boga-stíl. Annars vegar er í bekkinn grafið ártalið • 16 ■ 80 •, en hins
vegar búmerki, er virðist sett saman af S og L o. fl. Lítil stétt er
undir skálinni. Hæð 4,5 cm., þverm. um 5,3 cm. um miðja skálina
(bumbuna). Fengin á íslandi. Sbr. nr. 1676 í, Þjóðmenningar-
safninu; er sú skál nær eins, lítið eitt víðari1). — Skálin kom til
safnsins 13. nóv.
') Sbr. ennfr. Jörgen Olrik, Prikkehorn og Selvtoj, bls. 67—68.