Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1984, Page 112
116
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Stjórnarskrár-minning. Á þjóðhátíðardeginum 2. þ.m. hcldu
ýmsir frjálslyndir menn hér úr bænum og úr nágrcnninu fund
með sér í minningu þess, að þá voru liðin 10 ár frá því er landið
fékk stjórnarskrána. Á fundinum voru rúmir 40 manna. Jón
Ólafsson alþm. og ritstjóri stýrði fundinum. Hélt hann þar langa
tölu og snjalla um stjórnarástand vort, svo sem það nú er, og benti
á ina helztu galla þess. ... Þar var og talað um fríkirkjumálið ...
Um atvinnuvegu var og talað. ... Á ýmsar fjárveitingar landshöfð-
ingja var þar og minnst, er eigi þóttu allar vel niðr koma.
Að loknum ræðum gengu fundarmenn til samsætis á hótellinu
Alexandra og sátu þar að kveldverði. Um kveldið voru þar ýms
minni drukkin: fyrir minni íslands mælti Þorl. Ó. Johnson og var
þá um lcið sungið kvæði eptir stúd. mag. Valtý Guðmundsson,
„Merki íslands", er hér fer á eptir; fyrir minni íslenzkra bænda
mælti Stgr. skólakennari Thorsteinsson og fyrir minni ritstjóra
inna tveggja frjálslyndu blaða, „Þjóðólfs" og „Fjallkonunnar",
mælti Þorlákr Ó. Johnson kaupmaðr.
Yms vóru þar fleiri minni drukkin.
Að lokum komu allir viðst. fundarmenn sér saman um að
stofna „þjóðfrelsisfélag" til viðreisnar politisku lífi í landinu...
Fundr þessi og samsæti fór vel og sæmilega fram, en enginn
embættismaðr var á fundinum, og að eins einn úr þeirra flokki
tók þátt í samsætinu.11
Merki íslands.
Lag: Ja, vi elskcr dctte landet.
Já, vjer eigum ættjörð fræga,
erum sjerstök þjóð,
þars við jökla etur æga
elds og þrumu glóð.
Eigum, eigum auðga tungu,
okkar feðra mál,
sem á skáldin skýru sungu,
skært sem hljómi stál.