Fréttablaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 14
14
FRETTABLAÐIÐ
5. apríl 2002 FÖSTUDAGUR
HASKOLABIO
HAGATORGI • 5ÍHI 51.0 ! 71 ? * 5TÆR5TÁ StNIHGÁRTJÁLD LÁH05ÍHS
Sýnd kl. 4, 7 og 10
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15 Ireykjavík guesthouse kl. 4 Og 81
(beautiful mind kL4J0,7og9J0| [mÖNSTER m/ísLtal kl. 4]
lAMELlE kl. 5.45 og lo| jPETER PAN kl. 41
ISIDEWALKSÖF NY ktl] (arne aarhus kl,10|
fflU
smfífífíKi biú
fATtftÁS. lÁOtlllÁS. HOIIAHDS U SONS.
. * í h' f T *
m r r ;: g i hsfA.n
Sýnd kl. 6, 8 og 10
jíSÖLD m/ens. tal kl. 4, 6, 8og 101
jlSÖLD m/ísLtal
kl. 4, 5 og 61 jLORD OF THE RINGS
tXl Dolt>y /DD/ Ijí'x SlMl S64 0000 - www.smarabio.is
ALfABAKKA
^ITOTWi.rTgrill
BRITNEY SPEARS
TiTog'sirV---------------------------
kl. 8 1 Pf léÉAUTlFUL MIND 5.30, 8 og 10.40 [
SNOW DOGS
I
!
frábær verð
á vandaðri smíði
LÁRÁ
s§&Í.SMlEj^/
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10
sími 561 1300
oooooooooooooooooooooooo
Vinsælustu
ferrftingargjafirnar
« hringar
• hálsmen
> krossar
> hjörtu
FRÉTTIR AF FÓLKI
Rímur rapparans Eminem eru
víst enn flugbeittar. Þessu
heldur upptökustjórinn og
hiphop-gúrúinn
Dr.Dre að minns-
ta kosti fram.
Orðrómur um það
að pilturinn sé
eitthvað að
„þroskast" í
textagerð hafa
verið á sveimi, en
Dre segir það
ekki endilega vera rétta lýsingar-
orðið fyrir textana á væntanlegri
breiðskífu hans. Platan mun heita
„The Eminem Show“ og er vænt-
anleg í búðir þann 27.maí.
T\ /Tarilyn Manson hefur tekið
lVXað sér að leika hlutverk í
myndinni „Party Monster".
Myndin er sann-
söguleg og gerist
í New York í upp-
hafi síðasta ára-
tugar. Hún f jallar
um næturklúbbs
eigandann og
morðingjann
Michael Alig.
Persóna Mansons
heitir Christina. Barnastjarnan
Macaulay Culkin mun fara með
hlutverk Alig.
Leikarinn Billy Bob Thornton,
eiginmaður Angelinu Jolie,
fór til Englands á dögunum með
hljómsveit sinni
til að uppfylla
þann ævilanga
draum sinn að
spila í Cavern-
klúbbnum í Liver-
pool. Þar stigu
Bítlarnir sín
fyrstu spor. Billy
Bob tók nokkur
tökulög frá sjöunda áratugnum í
bland við sín eigin. Þess má til
gamans geta að íslenska sveitin
Mínus lék einmitt á þessum sama
klúbbi á tónleikaferð sinni um
England fyrir skemmstu. Þeir
gerðu sér lítið fyrir og sprengdu
hátalarakerfið.
Julian Casablancas, söngvari
hljómsveitarinnar The
Strokes, lenti í slag við einn yfir-
mann útgáfufyr-
irtækis síns.
Hann smellti ein-
um á kauða þegar
hljómsveitin var í
París á dögunum.
Þannig var mál
með vexti að fyr-
irtækið var að
bóka sveitina í
hinar ýmsu neyðarlegu uppákom-
ur og það líkaði söngspírunni víst
illa. Hann á þó að vera hinn mesti
Er aldrei of seint
í rassinn gripið?
I dag er frumsýnd í Sambíóunum Álfabakka og á Akureyri
kvikmyndin The Royal Tenenbaums. Hún var tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna fyrir besta handrit.
kvikmynpir Fjölskyldusaga
Tenenbaumsfjölskyldunnar hefur
verið afar skrautleg til þessa.
Börnin þrjú þóttu öll undrabörn í
æsku. Chas (Ben Stiller) byrjaði
að versla með fasteignir um 12
ára aldur og virtist hafa nánast
ómannlegan skilning á heims-
markaðnum. Margot (Gwyneth
Paltrow) skrifaði leikrit í æsku og
vann m.a. Pulitzer-verðlaunin á
meðan hún var enn í grunnskóla.
Richie (Luke Wilson) var ungur
talinn einn efnilegasti tennisleik-
ari heims og varð m.a. Banda-
ríkjameistari í sínum aldurs-
flokki þrjú ár í röð. Faðir þeirra,
Royal Tenenbaum (Gene Hack-
man), var hins vegar sérstaklega
flínkur við það að brjóta krakka
sína niður og gafst móðir þeirra
(Anjelica Huston) upp á honum.
Royal gerði börnum sínum nokk-
uð ljóst að honum fyndist þau
eiga töluverðan þátt í skilnaðin-
um. Þetta var fyrir 22 árum og
síðan þá hafa öll bömin þr jú hrap-
að allharkalega niður af stjörnu-
himininum. Þau hafa heldur ekki
séð föður sinn síðan þá.
Royal svífst einskis þegar
kemur að því að bjarga eigin
skinni. Þegar hann er rekinn út
úr hótelherbergi sínu, þar sem
hann hefur búið í 17 ár, ákveður
hann að reyna að koma sér í
mjúkinn hjá fjölskyldu sinni til
að þau geti séð um hann í ellinni.
Hann ákveður því að ljúga að
þeim að hann eigi aðeins um 6
vikur eftir ólifaðar.
Margt hefur vitanlega breyst
síðan hann hvarf úr lífi þeirra.
Chas er ekkill og á tvo syni sem
líkjast honum afar mikið.
Margot er gift mun eldri manni,
sálfræðingnum Raleigh St. Clair
(Bill Murray). Hún eyðir sex
tímum á dag lokuð inn á salerni
fyrir framan imbakassann. Hún
missti hálfan fingur í slysi í
bernsku. Tennisferill Richies fór
í ræsið eftir afar neyðarlegan
ósigur í beinni sjónvarpsútsend-
ingu. Eftir það lét hann sig hver-
fa og hefur ferðast um heiminn
og hefur aðeins haft samband
með því að senda skeyti héðan
og þaðan. Hann hefur einnig alla
tíð verið ástfanginn af systur
sinni, sem reyndar var ættleidd.
Það ætti að vera orðið flest-
um ljóst að um er að ræða gam-
anmynd, þó að undirtónninn sé á
alvarlegu nótunum. Myndin var
tilnefnd til Óskarsverðlaunanna
fyrir besta handrit. Höfundar
þess eru leikstjórinn Wes Ander-
son og leikarinn Owen Wilson en
þeir gerðu áður saman myndina
Rushmore. Owen leikur smá-
hlutverk í myndinni, en hann er
bróðir Luke Wilsons sem fer
með hlutverk föllnu tennis-
stjörnunnar.
Uiggi@frettabladid.is
THE ROYAL TENENBAUMS
Fjölskyldan er kominn saman í fyrsta sinn í 22 ár, óhætt er að fullyrða að hér sé ekki
allt með felldu.
rólyndisnáungi. Einnig er það að
frétta af The Strokes að tónlistar-
maðurinn Ryan Adams, sem er
félagi þeirra, tók upp alla breið-
skífu þeirra „Is this it?“ í blúsút-
gáfu. Þeir biðu spenntir eftir því
að koma heim til New York og
heyra afraksturinn. Adams hefur
ekki ákveðið hvort hann ætli að
gefa plötuna út. Nú tekur við 6
mánaða frí frá tónleikum og ætl-
ar sveitin beint í það að semja og
taka upp nýja plötu.
Nú ætlar Geri Halliwell að
gefa út bók um upplifanir
sínar. Þar ætlar hún m.a. í fyrsta
skipti að greina frá því hvernig
sambandi hennar og söngvarans
Robbie Williams
var háttað. Það
hefur verið talið
að meint ástar-
samband þeirra
hafi einungis
verið sölubrella.
Bókin mun aðal-
lega fjalla um líf hennar eftir að
hún yfirgaf Kryddstúlkunnar.