Fjallkonan


Fjallkonan - 31.05.1892, Side 3

Fjallkonan - 31.05.1892, Side 3
31. maí 1892. FJALLKONAN. 87 ar. Tölur þessar gefa dálitla hugmynd um hve störfenglegt fyrirtækið er. Pyrsta hnausnum var velt upp 11. nóv. 1887 og síðan hefir verkið haldið áfram hvíldarlaust. Þegar þetta var ritað, var búið að kosta til skurðarins 10V2 miljón pund sterling. Fullgerðar vóru 11 mílur af honum neðst; sá partr hans var og þegar opnaðr fyrir samgöngurnar. *Upptök trúarbragðanna. (Niðrl.). Kaflinn úr sögu Forn-Egypta er þannig; „Fyrst á öldum var trú Forn-Bgypta náttúrutrú; þeir trúðu þvi að sólin væri guð, eins og flestar aðrar fornþjóðir. Þó var það tiltölulega snemma á tímum, að Egyptar álitu guð annað og meira enn hina sýnilegu sól; af þvi að skynsamleg regla var á öllum hlutum, hlaut'sólin líka að vera skynsemi-gædd vera, líkt og mennirnir, þó, sem vænta mátti, standa þeim miklu framar. Þannig var fsólguðnum líkt til manna og gefin mann- leg mynd; hann lifði líka í hjónabandi sem þeir, og átti son með konu sinni. í öllum meiri háttar egyptskum bæjum, sem allir vóru ríki sér fyrir jdaga Menes, var einn slikr þrieinn guð. Menes| varð einvaldskonungr Egypta 3893 árum fyrir Krists fæðing, og er þaðíeinum 50 árum eftir heimsköpum, þó farið sé eftir tímatali |biblíunnar, enn sé farið eftir venjulegu tíma- tali, og það er eflaust réttara, verðr það hér um bil 2000 árum fyrii' sköpun Adams. í Þebu ‘hét guð sem faðir Amon, sem móðir Muth og sem sonur Chonsu ; i Abydos var Osiris guð fað- ir, Isis móðir og Horus sonur; í Memphis hét guðsþrenningin Ptha, Pacht eða Seehet og Imhotep. Nöfnin breyttust nefnil. eftir því hvernig hugmyndinni um hinn uppkaflega sólguð mun- aði til á ýmsan hátt í þessum mörgu smárikjum, og guðs-hug- myndin fékk’þá, eftir "þvi sem menningin óx ogftimar liðu, meira andlegt innihald. Amon þýðir hulinn, ósýnilegr. Guð Þebu- manna var því eigi.framar hin sýnilega sól, heldr eins og bak við hana, fyrir utan allan hinn sýnilega heim. Sem skapara heimsins skoðuðu Egyptar hann, eins og [Gyðingar, Abraham og Móses, löngu síðar, sem líka höfðu guðshugmyndina frá E- gyptum, verandi fyrir utan hið skapaða og þá ósýnilegan. Þó var hinni upphafl. hugmynd haldið jafnframt, og guð Þebumanna því oft kallaðr Amon-Ra (sólguðinn Amon), af því að sólin enn var sú mynd náttúrunnar, sem guð opinberaði sig fullkomnast í. Osiris, guð Abydosmanna, var settr í samband við mannkosti og og dygðir manna, og menn hugsuðu sér hann því sem hegnandi og umbunandi guð, og þess vegna varð Osiris líka, eftir að trú- arlífið hafði náð meiri þroska, dómari dáinna manna í undir- heimum. Ptah þýðir \að opna. Guð Memphisbúa Ptah er því sá sem opnar, opinberar sig, og þá helst í uxanum Apis, sem þeir trúðu að guðinn byggi í, og er uxinn því kallaðr annað líf Ptahs. Kálfrinn Apis var getinn við ljósi af kimnum, og und- an kvígu, er bar í fyrsta sinn; hann þurfti lika að hafa ýms sérleg einkenni. Synirnir Chonsu og Imhotep í guðsþrenniugu Þebu- ogj Memphisbúa vóru guðir læknaíþróttarinnar. Skoðaðr sem skapari er guð ýmist kallaðr Tum eða Bum. Tum er lát- inn sveima aleinn í byrjun alls upphafs, [á undan sköpuninni, yfir vötnum himinsins, og Rum skapar að bæn hinna guðanna konu handa manninum Batan. Vér sjáum hvernig sóltilbeiðslan breyttist stórvægilega, er stundir liðu, alt eftir því, hvernig guðshugmyndin § í hverjum stórbæ breyttist að innihaldi, eða var skoðuð frá ólíku sjónarmiði. Það hefir áreiðanlega liðið langr tími þangað til þessi munr fullmyndaðist og festist í hugsunarlífi manna, enn þó hefir það orðið löngu fyr enn Egyptaland varð eitt riki, því að þegar Menes konungr var búinn að brjóta undir sig öll smá- ríkin á Egyptalandi og gera þau að einu ríki, var munrinn þeg- ar orðinn svo rótgróinn, að úr guðum smárikjanna var nú eigi framar hægt að gera einn guð, er fullnægði öllum, heldr varð að halda þeim öllum, og vóru þá hverjum þeirra ætluð þau störf, er hann hafði áðr í hveiju smáriki. Guði höfuðborgarianar var þó skipað í öndvegi og kallaðr æðstr. Þetta forsæti hlaut fyrst guðinn Ptah með konu sinni Sechet og syni þeirra Imhotep, með- an Memphis var höfuðborg, og síðar Amon með Muth og Chonsu, þegar Þeba var höfuðborgin. Jafnhliða þessum almenna guða- hóp, tignaði þó hvert fylki sína fyrri guði, og komst þannig í bága við þjóðkirkjuna. Hér við bættist lika, að sóltilbeiðslan gamla var alls eigi dáin út. Sólin var tilbeðin jafnt hinum guð- unum um alt Egyptaland. í einum sálmi til sólarinnar er með- al annars: „Ó, sólarguð, geislaljómans drottinn, lofaðr sért þú á morgnana við upprisu þína og á kvöldin við þína niðrgöngu. Ég ákalla þig, drottinn eilífðarinnar. Lofuð sért þú sól beggja sjóndeilda (austrs [og vestrs), þú skapari, sem skapaðir þig sjálf. Fagr er* ljómi^ þinn, er þú lýsir fjörðina með geislum þínum. Allir guðirnir^ fagna, er þeir [líta þig, konung himinsins. Ég yngist allr,"[er ég skoða fegrð þina. Far þú vel, þegar þú fer tiiyifsins lands, þú faðir guðanna“. Tígnartitill Egyptakonunga var „sonr sólarinnar", og átti það að tákna hið guðdómlega ætterni fþeirra. Ennfremr má færa það til sönnunar. fyrir því, að sóltilbeiðslan hélst^að æðsta sæla Egypta í öðru lífi var falin ,i því að komastjí eilíít samfélag við guð, enn [þeir skyldu þó eigi annað við það enn að sigla með sólinni á sólknerrinum yfir himininn á daginn ogjþieðanjarðar á I nóttunni. Alt jþetta sýnir að sólin jvar [tígnuð sem æðsti guð fram áj.síðustu tíma. Það gleymdist heldrleigi, að allir guðirn- ír^vóru upprunalega jafnir, því[að hver bær áleit sinn guðj'æðst- an[og elstan, og að hann hefði skapað alt, jafnvel þótt hann í guðatölu þjóðkirkjunnar ætti sæti neðar. Deilur þær og sundr- ungar, sem af því leiddi^jað hinni upphafl. sólartilbeiðslu var | haldið jafnhliða þjóðkirkjutrúnni, og henni aftr jafnframt átrún- aðinuin. út, um land á einhverja aðra sérstaka guði, þar sem ým- ist-var tígnaðr sólguðinn, ýmist þjóðkirkjuguðinn eða þá smá- | ríkjaguðirnir sem æðsti guð oglfaðir guðanna, reyndi nú Ame- | nophis 4. að setja niðr og færa í lag með þvi að færa trúna j aftr til síns upphaflega hreinleika og losa hana við öll seinni tíma innskot og viðbætr. Hann afnam marggyðistrúna og inn- j leiddi aftr hreina sólartrú; Egyptar "ekyldu allir trúa á einn sannan guð, sólina; þó var það eigi hin sýnilega sól, heldr trúðu menn nú að guðjværi ósýnilegr og sólin að eins ljómi guðs, guðs opinberunar-mynd. Gömlu guðirnir voru nú ofsóttir, einkum Amon, sem þá var æðsti guðinn, af því að Þeba var höfuðborg- in, enn þetta stóð eigi lengi, því að þegar eftir lát konungsins sótti í gamla horfið, og innan skamms var alt komið i samt lag og áðr“. X- Loftsiglingar. Svo er að sjá á útlendum blöðum sem loftsiglingar séu nú komnar á góðan rekspöl í Ameríku. Ameríkst tímarit, sem heitir „Tbe electrieal Rewiew“ og út kemr í New York, skýrir frá því að í ríkinu Illinois sé stofnað hlutafélag til að smíða loftför, sem hvert getr borið 50 manns og farið á 15 j klukkutímum frá New York til Lundúna. Þessi loft- för eru öll ger úr hinum nýfundna létta málmi „alu- minium“. Líklega er fregn þessi ekki alveg áreiðan- leg. Nýtt læknislyf segja útlend blöð fundið afrúss- neskum manni, og er nefnt vitalin. Það á að vera ! óyggjandi lyf gegn mörgum sjúkdómum, meðal annars lungnatæring. Nýjasta efni til að leggja með borgarstræti er úr korki og asfalti og þykir taka langt fram öllu öðru. Korkið er rifið sundr og blandað asfalti, og j búnar til hellur. Það er mjúkt að ganga á, veitir örugga fótfestu og verðr ekki hált; það er ódýrt, j og álitið mjög haldgott, og enn er sá kostr við það, j að enginn hávaði Verðr af akstri eða umferð á göt- | um, sem svo eru gerðar. Hæsti maðr í lieimi er í Brasilíu. Hann er sex álnir á hæð. Niðrfallssýki hafa þýskir læknar læknað á ein- um manni með, því að skera gat á höfuðkúpuna og taka út þann part af heilanum sem sýkin var í. Maðrinn varð síðan heill heilsu, og telja læknar víst, að með þessari aðferð megi venjulega lækna sýk- ina.

x

Fjallkonan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.