Fjallkonan - 08.12.1898, Side 2
189
FJALLKONAN.
XV. 48
Fortakslaust skilyrði fyrir því, að ég geti lagt
með frumvarpi til staðfestingar, er, að þar sé 5.
gr. uppkastsins; sú grein er jafn-nauðsynleg,
hvort heldur er sérstakur ráðgjafi eða ekki.
Úr því að ráðgjafinn á að mæta á alþingi og
eiga þátt í umræðunum, verður hann auðvitað
bæði að skilja íslenzku og geta talað hana, en
það verður í framkvæmdinni sama sem að hann
má til að vera íslendingur. En það er ekki hægt
að hafa það í lögunum, að hann skuli vera „íslend-
ingur“; konungurinn verður að hafa stjórnlagalega
heimild til að kjósa sér hvem þann mann til ráð-
gjafa fyrir ísiand, er hefir það til að bera, sem
fyrir skilið er til þess að hafa á hendi embætti i
ríkinu“.
Af þessum bréfköflum má sjá, að ráðgjafinn álítur
að íslands ráðgjafinn eigi að vera skyldur að mœtaá
alþingi og að hann eigi að geta skilið og tal&ð ís-
lenzku eða með öðrum orðum vera Islendingur.
Hefði þingið haft fyrir sér þetta ráðgjafabréf,
mundi frumvarpið að líkindum hafa fengið öðru vísi
undirtektir á þingínu, því ráðgjafabréfið skýrir tvö
höfuðatriði, er hafa orðið að miklu deiiuefni bæði
innan þings og utan.
Alþýðlegar íræðigreinir.
Bak teríur.
FJestir hafa heyrt getið um bakteríur, lesið um
þær í blöðum eða timaritum og séð að þeim er oft
kent um sjúkdóma og dauða manna, en mörgum
mun þó vera óljóst um þessar smáverur að öðru
leyti. Af því að b-ikteríurnar hafa svo mikla þýð-
ingu í lifl voru, að kalla má að lífsheill vor sé að
mörgu leyti undir þeim komin, þykir líklegt að al-
menningur geti haft gsgn af að fræðast dálítið um
þær, og kemur hér því stutt grein um það efni.
Hvað eru bakteríurf
Bakteríur eru örsmáar jurtir, sem lifa á öðrum
jurtum eða dýrum eða í efnum, sem eru komin af
jurtum eða dýrum (organiskum efnum). Þær eru
alment nefndar ýmsum nöfuum (baciller, mikrober
o. s. írv.), en bakteríur er venjulegasta nafnið.
Bakteríufræðin og viðgangur hennar.
Bikteríufræðin er komin upp á síðari hluta þess-
arar aldar. Fyrir 1850 vissu raenn ekkert um bak-
teríur. E>að vóru &ð eias einstakir visindamenn,
sem höfðu grun um að til væru smáar lífsverur, sem
væru undirrót rotnunar og sjúkdóma o. s. frv.
Louis Pasteur.
Höfundur bakteríufræðinnsr og fremsti maður í
þeirri grein til þessa tíma er Loais Pasteur(les: lú-í
pas-tör). Upphaf og framför bakteríufræðinnar er
samvaxin lífsstarfi hans.
Pasteur gerði iýðum Ijóst, að bakteríurnar eru
hvarvetna í kringum 03s, og að frá þeim stafar öll
rotnun, súrnua, gerð í ýmsurc efnum, (t. d. öli), mygla
o. s. frv., og að hægt er að koma í veg fyrir þetta
með því að verjast bakteríunum. Honum tókst
þannig að geyma kjötseyði o. fl. árum saman án
þess það úldnaði eða skemdist. Honum er að þakka
að menn geta nú geymt kjöt og ýms önnur matvæli
árum saman án þess þau skemmist.
Seinna fann Pasteur orsakir til tveggja bakteríu-
sjúkdóma, sem lá við sjálft að eyddu silkiorminum
og þar með öllum silki-iðnaðinum í þeim löndum,
þar sem silki er ræktað, svo sem einkum á Frakk-
landi, Ítalíu o. fl. löndum suður-Evrópu og nokkur-
um hluta Asíu. En Pasteur fann varnarráð gegn
þessum sjúkdómum, svo að þeim varð útrýmt á
stuttum tíma úr öllum silkilöndunum. Það hefir
verið sýnt með tölum, að Pasteur hafi með þeirri
uppfundningu einni áunnið föðurlandi sínu meira enn
5000 miljónir franka, eða meira enn alt það fé sem
Frakkar greiddu Þjóðverjum í hernaðarbætur eftir
ófriðinn 1870—71.
Loks fann Pasteur að margir aðrir sjúkdómar
stafa af bakteríum, svo sem miltisbrandur, svína-
sýki, hænsakólera, lungnasýki, vatnsfælni o. fl. En
hann lét ekki þsr við Ienda, heldur fann hann ráð-
ið við öllum þessum sjúkdómum, bólusetningar, og
með þeim bjargaði hann frá dauða dýrum og mönn-
um þúsundum saman. í suður-Evrópu er vatnsfælni
tiður sjúkdómur og banvænn, en nú eru þar reistar
margar lækningastofnanir til þess að ráða bót á hon-
um með bólusetningar-aðferð Pasteurs. Svo telst til
að síðan 1880 til þessa tima (1898) hafi tekist að
bjarga lífi 30000 manna með fundningu Pasteurs,
sem annars hefðu dáið kvalafullum dauða.
Margt mætti fleira segja um æfistarf bins mikla
meistara, svo sem fundningar, sem snerta tilbúning
á öli, víni, ediki o. fl., og ekki sízt um það, hvernig
hann hefir lagt nýjan grundvöll til heilsufræðinuar
og meðferðar sjúkdóma, svo sem meðferðar á sárum,
svo að nú er hægt að lækaa ótölulegan fjölda manna,
sem áður urðu ekki læknaðir. En þetta er nóg til
að sanna, að varla hefir nokkur maður uppi verið,
sem mannkynið hefir jafnmiklð að þakka sem Louis
Pasteur.
Eftirmenn Pasteurs.
Margir hafa gengið í spor Pasteurs, og hver upp-
fundning hefir rekið aðra, svo að bakteríufræðin er
orðin mjög víðtæk vísindagrein og helzta máttarstoð
læknislistarinnar og hins efnafræðilega iðnaðar.
Það hefir komið i ljós um fleiri og fleiri sjúkdóma,
&ð þeir stafi af bakteríum. Þannig hefir þýzkur
læknir Robert Kock sannað, að svo er um kóleru
og lungnatæringu, og ýmsir aðrir læknar hafa kom-
ist að hinu sama ura ýmsar hitasóttir (febra), „dif-
teritis“, heimakomu og marga fleiri sjúkdóraa. Eftir-
menu Pasteurs hafa líka reynt að finna meðul gegn
þessum bakteríusjúkdómum, þótt þeim hafi enn lítið
áunnist í því í sam&nburði við hann.
Vér getum þó vænzt þess, að þeir tímar komi, að
menn geti að miklu leyti komið í veg fyrir eða jafn-
vel læknað alla b&kteríusjúkdóma. Mikið hefir þegar
áunnist. Það hefir nú tekist að vinna bug á ýmsum
kírúrgiskum bakteríusjúkdómum, sem áður vóru tíðir,
! jafnvel heimakomu og barnsfarasótt.