Lögberg - 14.09.1939, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. SEPTEMBER 1939
5
stóla og voru fullstórir til
þess. Tvö rifin voru sett upp
hvort á móti öðru við inn-
ganginn, og mynduðu boga svo
háan að hann náði manni
langt upp fyrir höfuð. Eg vil
ráðleggja öllum fslendingum,
sem til Seattle koma, að skoða
þetta mikla, gamla og ein-
-hennilega skip. Þegar maður
gengur um það finst manni
eins og því skapist lifandi sál,
er hvísli að manni ótal sögum
og æfintýrum, sumum hrif-
andi og hryggjandi, öðrum
gagntakandi og gleðjandi.
Á meðan við vorum á skip-
inu fór Hallgrímsson leiðsögu-
maður minn afsíðis með
manni, sem hann þekti, til
þess að tala við hann. Á með-
an hlustaði eg á þrjá menn,
sem töluðu um landsins gagn
og nauðsynjar. Þeir deildu
um Roosevelt forseta. Einn
var eindreginn fylgismaður
hans, hinir einbeittir og ill-
vígir andstæðingar. Þeir for-
mæltu honum niður fyrir allar
hellur í sambandi við stefr.u
hans í fátækramálunum:
“Hann dekrar við þetta hyski,”
Sagði einn þeirra, “eins og það
væru englar eða einhvers kon-
ar dýrðlingar.” Roosevelts
sinninn andæfði þessu eindreg-
ið og skynsamlega og loksins
hitnuðu umræðurnar svo að
einn þeirra kvað iiiaklegt að
taka allar þessar bölvaðar
landeyður og skjóta þær.
Eg hlustaði á þegjandi;
dauðlangaði til þess að leggja
orð í belg, en hélt að þögnin
væri heppilegust í þetta skifti.
En i sambandi við þann, er
síðast talaði datt mér í hug
sagan um hann Svaða gamla á
Svaðastöðum. Jón Jónsson
sagnfræðingur tekur þá sögu
til dæmis um hörku og mis-
kunnarleysi einstakra manna
á íslandi í| gamla daga. Sagari
er þannig:
“Harðindi voru mikil í
landi og menn féllu af hungri
og harðrétti. Sveitafélögin
voru hálfsliguð undir styrk-
veitingabyrði til einstakra
manna. Var það þá að sveit-
arhöfðingi nokkur (Svaði á
Svaðastöðum) taldi það einu
úrlausnina að ráða af dögum
alla fátæklinga; lét hann safna
þeim saman á einn stað og
skipaði þeim að grafa stóra
og djúpa gröf. Þegar því var
lokið ætlaði hann að dysja þá
allá i gröfinni. Þegar gröfin
var fullgerð, kom hann ríð-
andi til þess að líta yfir verk-
ið; en svo tókst til að stykki
sprakk undan þunga hestsins
úr grafarbarminum, féll bæði
maðurinn og hesturinn i gröf-
ina og fórust þar báðir.”
Mér lá við að segja mann-
inum þessa sögu, en af því
hún var frá íslandi, þótti mér
hún of ljót til þess að þýða
haná á enska tungu. En mér
dettur þessi saga oft í hug
þegar eg heyri suma alda
sauði jarma ónot i garð vesa-
lings styrkþeganna sem mann-
félags fyrirkomulagið hefir
bannað allar sjálfstæðar bjarg-
ir. Eg heyrði það annars víða
á Ströndinni að menn voru
and^tæðir Roosevelt sökum
þess hversu ant honum væri
um atvinnuleysingjana. Eg
fyrir mitt leyti tel það einn
hans stærsta kost og bezta,
Þótt hann eigi þá marga stóra
°S góða. (Framh.)
Ur borg og bygð
Gefin saman í hjónaband á
prestsheimilinu í Árborg, Man.
þann 9. sept., Sigurjón Kar-
velsson, Árborg, Man. og Guð-
rún Jónasson, Geysir, Man.
Framtíðarheimili ungu hjón-
anna verður i grend við Ár-
borg.
4- 4-
í verzlun Steindórs Jakobs-
sonar geta íslendingar nú
fengið bæði skyr og mysuost.
Hvorttveggja eru íslenzkir
réttir, sem flestum bragðast
vel og eru heilnæmir. Veitið
athygli auglýsing lá öðrum
stað í blaðinu.
4- 4
Hin árlega hlutavelta Sam-
bandssafnaðar, verður haldin
mánudagskvöldið þann 16.
október n.k., í samkomusal
kirkjunnar. Margir góðir og
eftirsóknarverðir drættir verða
þar á boðstólum. Þessi hluta-
velta verður ein sú stærsta og
vandaðasta, sem haldin hefir
verið. Komið öll, sem getið,
bæði til að skemta ykkur og
reyn'a lukkuna. — Takið eftir
auglýsingum í næstu blöðum.
4- 4-
Allir, sem vilja eignast póst-
kort af landnema lendingunni
að Gimli 1875, geta pantað
þau hjó Davíð Björnsson, 853
Sargent Ave. (Heimskringla)
og sent hvort sem þeir vilja
heldur frimerki eða peninga.
Hvert póstkort kostar lOc, og
er tekið af málverki eftir
Friðrik Sveinsson listmálara,
en hann var einn i þessum
hóp, sem lenti við Gimli 21.
október 1875.
4- 4-
Þessar hjónavigslur voru
framkvæmdar af séra K. K.
ólafssyni í Seattle:
6. ágúst—Henry W. Evans
frá San Francisco og M.
Evangeline Johnson frá Seattle.
Brúðurin er dóttir hinna látnu
merkishjóna Mr. og Mrs. F.
R. Johnson. Mr. Evans er
verzlunarumboðsmaður. Verð-
ur heimili þeirra í San Fran-
cisco.
12. ágúst—James William
Johnston og Victoria Joanne
Pálmason, bæði til heimilis í
Seattle. Bæði eru þau útskrif-
uð af University of Washing-
ton. Hann er lögfræðingur en
hún kennir pianospil. Er hún
dóttir Mr. og Mrs. Thorsteinn
Pálmason. Heimili þeirra
verður i Seattle.
4 4
Þann 29. ágúst lézt Þuriður
Jónasdóttir að heimili sonar
síns og tengdadóttur, Mr. og
Mrs. Jón Magnússon I Seattle.
Hún var ekkja Magnúsar Guð-
mundssonar, er lézt í New
York 1887 á fyrsta sólarhring
eftir að þau lentu þar á leið
frá íslandi. Varð Þuríður þá
að hverfa heim til ættjarðar-
innar aftur með tvo drengi
sína, Jón og Guðmund. Henni
fæddist einnig dóttir Ragn-
heiður eftir lát föðursins. Eru
börn hennar dáin nú nema
Jón. Fluttist hún með honum
til Ameríku á ný 1913. Hefir
verið til heimilis í Seattle sið-
an 1916. Hún var fædd að
Fögruskógum í Kolbeinsstaða-
hrepp í Hnappadalssýslu.
Lengi til heimilis að Flóða-
tanga i Stafholtstungum í
Mýrarsýslu. Vantaði aðeins
fáa daga að hún fylti sitt
áttugasta og áttunda aldursár
(f. 12. sept. 1851). Var heilsu-
biluð siðustu árin, en naut
ástríkrar umönnunar. Táp og
myndar kona i hvívetna.
4 4
GJAFIR TIL BETEL
í júlí 1939
Mr. J. G. Johnson, Winni-
peg, Candy; Mr. G. W. Arna-
son, Gimli, Man., 48 Boxes
Strawberries; “Einlægur vin-
ur” Cavalier, N.D., $3.00; Mrs.
Kristín Hinrikson, Church-
bridge, Sask., í minningu um
eiginmann hennar, Magnús
Hinrikson, ep lézt 4. nóv.
1937, $50.00.
i ágúst 1939
Mr. S. Sölvason, Winnipeg,
$1.00;Vinkona í Selkirk, Man.,
$5.00; Vinur, Lundar, Man.,
$5.00; Mrs. Pálína G. Good-
man (Wynyard, Sask.), i
minningu um mann sinn,
Guðmund Goodman, $3.00;
Mrs. B. Currie, Winnipeg, 5
lbs. yarn and floor rug; Arn-
grímúr Johnson, Minneota,
Minn, $10.00; kvenfélag Mel-
ankton safn., í minningu um
þrjá frumherja Mouse River
bygðar, sem látist hafa á þessu
ári — Valmundur Sverrirson,
Jón Sigurdson, Guðbjartur
(Jónsson) Johnson, $10.00;
Staff of Good Samaritan
Hóspital, Rugb\^, N,D., per
Miss Josephine Stennes, Supt.,
in memory of the late Mr. G.
B. Johnson of Upham, N.D.,
$15.00.
Nefndin vottar öllum gef-
endum innilegar þakkir fyrir
þessar gjafir.
./. J. Swanson,
féhirðir.
308 Avenue Bldg.
Winnipeg.
ONE MONTH’S FREE TOITION
to ttie first 3 Ments
beginning s Business Course,
enrolling Mnnday, Sept. 18, with the
WINNIPEG COMMERCIAL SCHODL
(tbove Brathwaites)
Exceptionally easy of access by bus and car from all parts
of the city and environs.
Students receive INDIVIDUAL INSTRUCTION
Bookeeping
Pitman Shorthand
Speedwriting
Gregg Shorthand
Typewriting
Penmanship
Business Correspondence and Punctuation
Review students as well as beginners
will receive every attention
OUR SPECIALINTRODUCTORY OFFER
To All Students Enrolling This Fall:
Day School $ 15.00 per month
Half Days 8.50 per month
Evening Classes 4.00 per month
EVENING CLASSES ARE THURSDAY OF EACH CONDUCTED MONDAY AND WEEK, FROM 7:30 TO 9:45
All our Typewriters are the New Master Underwood
Typewriter
We Invite You to Visit Our Exceptionally Bright,
Clean, Airy Premises
PHONE US—24 680
WRITE US—203 Sterling Securities Building.
ENROLLNOW
WINNIPEG COMMERCIAL SCHBBL
203 Sterling Securities Bldg.
4251/2 PORTACE AVENUE
Office Routine
Spelling
Rapid Calculation
Burroughs Calculator
Comptometer
Dictaphone