Lögberg - 14.09.1939, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN
14. SEPTEMBER 1939
7
Lestrarvert rit
Pétur Sigurðsson:
Á stalif, ísafoldar-
prentsmiðja, Reykja-
vík, 1938. 111 bls.
Þeim, sem fylgst hafa með
störfum Péturs Sigurðssonar
kennimanns á síðari árum í
þágu islenzkrar menningar,
einkum bindindismála, sið-
ferðis- og trúinála, dylst eigi,
að hann er óvenjulega heil-
huga maður í starfi sínu og
hleypidómalaus að sama
skapi. Erindi hans um þau
mál, sem hann hefir látið
prenta, og sum þeirra eru þeg-
ar uppseld, bera hinu sama
vitni.
í nýjustu bók sinni, Ásta-
líf, tekur Pétur til athugunar
hjúskaparmálin og jafnframt
að nokkru leyti kynferðismál-
in á breiðara grundvelli, enda
er þar í raun og veru um að
ræða tvo fleti á sama við-
fangsefninu, svo náskyld eru
þessi mál. Hafa þau verið
ofarlega. á baugi undanfarið
og skiftir mjög i tvö horn um
afstöðu manna til þeirra;
sumir hallast þar að hinni
ströngustu íhaldssemi, en
aðrir telja ótakmarkað frjáls-
ræði heppilegustu úrlausnina.
Pétur leitast þar við, að fara
hinn gullna meðalveg, sem
auðvitað reynist mörgum
vandrataður, og er honum það
full-ljóst. Yfirleitt er afstaða
hans til ástamálanna hin heil-
brigðasta; þó mun sumum
þykja hann of frjálslyndur í
þeim efnum; en hann slær
jafnframt þann varnagla, “að
sá einn er frelsis verður, sem
skilur lögmál frelsisins og
lifir i samræmi við það.”
Þetta er auðvitað laukrétt, og
menningar - markmiðið, sem
stefna ber að, er einmitt það,
að mennirnir verði svo and-
lega og siðferðislega þroskað-
ir, að þeir geti lifað sem
frjálsustu lífi. En meðan því
marki er ekki náð, verður að
setja breytni manna þjóðfé-
lagslegar hömlur, vegna hinna
mörgu, sem ekki kunna með
frelsið að fara. Engu að síð-
ur, er eg Pétri hjartanlega
sammála um það, að: “Traust-
ið gerir menn að betri og á-
reiðanlegri mönnum, en van-
traust gerir menn vonda.”
Höfundur kemst þannig að
orði í inngangi sínum: “Eg
mun ekki hafa mikið upp eft-
ir öðrum þessu viðvíkjandi,
þvi að eg hefi lítið um það
lesið, og ekkert af þvi, sem
komið hefir út á islenzku um
ástalíf, eða sem teljandi er, en
eg hefi hugsað töluvert um
þetta viðfangsefni. Það er
mér einkar hugljúft, og eg
mun ræða það út frá mínu
eigin tilfinningalífi og skiln-
ingi mínum og hafa við hina
ýtrustu hreinskilni.” Meðferð
hans á ástamálunum e4 því
með mjög persónulegum blæ;
er það kostur, og þá eigi síð-
ur hitt, hversu hreinum hönd-
um hann fer um þessi við-
kvæmu og vandásömu mál.
Margt segir höfundur fall-
ega og viturlega; hann verður
mælskur) þegar hann lýsir dá-
semdum ástarinnar og áhrifa-
inagni, enda hafa skáld og
listamenn um aldaraðir sótt
orku og andans ynging í þann
brunn. Sérstaklega góður er
einnig kaflinn um “Að verða
skotinn eða ástfanginn,” og
gerir höfundur glöggan grein-
armun á þessu tvennu, sem
Iöngum er blandað saman,
Bók Péturs er því hollur
lestur ungu fólki, sem vita vill
fótum sínum forráð í ástamál-
um. Gift fólk getur einnig
lesið hana sér til gagns og
gleggri skilnings á hjúskap-
armálunum.
Richard Beck.
Námskeið Bandalagsins
(Framh. frá bls. 3)
af Saba við Salómon konung
þegar hún hafði, fyrir eigin
reynd, kynst auðæfum hans
og vizku. Ekki vil eg nota
eins sterk orð og drotningin,
en eg get með sanni sagt, að
staðurinn þar sein námsskeið-
ið var haldið var fallegri og
hentugri en eg átti von á, og
þó voru þær vonir ekki lélegar.
Eg var meira að segja búinn
að skrifa nokkuð um fegurð-
ina þar, enda vissi eg eitthvað
um hana. Winnipeg-vatn og
ströndina á þessu svæði þekti
eg sæmilega, fögru grænu
grundunum í Nýja fslandi var
eg kunnugur og skrúð skóg-
arins þekti eg. Þegar eg kom
á staðinn varð eg var við þetta
alt, en eg vissi ekki um yndis-
legt, örmjótt skógarbelti rétt
fyrir ofan fjöruna. Fyrir
ofan það belti, eða trjáröð, er
stór grænn flötur. Þetta gef-
ur staðnum friðsælan svip.
Eg hefi nefnt staðinn Sæludal
f§KÐÓMUR!
Here’s the real old rye you’ve
been looking for . . .
OLD RYE WHISKY
PRODUCT OF HIRAM WALKER A SONS, CANADA
0 DISTILLERS OF
HIRAM WALKER'S LONDON DRY GIN
No. 302—12 oz. $1.00 No. 301—25 oz. $2.15
No. 300—40 oz. $3.25
This advertisement is not inserted by the Govemment Liquor Control Commission. The
Commission is not responsible for statements made as to quality of products advertised.
bæði vegna náttúrufegurðar-
innar og vegna ánægjunnar,
sem eg fann ríkjandi þar
meðal unga fólksins.
Húsin þar eru auðvitað öll
sumarhús, en óvanalega vel
gjörð. Þessháttar húsum er
oft hróað upp í hasti og hroð-
virkni; en þarna er vandvirkni
og smekkvísi augljós á öllum
byggingunum.
íslendingar bjuggu fyrir
nokkru síðan á þessum stað.
Sagt er mér að Jóhannes heit-
inn ólafsson hafi eitt sinn bú-
ið þar, og Erlendur Guðmunds
son, nú í grend við Gimli, var
þar nokkur ár, þegar eg var
prestur í Nýja íslandi. Stað-
urinn nú tilheyrir Canadian
Sunday School Mission.
Liklegast verður þessu fyr-
irtæki haldið áfram, og mér
sýnist að af þessu geti leitt
mikið gott. Eg vil stinga upp
á því, að þetta verði gjört að
ilþingi vestur-íslenzkrar æsku.
Á hinu forna alþingi íslands
kom fólk af öllum stéttum,
með margskonar hæfileikum,
frá öllum pörtum landsins
saman til gamans og alvöru.
Menn kyntust og vinabönd
tengdust, og það sem var af
listræni í þjóðinni fékk þarna
útrás. Væri ekki bæði gaman
og gagn af því, að ungt is-
lenzkt fólk úr öllum bygðum
ZIGZAG
5
Orvals pappír í úrvals bók
C
5'
2 Tegundir
SVÖRT KAPA
Hinn upprunalegi þ u n n i
vindlinga pappír, sem flestir,
er reykja “Roll Your Own”
nota. BiSjiS um
“ZIG-ZAG” Black Cover
BLA KAPA
“Egyptien” tlrvals, h v i t u r
vindlinga pappir — brennur
sjálfkrafa — og gerir vindl-
ingana eins og þeir væri
vafSir I verksmiSju. BiSjiS
um
“ZIG-ZAG” Blue Cover
vorum kæmi saman til að
kynnast, til að auðga andá
sinn, til að þroska framsetn-
ing hugmynda sinna, um fram
alt til að sitja við fætur inann-
kynsfrelsarans og læra af hon-
um, sem var hógvær og af
hjarta lítillátur. Við skulum
stofna kristið alþing með
vestur-íslenzkri æsku.
Af hjarta bið eg Drottin að
leggja blessun sína yfir þau
frækorn, sem leitast var við
að sá á þessu námsskeiði. Eg
vona að löngun til fróðleiks
hafi örfast eða vaknað hjá
þessu unga fólki, að kristileg-
ur trúarylur hafi færst í ein-
hver hjörtu, að áhugi fyrir
því að verða öðrum að liðÞ
hafi eflst í þessum ungu sál-
um, að trúmenskan við Jesúm
Krist og hans lífsins veg hafi
orðið öflugri, að einhverjar
nýjar andlegar þekkingarleið-
ir hafi opnast fyrir þessu unga
fólki, svo það geti orðið hæf-
ari leiðtogar í kristilegu starfi.
Fyrir æskunni bið eg:
“Drottinn láti ljós sitt skína.”
Eg hefi ekki beðið guð nema
einnar afar stuttrar bænar, og
hún var á þessa leið: “ó, guð,
láttu óvini mína verða hlægi-
lega.” — Og guð bænheyrði
mig.—Voltaire.
'wwwvwwwwvwvwwvwwwvwwwvvwvwwwvwvwwvwvwwwvwvv
^ DAY SCHQQL
EVENING
TUDT
By one of these three methods every young man
or woman can obtain a business training.
Circumstances must determine which one is
most suitable.
Our DAY SCHOOL is almost filled to capacity
and early enrolment is necessary to avoid having
to wait.
EVENING SCHOOL is held every Monday and
Thursday from 7:30 to 10 p.m. Fees are $5.00 a
month for any combination of subjects.
HOME STUDY students can take any subject
or full cóurse, right in their own home by mail.
Ask for.our HOME STUDY bulletin.
CIVIL SERVICE—You can train for the Civil
Service either in school or at home.
The MANITOBA has led all other institutions
in the successes of its students in Federal Civil
Service Examinations.
MANITOBA
COMMERCIAL
COLLEGE
Most spacious accommodation per student in Western Canada
334 PORTAGE AVE. 4th Door West of Eaton’s
President: F. H. BROOKS, B.A., S.F.A.E., S.F.C.C.I. Phone 2 65 65
:*.WA*MWA*AWAMA*MWAMAV‘*AWVAVMWVAMA*A‘*M*AMWA**WV