Kvennablaðið - 11.04.1912, Page 2

Kvennablaðið - 11.04.1912, Page 2
10 KVENNABLAÐIÐ. >lr. Mansoll Moitllin sendi afturlialdsblaðinu »Times«, sem endur- sendi pað, en svo tóku önnur blöð pað upp. Maður pessi skrifar pannig: »Eyðileggingar-herferð Suffragettanna er á enda. — Réttvísin gengur sinn gang. — Ogeins og ætíð, pegar lýðurinn er æstur, páæpirliann á grimma dóma, sem pessir sömu menn mundu sjálfir kvarta mest j’fir síðar, pegar peir fengju rænuna aftur—, ef peir hefðu fengið pá uppkveðna. Mörg hundruð kvenna — og margar peirra hinar hámentuðustu og liæfileikamestu konnr í landinu — verða að pola hinar ósegjanlegustu kvalir enskra fangelsa. Pær hafa lagt alt í söl- urnar fyrir málefni sitt. Pær hafa sýnt sjálfs- afneitun sína á hinn fegursta liátt, sem unt er. Sumar munu gefast uppogdeyja. Margarmunu missa heilsuna æfilangt. Ailar munu pær verða að pola miklar pjáningar. Hvað er svo næsta spurningin? Réttlæti. Munið að pessum konum er málefni peirra heilagt. Pað er peirra trúarbrögð. Munið að pessi hreyfing vex með ótrúlegum hraða, sem aldrei fyrri. Munið alt liið réltláta í kröfum peirra. Munið að málefni peirra hefir marg- sinnis, hvað eftir annað, værið dæmt réttlátt, af ráðherrum og pjóðkjörnum pingmönnum. Munið að pessir pjónar kórónunnar, hafa egnt konurnar lakmarkalaust, með spottandi ásök- unum um skort á áhuga fyrir málefni peirra, með pví að lofa peim hátiðlega hjálp með ann- ari hendinni, á meðan peir með hinni hendinni eru önnum kafnir við að gera út af við frum- varpið, sem konurnar vildu fá sampykt! Pað getur verið, að pað, sem konurnar gera nú, sé ekki rétt. En hverjum er pað aðkenna? Málefni kvenna er krafan um fult mcinngildi, sem ómótstæðilega eykst og ryður sér fil rúms að hærra marki. Sé pessi hreyfmg leidd og borin áfram af stjórnmálamönnunum, pá getur hún einungis haft góðar afleiðingar. Sé hún bæld niður, eða kæfð með ofbeldi, pá mun hún fara sívaxandi, pangað til hún er orðin svo sterk, að hún ryður burtu öllum tálmunum, er verða á vegi hennar. Rannig hefir pað jafnan farið með allar siðferðislegar byltingar, og pannig mun pað ganga með pessa hreyfingu. Vilja ekki meðlimir Parlamentisins reyna til að skyggnast undir yfirborð hlutanna áður en pað er orðið of seint, reyna að koma auga á pær orsakir, sem dýpra liggja, sópa burtu öll- um smámununum, sem nú í svip glepja mönn- uin sýn, og sjá um að pað, sem margir af ráð- herrunum hafa kalfað réttlátar krötur kvenna, veröi tafarlaust uppfylt?« Mrs. Aimie Besant, liinn alpekti enski rithöfundur og teosof, ritar í »Timcs« 12. marz síðastliðinn: »Hvernig stendur á, að Mr. Asquitli snýr sér til lögmanna krónunnar til að mylja sundur »pessar voðalegu konur«, en legst sjálfur biðjandi á kné fram fyrir kolaverkfallsmennina. Annar »glæpamanna«-hópurinn gengur pegjandi og polinmóðlega í fangelsi, án pess að hafa veitt nokkrum manni líkamleg meiðsli, en hinn hópurinn heldur veðhlaup með hundum sínum og fær sér fri, meðan hann bakar almenningí óútmálanlegt tjón og vandræði. Petta kemur af pví að verkamennirnir hafa atkvœðisrétl, en konurnar ekki. Forsætisráðherrann biður og dýrkar annan hópinn, en notar vald og grirad gegn hinum. Evrópa horfir á, að skarar at hámentuðum konum eru settar í fangelsi. — Ilneykslið er of mikið, og til er að eins cinn vegur að enda pað með: Að veita pað, sem heimtað er. En pað væri sama sem að láta undan of- beldi. Pví, hvenær hafa nokkrir stjórnmála- menn látið undan öðru? Pað er viðbjóðslegt, en paö er satt. í Englandi er ofbeldi hinn einasti viðurkendi vegur, til að ná pólitískum réttindum. Ef öll hræsni hættir ekki, og nýtt frumvarp verður ekki borið fram, pá munu fang- elsin fyllast, pangað til ásigkomulagið verður að lokum ópolandi............Ætla nú löggjaíir vorir ekki að framkvæma loforð sin, og með pvi móti koma í veg fyrir ámælisverðan og óafsakanlegan drátt?« Ymsir af helstu pingmönnunum, par á meðal hermálaráðherrann Ilaldane, hafa sagst greiða atkvæði með málum kvenna, eftir sem áður. »Gæti ekki imyndað sér að nokkur alvarlega hugsandi maður breytti atkvæði sínu, pótt fá- einar konur sýndu sömu hugprýði og hrifni eins og »dervicharnir« i eyðimörkinni. Pað væri ekki nokkur ástæða til að neita sannfæringu sinni, eða að láta vera að halda henni fram. Hann ætlaði að greiða atkvæði með miðlunar- frumvarpinu, pótt sér pætti pað ekki nógu frjálslynt, af pví pað væri sá einasti vegur til að fá pessu nú framgengt«. Einn pingmaður úr afturhaldsflokknum átti að vera framsögumaður frumvarpsins 22. marz. Pví var pá frestað, vegna kolaverkfalls- ins. Nú hafa ísl. blöðin (ísaf. o. fl.) sagt frá að pað væri felt. Auðvitað seinkar pað málinu. En enginn efi er á pví, að pess verður ekki langt að bíða að annað frumvarp, ef til vill víðtækara, og frjálslegra, verður sampykt. Nú sitja foringjar kvenna í fangelsi, fúsir að leggja eigur og vel-

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.