Lögberg-Heimskringla - 25.02.1965, Blaðsíða 6

Lögberg-Heimskringla - 25.02.1965, Blaðsíða 6
6 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 25. FEBRÚAR 1965 rt__----------------- - . GUÐRÚN FRA LUNDI: Tengdadóttirin i Skáldsaga • —' _________ ___=?=» Maður hennar stóð áhyggju- fullur á svip heim við bæjar- dyrnar. „Ætli þú hafir haft meira upp úr orðakastinu við hana en ég“, sagði hann gram- ur. „Það vantar ekki kjaftavitið og ósvífnina, þetta pakk“, sagði hún. Svo gengu þau þegjandi inn í suðurhúsið. Þar var enginn. Hann gekk um gólf hægum, þreifandi skrefum, meðan hún tók ábreiðuna ofan af rúminu þeirra. Hana langaði til að minnast eitthvað á þessa ham- hleypu, sem ómögulegt var að mæla máli, en fann engin orð, sem við áttu. En gamli mað- urinn var ekki að hugsa um Höllu, heldur nágrannana, sem höfðu búið við hlið hans í mörg ár, friðsamir og viðmóts- þýðir. „Mikil ósköp er að hugsa sér, hvað mennirnir geta verið falskir og ómerki- legir, ef þetta er satt, sem hún segir“, sagði hann, þegar hann lagði frá sér seinni sokkinn. „Fellsendabændum trúi ég til alls, en Hannes á Borgum hélt ég að væri ekki þannig í minn garð, en ég heyrði konuskepn- una kalsa um þetta sama efni þarna við hlóðirnar í vor. Það er víst engan hægt að forsvara. Ég hefði gert betur að tala aldrei orð við hana og geri það líklega hæfilega oft hér eftir“. Þar þóttist Elín vita, að hann ætti við Höllu, en ekki Þorgerði á Borgum, þó að hún yrði sjálfsagt ekki á marga fiska metin hér eftir. „Ef þú hefðir heyrt, hvað hún lét út úr sér um þig sjálfan“, sagði hún. „Ég býst við að hafa heyrt það. Mér þykir ólíklegt að þú farir að taka þér slíkt í munn eftir henni. Hún býr þetta bara til, svo að maður geti engu svarað henni. Þetta segir enginn maður“, sagði hún lágt og aðvarandi. „Þvílík yfírsjón að fara að ráða til sín manneskju úr ó- kunnu héraði“, kveinaði gamla konan. „Það er þægilegt að grípa til þess, enda spararðu það ekki“, sagði hann gramur. HALLA HEFUR SIGURINN Næsta dag var sjálfsagt að koma heim heyinu. Þorgeir var búinn að ná í hestana og kominn með þá heim á hlað áður en sauð á katlinum hjá mæðgunum. Gunnhildur kom brosandi út í dyrnar, þegar hún heyrði til hans. Hún hlakkaði til þessara hlýju morgunkossa, sem maður hennar hafði gefið tvo undan- farna morgna. En nú varð hann ólíkt kaldari. Honum hafði runnið í skap við að sjá engan úti, sem gæti lagt reið- verin á hrossin með sér. „Er Guðmundur ekki kominn á fætur, svo að hann geti tekið undir reiðingana á móti mér?“ sagði hann önuglegt. „Jú, það hlýtur hann að vera. Annars ertu svo snemma á fótum, að við erum ekki bún ar að hella á könnuna". „Það er víst vanalegt að taka daginn snemma, þegar á að binda, þar sem nokkur hef- ur áhuga fyrir að eitthvað gangi“, sagði hann í sama tón og áður. I sama mund kom Gvendur út og þeir fóru að leggja á hrossin án þess að talast við. Þorgeir gleymdi fljótt gremju sinni — hann var léttlyndur að eðlisfari. Svo kom gamli húsbóndinn út, krossaði sig og leit til veðurs. Hann hagaði sér líkt og tryggur hundur, sem býst hálfvegis við höggi, en langar til að nálgast hús- bónda sinn. Hann þurfti að tala við Þorgeir, en vissi ekki, hvernig undirtektir hann fengi. Þeir höfðu ekki talazt við síðan Gunnhildur gekk á milli inni í suðurhúsinu nema það, sem Þorgeir spurði hann um veðrið fram á engjunum. Þorgeir mundi of vel, hvernig séra Sigurður kom fram við sinn tengdaföður, til þess að vera að erfa þetta uppþot. — Loks vogaði þó sá eldri að á- varpa hinn: „Nú vantar okkur Láfa minn til að fara á milli. Heldurðu að Keli litli geti það? Það er ekki vanalegt að það fari illa á hjá þér. Ég er orðinn svoddan garmur og treysti mér ekki til að koma fyrir einn“, sagði hann blíður í máli. „Ég léti þá heldur einhverja stúlkuna hjálpa þér og Gvend fara á milli“, svaraði Þorgeir jafnhlýlega og vanalega. „Nafni litli er heldur ungur ennþá“, sagði gamli maðurinn sárfeginn að heyra engan vott af kala í svari tengdasonar síns. „En ekki var hún móðir hans eldri, þegar hún vildi fara að teyma heylestina. Það var nú meiri kjarkurinn í þeirri manneskju seint og snemma“. „Já, já“, sagði Þorgeir, „en hann getur kannske riðið með og séð hvernig fer á lestinni". Gvendur hrúgaði reipum á klakkana og teymdi hestana fram túnið á meða tengda- feðgarnir gengu inn í búrið til að hressa sig á kaffinu. Mæðg- urnar voru tvær einar í búr- inu. „Hver fer nú á milli?“ sagði gamla húsmóðirin nöldr- andi. „Líklega er það þó ekki meiningin að Hjálmar komi einn fyrir eins og hann er slæmur af gigt í handleggn- um?“ Hjálmar gaf konu sinni ó- hýrt auga. Það leit út fyrir að hún ætlaði að fara að leggja það í vana sinn að senna við fólk og koma öðrum til þess. „Það er sjálfsagt engin hætta á því að Þorgeir ætli honum það“, sagði Gunnhildur. „Ég var að hugsa mér að Sæunn gæti hjálpað honum“. Það var sjaldan, sem hún lagði orð í samræður eins og þessar, en nú óttaðist hún að einhver þrætumál kæmu fyrir og reyndi að tefja fyrir með því að tala. Hún sá svipinn á móð- ur sinni og vissi, hvað hafði gengið á úti við lækinn kvöld- ið áður, en um það vissi Þor- geir ekkert. „Við vorum að tala um að drengirnir færu á milli“, sagði gamli húsbóndinn. Halla geystist inn í búrið áður en Gunnhildur gat svar- að því til, að sér fyndist ó- mögulegt að láta Hjálmar litla eiga við það að fara á milli. Það leit helzt út fyrir að gömlu hjónin vildu gufa upp, þegar þessi orðfreka griðka settist við borðið og hringlaði tómum yfirbollanum á undir- skálinni trl að vekja athygli húsmóðurinnar. Hún hellti líka samstundis í bollann hjá henni. Það leit út fyrir að hún væri vel kunnug því, sem þau voru að vandræðast yfir, því að hún tók upp þáttinn, þar sem Gunnhildur hafði sleppt honum. „Það skyldi nú verða vandræði með, hver ætti að halda í tauminn á bikkjunum heim að stakknum. Ég get áreiðanlega gert það, ef ykkur sýnist svo. Hef reyndar ekki ósjaldan reyrt sátu líka, en það er erfitt verk og svo þyk- ist ég vita, að Þorgeir kæri sig ekki um svoleiðis puð. — Mér dettur ekki í hug að bjóð- ast til að koma fyrir með gamla manninum. Hann kysi sjálfsagt heldur að hafa fjand- ann sjálfan í verki með sér en mig---------“. „Drekktu kaffið, manneskja, og hættu þessum ósköpum“, sagði gamli húsbóndinn. Hún saup á kaffinu. „Nema það sé meiningin að ég eigi að fara burtu í dag — svona án þess að hafa gert nokkuð af mér. Mér skildist það helzt á gömlu hjónunum í gær- kvöldi“, hélt hún áfrapi og beindi tali sínu til Þorgeirs. „En ég segi nú bara það sama og ég sagði þá, að gangandi fer ég ekki. Ykkur er óhætt að setja einhverja truntuna undir mig. Þær eru heldur ekki svo fáar hérna“. Það varð þögn við borðið. Þorgeir var óviðbúinn þessari dembu og skildi hvorki upp né niður í rausi hennar. Hún drakk kaffið ekki laus við glettni í svipnum. „Kannske þú viljir taka að þér að fara á milli, Halla?“ sagði Þorgeir óþarflega hátt. „Auðvitað vinn ég það, sem mér er ætlað, eins og vant er“, svaraði hún og stóð upp með bollann í hendinni, fór fram að eldavélinni og hellti kaffi í hann án þess henni væri boðið og settist svo í sæti sitt aftur. „Það þurfa nú fleiri að drekka kaffi en þú“, sagði Elín heldur óþýðlega. Henni ofbauð þessi frekja. Það var heldur ekki í fyrsta sinn, sem hún gekk fram af henni. Og þarna stóð Gunnhildur rétt hjá kaffikönnunni og lét þetta háttalag afskiptalaust. „Það sýður á katlinum og því vandalaust að skvetta ofan í pokann“, sagði Halla. „Mér stendur á sama, þó að það sé skollitað handa þeim, sem á eftir mér drekka. Ég er búin að fá minn skerf vel útilát- inn“. „Þetta er líkt þér“, sagði Elín. „Eins og hver sé ekki sjálf- um sér næstur“, svaraði sú orðhvata kona Halla. Gunn- hildur snéri til dyra, því að henni leizt ekki friðsamlega á samræðurnar. „Farðu ekki, Gunnhildur, ég þarf að tala við þig“, sagði Halla. „Hvað skyldi nú koma?“ spurðu gömlu hjónin hvort annað með augunum. Gunnhildur færði sig inn að borðinu. „Hvað var það, sem þú vildi segja við mig?“ söngl- aði hún fram um nefið. „Er það eftir þinni ósk og þínum vilja, að foreldrar þín- ir segja mér í burtu af heim- ilinu? Mér fannst að þau hefðu einhverjar sakir á mig, sem þau hikuðu við að nefna. Ég get vel ímyndað mér hvað það er. Kannske þú getir gefið mér einhverja skýringu“, þrumaði Halla. Þorgeir spratt upp eins og stunginn af nálaroddum. — „Jæja, það er líklega heppi- legra að fara að komast fram á engjar en sitja hér yfir tóm- um kaffibollum og óþarfa samræðum", sagði hann og var horfinn fram úr dyrunum með sama. Það leit út fyrir að það væri ekki allt búið ennþá. Þvílík þó djeskotans reki- stefna í þessu fólki, hugsaði hann og gremjan blossaði upp í honum á ný. Hann langaði til að heyra svar Gunnhildar, en hafði ekki geð í sér til að sitja lengur inni. „Ég hef enga ástæðu til að óska eftir því að þú farir“, sagði Gunnhildur. Svo bætti hún við þessum vanalega úr- skurði: „Það er bezt að Þor- geir ráði því“. „Ertu kannske hrædd um hann fyrir mér?“ spurði Halla og bætti svo við, þegar Gunn- hildur svaraði engu: „Þú þarft ekki að óttast það, því er nú fjandans verr. Við höfum aldrei haft nokkurt tækifæri til neins, þótt við hefðum ver- ið reiðubúin, sem ég veit ekk- ert um hvað hann snertir, en það hefði ekki staðið á mér“. Hjálmar gekk fram fyrir hurðina og stóð þar, svo að sér yrði það ekki á að tala til þessarar óhemju. Hann ætlaði ekki að ganga á það heit, sem hann hafði gefið sjálfum sér kvöldið áður, að mæla ekki við hana framar. „Þú hefur svívirðilegt orð- bragð og lýgur líka“, reifst Elín gamla. „Hverju svo sem hef ég log- ið?“ „Hvernig skyldi þér ganga að sanna það, sem þú sagðir um hann Hjálmar minn í gær- kvöldi? — aijnan eins hrein- lífismann, sem aldrei hefur verið kenndur við nokkra konu nema mig“. „Ja, ég sagði það nú bara svona til að reyna að stinga upp í þig, svo að þú rifir mig ekki alveg á hol. Með ein- hverju verður maður að reyna að verja sig, þegar ráðist er á mann svona aldeilis óvörum“, sagði Halla og stóð upp. „En hvað sem þið afráðið, fer ég að hafa mig á engjarnar. Við getum þá rifist heldur í kvöld, ef tími vinnst til. Ég sem á að verða milliferðamaður í dag. Það gæti ég nú hugsað að yrði heldur skemmtilegra en að jagast hér“. Hún greip álitleg- asta sykurmolann úr sykur- karinu go snaraðist fram. Gunnhildur hafði dregið sig fram í hlóðaeldhúsið, sem var gengið í úr bæjardyrunum. — Hún ætlaði að reyna að standa utan við þessar erjur, sem allt í einu voru komnar á þetta þögula heimili. Hún var að brjóta sundur taðflögur og leggja að í hlóðum, þegar Halla renndi sér inn úr dyr- unum og var komin ofan í pilsvasa hennar og búin að ná í tóbaksglasið áður en Gunn- hildur var eiginlega búin að átta sig á nálægð hennar. Hún hressti sig á tóbakinu og dæsti ánægjulega. Svo hvíslaði hún fast við eyra hennar hlýlega: „Blessuð vertu ekki óróleg mín vegna. Ég hef litið eftir honum og sé hvernig hann er — alveg ómögulegur í þeim sökum eins og þér er líklega mest og bezt kunnugt um“. Svo kyssti hún hana fyrir hressinguna og þaut út. Gunn- hildur stóð eftir kafrjóð eins og sakborningur með tóbaks- glasið í hendinni. Þar hafði Halla stungið því. Hún fékk sér í nefið og gekk svo inn í búrið. Þar sátu gömlu hjónin ósköp niðurbeygð. Elín var fyrst að drekka kaffið á þess- um morgni. ,Það verður að láta þetta detta niður, pabbi“, sagði Gunnhildur. „Það er óvana- legt að hér sé ófriður, en hún lætur ekki sinn hlut, þessi kona“. GOING TO ICELAND? Or perhaps you wish to visit other countries or places here, in Europe or elswhere? Where- ever you wish to travel, by plane, ship or train, let the Triple-A-Service with 40 years travel experience make the arrangements. Passports and other travel documents secured without extra cost. Write, call or telephone to- day witnout any obligations to: ARTHUR A. ANDERSON TRAVEL SERVICE 133 Claremont Ave., Winnipeg 6. Man. Tel.: GLobe 2-5446

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.