Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 04.11.1908, Blaðsíða 2

Lögrétta - 04.11.1908, Blaðsíða 2
202 L0GRJETTA. Lögrjetta kemur á út hverjum mið- vikudegi og auk þess aukablöð við og við, minst 60 blöð als á ári. Verð: 3 kr. árg. á íslandi, erlendis 4 kr. Gjalddagi 1. júli. Skrifstofa opin kl. 10'/>-11 árd. og ki. 3—4 síðd. á hverjum virkum degi. Innheimtu og afgreiðslu annast Arinbj. Sveinbjarnarson, Laugaveg 4i. Brjef úr Rangárvallasýslu. Vestur-EyjaQallahr. fyrsta vetrardag 1908, Kæra Lögrjetta! Vegna þess að þú ert nú orðin besti vinur minn meðal stjórnmála- blaðanna, leyfi jeg mjer að ávarpa þig heldur kunnuglega með nokkrum línum, sem byrja með þakklæti til þín fyrir framkomu þína í flestum hinum helstu málum, sem nú eru á dagskrá hjá okkur íslendingum. En aðalefni miðans var það, að jeg vildi segja þjer eitthvað um það, hvernig okkur Eyfjellingum líður núna, þó það verði tæplega eins merkilegur pistill eins og „Eyfellingaslagur" Eiríks heitins frá Brúnum. Hjer er nú sem stendur fátt um frjettir. »Pólitíkin« liggur í dái, en nýju þingmennirnir okkar vekja hana væntanlega áður en þeir ríða á þing, — jeg býst við að þeir haldi þingmála- íundi. Vjer Eyfjellingar erum flestir vel ánægðir með þá báða, Eggert og Einar, og væntum af þeim hins besta. Það verður ekki af Rangár- vallasýslu dregið, að hún fór skyn- samlagar að ráði sínu við þingkosn- ingarnar síðustu, heldur en flestar aðrar sýslur landsins, en hitt verður heldur ekki af henni þvegið, að í aðfluttningsbannsmálinu fór hún verr að ráði sínu, en þar mun sú eina afsökun fást, að hjer í sýslunni er ekkert kauptún, og sjást því hinar hörmufegu afleiðingar ofdrykkjunnar ekki eins átakanlega hjer eins og víða annarstaðar. Hjer í sveitinni er Ungmennafjelag, sem nefnist Drífandi, (stofnað ‘4/i 1906), fáment að vísu (hefur nál. 30 meðl.) en hefur þó allgóðum kröftum a að skipa. Sú venja er orðin ríkj- andi hjá því, að halda skemtisam- komu á haustin, um sláttulokin, og var sú samkoma haldin í haust 26. sept. Samkoman var allfjölmenn og fór hið besta fram. Ræður hjeldu þar, meðal annara, Kjartan próf. Einarsson í Holti, Vigfús hreppstj. Bergsteinsson á Brúnum og Jón bóndi Sveinbjarnarson á Ásólfsskála Mælt- ist þeim öllum vel, en sjerstaklega var gerður góður rómur að ræðu prófasts, sem laut að störfum og verk- efni ungmennafjelaganna. — Auk þess var sungið, lesin upp kvæði og sög- ur, dansað og spilað. — Fjelagið hefur keypt orgel-harmonium, sem átti að vera komið heim fyrir samkomuna; en svo óheppilega vildi til, að það var ekki komið Jlengra en til Vest- mannaeyja, þegar samkoman var hald- in, vegna þess að ferðir höfðu ekki orðið milli eyja og meginlands, frá því er hljóðfærið kom til eyjanna, og af sömu ástæðu kmun það ekki vera komið enn. Annars hefur »leiðis- leysið« verið fleirum bagalegt, t. d. kaupafólki úr Vestmannaeyjum, sem er enn »tept uppi«, og mun því þykja kaupavinnan orðin nógu löng. Heyskapur varð í góðu meðallagi hjer um sveitir. Að vísu var síðari hluti júlímánaðar og fyrri hluti ágúst- mán. votviðrasamir, en seinni partur sláttarins bætti það upp. Heilsufar fólks er gott. Bændur eru hjer margir í Slátur- fjelagi Suðurlands, og eru rekstra menn komnir heim aftur. Deildar- stjóri er Auðunn bóndi Ingvarsson í Dalsseli. Mörgum kemur bagalega, hve lítið fjelagið getur borgað út í svipinn af fjárverðinu, en þeir vilja fúslega leggja nokkuð í sölurnar fyr- ir það hagræði, sem fjelagsskapur- inn veitir að mörgu leyti, enda vona þeir að hagur fjelagsins greiðist. Smjörbúið _Hofsá“ hefur selt til út- landa rúm 9000 pund af smjöri í sum- ar, og fengið fyrir það nál. 8000 kr. að frádregnum útlendum kostnaði. Fjelagsmenn eru 52. Formaður fje- lagsins er Vigfús hreppstj. Berg- steinsson á Brúnum. Nautgriparæktarfjelag er nýstofn- að hjer í sveitinni og er Jón bóndi Sveinbjarnarson í Ásólfsskála for- I maður þess. Eftirlitsmaður verður Gísli bóndi Jónsson á Ystaskála og fer hann til Reykjavíkur um þessa daga til þess að búa sig undir það starf. Á síðastliðnu vori var hjer stofn- að brunabótafjelag, samkv. lögunum frá 1905 um vátrygging sveitabæja, og mun nú lokið að virða húseignir hreppsbúa, en ekki er mjer kunnugt um virðingarupphæðina. Búnaðarfjelög eru tvö í hreppnum (búnaðarfjelag Ásólfsskálasóknar og búnaðarfjelag Merkurbæja). Starfa þau allmikið að jarðabótum, og eru það helst girðingar um tún og engj- ar, sem unnið hefur verið nú á síð- ustu árum. Jeg man ekki í svipinn fleira, sem frjettir geti heitið; yfir höfuð líður mönnum vel hjer, en margir líta þó með áhyggju til ókomna tímans vegna þeirrar hættu, sem vofir yfir sveitinni af völdum náttúrunnar, þar sem er Holtsá að austan og Markar- fljót að vestan. í vatnavöxtunum, sem verið hafa nú um tíma, hefur Holtsá brotið niður garðinn, sem bygður hefur verið til þess að halda henni í skefjum, og er tvísýnt, hvort hepnast að hefta hana aftur. — Um Markarfljót er það að segja, að þeg- ar vatnið kemur aftur í það úr Þverá, þá er helmingur Vestur-Eyjafjalla- hrepps ekki lengur til, ef ekkert er að gert. — Við byrjum samt vetur- inn með þeirri von, að eyðileggingin komi ekki meðan hann stendur yfir, og að á honum verði lögð undir- staða til þess að tryggja framtíð sveitarinnar. Ey fjellingur. Hjeraðs-minni. Ræða frá skemtisamkomu Borg- firðinga 1908. Eftir Sig. Þórólf88on. skólastjóra. (Niðurl.). —-— í þessu hjeraði hafa 4 merkar ís- lendingasögur gerst, og hjer hafa þær óefað allar, að minsta kosti 2, verið skrifaðar. .En það er Egilssaga, Gunnlaugssaga ormstungu, Björns- saga Hítdælakappa og Harðar saga Hólmverjakappa. Hjer hefir hin fegursta kona íslands fæðst, sem elskaði heitar en flestar aðrar konur og dó svo af sorg. Hjer var Gunnlaugur ormstunga unnusti hennar, er Skáld-Hrafn sveik á svo níðingslegan hátt og veitti þau sár, er að bana leiddu. Saga þessara tveggja ungmenna sem unnust svo heitt, en örlögin slitu í sundur, svo það varð þeirra dauði, er ein hin fegursta og hugnæm- asta saga, sem nokkur þjóð á. Hjer hefir sá maður búið, sem allra Islendinga, lífs og liðinna, er frægastur meðal allra mentaþjóða, en það er hinn mikli sagnfræðingur, rit- snillingurinn og skáldið Snorri Sturlu- son. Hann hefir tendrað það menta- ljós, sem lýst hefir þjóðinni í nálega 1000 ár, veitt henni mótstöðuþrek gegn hinum ýmsu hörmungum, sem yfir landið hafa gengið, af völdum náttúrunnar, konungsvaldsins og kirkj- unnar. Og frægðarljómi hans og ættjarðarinnar „hefur liðið um lönd, yfir höf, á lifenda bústað, á dáinna gröf", eins og skáldið segir um krist- indóminn. Hjer hefur fyrst á landi munkalíf verið stofnað, og verið biskupssetur í 19 ár. Það var enskur biskup, Rúð- ólfur að nafni; hann bjó hjer í Bæ og setti á fót munkalíf, og voru hjer eftir 3 munkar, er hann fór af landi burt (1049). Hin fyrsta fátækrastofnun hefir verið sett á fót í þessu hjeraði. Það var svo kallað sælubú: gisti, uppela'• is og ferjustaðar, handa fátækum. Tanni á Ferjubakka og Hallfríður kona hans gáfu til þess fyrirtækis eigur sínar með leyfi erfinga og ráði Gissurar biskubs ísleifssonar. Gáfu þau hálft Bakkaland, 10. kýr, 60 ær og ferjubát. Búið var á Ferjubakka, og áskildi Tanni sjer, að standa fyrir því meðan hann lifði. — Eins og Jónas Hallgrímsson segir um landið í heild sinni, eins getum við talið víst, að hjeraðið hafi áður verið undra fagurt og frítt og fann- hvítir jöklanna tindar. En hjeraðið er ennþá fallegt, eitt hið fallegasta, skógríkasta, grösugasta og búsældar- legasta hjerað landsins. Eða er hjer nokkur maður svo tilfinningasljór fyrir fegurð náttúrunnar, að hann hafi ekki unun af að líta um bláfjallageiminn með hájöklahring, sem liggur að mestu leyti kringum alt hjeraðið, til skjóls fyrir hrímþursunum Norðra Austra og Suðra. Hlið á þessum garði er í vesturátt. Þangað liggur leiðin beint til bústaðar Ægis og konu hans Ránar. Þau hjón hafa of marga góða og vaska drengi dregið til sín og skilað sumum aldrei, og þess vegna er hjeraðið farið að ganga úr sjer. Af náttúrunnar hendi er þetta hjer- að bestum kostum búið; eldur og jarð- skjálftar hafa þvf líti spilt. Og hjer býr tápmikill lýður; það sýna túna- sljetturnar, hlöðurnar og timburhúsin á öðrum hverjum bæ, sem blasa við oss beggja megin við Hvítá, frá ási til fremstu dala. Það sýna einnig rjómabúin, og slátrunarhúsið, sem verið er að byggja og verður nálega eins langt og Valhöll var forðum. Áður en jeg lýk máli mínu, vil jeg minna oss öll, sem hjer eru saman komin, á það, að hjer er mikið verk- efni fyrir höndum, handa þeim, sem enn eru að alast upp, og þeim, sem enn eru ekki fædd, til þess að gera þetta hjerað svo í alla staði, að óborinn æskulýður geti sungið, eins og dönsk sveita-ungmenni syngja af heitum hug í Danmörku: „Ó, trúðu meir, jeg segi þjer, hjer er svo fagurt að lifa. En, því miður þykir flestum ung- mennum hjer leiðinlegt að lifa, kjósa heldur glauminn, tómleikan og hjegóm- an í kaupstöðunum. Ef hinir ungu lærðu að elska sveitina sína, hjeraðið sitt og landið sitt, lærðu að skilja og meta fegurðina, sem alstaðar mætir augunum, þá gætu þeir sungið þetta, eða annað líkt. Hjer vantar mentun, holla mentun, sem leiðir ljós, il og fegurð yfir hjeraðið, inn í kofa smælingjanna eins og í hús hinna auðugu. Þá hverfur einrænings- hátturinn, óhagsýnin, umburðarleysið, gikkshátturinn, öfundin, hjegóminn, rógburðurinn, og hleypidómarnir. Jeg segi ekki með þessu, að ineira sje af slíku í þessu hjeraði en annarstað- ar, því f öllum löndum er pottur brotinn í þessu efni. En þetta er sá veggur, sem varnar mönnunum að taka saman bróðurhöndum, vinna saman með kærleiksanda, að einu og sama markmiði, að efla það sanna, góða og fagra, en uppræta alt það, I sem þessu er gagnstætt, svo hjer verði fagurt og inndælt að lifa. íslaud erlendis. Finnur Jónsson prófessor sendi „Lögr.“ svohljóðandi símskeyti 24. f. m.: -í>Símfrjett um mig Loka- lygU. Prófessorinn hefur, þegar hann sendi skeytið, verið nýbúinn að fá blöð hjeðan að heiman með sím- skeytinu fræga um ummæli þeirra Matzens prófessors um sambands- lagafrumvarpið, en hann veit þá ekki, að vitnast hafi hjer strax á eftir, að blaðskeytið færi með ósannindi. En þótt þau ósannindi hafi áður verið hrakin hjer í blaðinu, þá virðist rjett að birta einnig þessa leiðrjettingu frá prófessor F. J. Símskejrbi frá útlöndum. Khðfn 30. okt.: Ráðaneytið boð- ar sakamálsrannsókn út af græn- lensku versluninni. Khöfn 31. okt.: Konungkjörnir eru orðnir Lárus (H. Bjarnason laga- skólastjóri) og Stefán (Stefánsson skólastjóri á Akureyri). Ólsen (pró- fessor) hefur sagt af sjer. ÆJfintýri eftir Carl Ewald. 2. ósýnilegar rerur. Þessi saga, sem jeg *tla nú að segja, gerðist inni í stofu hjá sjúkum dreng, sem ekki var að neinu leyti öðruvísi en fólk er flest. Stofan var lftil og drengurinn var lít- ill. Þar stóð járnrúm, eitt af þeim sem oft eru keypt handa litlum krökkum, og eru svo gerð, að þeir geta ekki oltið út úr þeim, en rúmin má stækka eptir því sem krakkarnir vaxa. Svo var þar inni furutrjesborð og tveir stólar, sem áður höfðu verið inni í sjálfri stofunni, en svo orðið að vfkja þaðan fyrir öðrum nýrri og fallegri, og þá voru þeir látnir þarna inn. Þar þóttu þeir nógu góðir, því drengjum eru aldrei vönduð her- bergisgögn, eins og kunnugt er, enda hafa þeir orð fyrir að fara ekki vel með

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.