Alþýðublaðið - 04.09.1963, Blaðsíða 3
FYRSTA „CINEMASCOPE
KVIKMYNDIN TEKIN E
ÞESSI mynd er tekin
nokkru áður en lciðangrur-
inn Ieggur upp í kvikmynda
tökuferðina. Þar sjást, talið
frá vinstri: Guðbjartur Páls
son, Gísli Gestsson, Willi-
am Lubschansky, Reynir
Oddsson og Halldór Eyjólfs-
son frá Rauðalæk.
USA framselja
ekki þrjá munka
Washington og Saigon, 3. 9.
NTB-Reuter.
Bandariska sendiráðið í Sai-
gon hefur hafnað þeim tilmælum
jStjórnarinnar í Suður-Vietnam,
að þrír Búddamunkar, sem leit-
uðu hælís í sendiráðinu fyrir fá-
um dögum síðan, verði framseld-
ir.
Formælandi bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins hefur jafn-
framt borið til baka, að banda-
ríska leyniþjónustan standi að
samsæri um að steypa stjórn Di-
j ems forseta.
! Búddhamunkarnir þrír, þar á'
I meðal Thich T’iL Quan,g, sem
talinn er helzti andstæðingur Di-
| ems, eru enn í bandaríska sendi-
ráðinu og ekki er vitað, hve lengi
þeir munu dveljast þar.
Sendiráðið hefur fengið fyrir-
mæli um að veita mönnum ekki
hæli sem pólitískum flóttamönn-
um nema, ef fólk það, sem biður
um hæli, geti talizt í lífshættu.
Henry Cabot Lodge sendiherra
; hefur farið samkvæmt fyrirmæl-
um þessum með því að veita
munkunum þrem hæli í sendiráð-
inu, sagði formælandi utanríkis-
ráðuneytisins.
UMMÆLI KENNEDYS.
• Kennedy forseti sagði í sjón-
varpsviðtali í gærkvöldi, að hann.
efaðist um, að takast mundi a9
sigra kommúnista í Suður-Viet-
nam, ef stjórnin í Saigon sýndi
ekki mikla viðleitni í þá átt að
afla sér stuðnings þjóðarinnar.
Að sögn AFP telja stjómmála-
menn/í Saigon að þessi ummæli
forsetans geti merkt, að banda-
ríska stjórnin hafi stigið enn eitt
skref til þess að einangra stjórn
Diems. Eftir að hafa reynt að fá
herforingjana til þess að í.:ar-
lægjast .stjórnina, reyni Banda-
ríkin að einangra stjórnina frá
þjóðinni.
Ummæli Kennedys hafa vakið
miög mikla athygli ráðamanna,
í sem telja forsetann ekki hafa
nógu góðar upplýsingar !im h:ð
raunverulega ástand í S-Vietnam.
Stjórmnálamenn telja, að
spennan í sambúð stjórna Banda
ríkjanna og S-Vietnam muni auk
ast enn frekar eftir ummæli Ken-
nedys. Mikið er bollalagt um það,
hvaða alvarlegu tíðindi muni ger-
ast á næstunni.
AFP hermir, að miltillar stríðs
þreytu gæti í Saigon. Þjóðin í
S-Vietnam hefur átt í styrjöld í
20 ár að heita má.
Kvikmyndafélagið Geylsir hef-
ur nú hafið töku nýrrar kvikmynd-
ar. Þetta er alhliða kynningar-
mynd af landi og þjóð og atvinnu
háttum. Myndin er tekín í „Cin-
emascope“ á 35 mm Eastman Col-
or filmu. Stjórnandi er Réynir
Oddsson, en myndatökumaður
William Lubschansky, og aðstoð-
armyndatökumaðu/r, Gísli Gests-
son.
Myndatakan hófst á sunnudag
á sildarmiðunum fyrir Austur-
landi á síldarskipinu Hannesf Haf
stein, sem er eitt glæsilegasta skip
ílotans.
Sveinn Benediktsson utgerðar
maður og síldarsaltandi, veitti
leiðangrinum höfðinglega fyrir-
^eiðsllu fyrir austars, og þarf
engu að kvíða um framhaldið,
ef annað fer eftir því.
Framlög og lán til myndatök-
unnar koma frá ýmsum aðilum,
j sem hafa áhuga á landkynningu, ;
svo sem flugfélögunum. utanríkis-
ráðuneytinu, ýmsum sölusamtök-
um útgerðarmanna og fiskfram-
leiðenda, SÍS, skipafélögunum,
ferðaskrifstiofum og sérleyfishöf
um. Bílaleigan Bíllinn leggur
fram bíla til afnota meðan á tök
| unni stendur, og framkvæmdastjór
inn, Guðbjartur Pálsson, hefur tek
ið að sér að skipuleggja og undir-
búa þá ferð, sem nú er að hefjast
um öræfi landsins. Guðbjartur
vcrður sjálfur leiðangursstjóri, en
fylgdarmaður verður Halldór Eyj
ólfsson á Rauðalæk. Farið verður
á tveim fjallabilum og taka 10
manns þátt í förinni. Farið verður
á ýmsa fegurstu og merkustu staði
öræfanna svo sem Landmanna-
laugar, Veiðivötn, Eldgjá, Jökul
heima í Vatnajökli, Eyvindarkofa-
ver, Öskju, Herðubreiðarlindir o
fl., og er áætlað að hálendisferð
in taki um 10 daga.
Þetta er í fyrsta sinn, sem 35
mm cinemascopemynd verður
gerð á íslandi, og ætlað er, að
hún verði sýnd sem aukamynd í
kvikmyndahúsum víða um heim.
Kvikmyndafélagið Geysir hefur
ásett sér að bæta úr þeim skorti,
sem nú er á sýningarhæfum heim
ildarmyndum um íslenzk
efni og koma íslenzkri kvikmynda
list af heimilisiðnaðarstiginu.
Næsta verkefni félagsins er
þegar í undirbúningi, og er Þor
geir Þorgeirsson að vinna a3
handriti.
rap 4
stúlkubarn
STOKKHOLMI 3.9 (NTB).
Nokkur hundruð lögreglumenn
leituðu í dag að kynferðisglæpa-
manni, sem nauðgaði og drap f jög-
urra ára gamla stúlku, Ann-Krist-
Norðurlandaför
Johnsons hafin
Stokkhólmi, 3. september.
Varaforseti Bandaríkjanna,
Lyndon Johnson, sem kom hingað
til Svíþjóðar í dag í opinbera heim
sókn og hóf þar með Norðurlanda-
ferð sína, mun ekki eiga viðtöl
við blaðamenn í Svíþjóð eða ann-
ars staðar á Norðurlöndum.
Af bandarískri hálfu hefur verið
lögð áherzla á, að Lyndon John-
son heimsæki Norðurlönd sem per
sónulegur fulltrúi Kennedys for-
seta. Heimsóknin er fyrst og
fremst kurteisisheimsókn, en einn-
ig mun Johnson eiga viðræður
við fulltrúa ríkisstjórna Norður-
landanna fimm.
Johnson kom til flugvallarins
við Stokkhólm í morgun og kona
hans og 19 ára dóttir þeirra hjona
í fylgd með honum svo og fjöl-
mennt fylgdarlið.
í ræðu, sem Johnson hélt við
komuna, lagði hann áherzlu á vin
áttu Svía og Bandaríkjamanna. —
Hann minntist síðustu heimsókn-
ar sinnar til Svíþjóðar þegar hann
var fulltrúi Kennedys forseta vi5
útför Dags Hammarskjölds í Upp-
sala fyrir tæpum fjórum árum. í
dag kem ég í gleðilegri erindagjörð
um, byggðum á gamalli vináttu og
trausti, sa^ði hann.
Hann kvaðst sannfærður um,
að heimsóknin mundi stuðla að
því, að treysta bönd vináttu Svía
og Bandaríkjamanna enn frekar.
Krústjov kveður
Tito með kossi
Belgrad, 3. september. —
NTB-Reuter.
TITO forseti og Krústjov for-
sætisráðherra föðmuðust og kysst
ust á flugvellinum í Belgrad í dag
þegar Krústjov hélt heimleiðis til
Sovétríkjanna að lokinni hálfs
mánaðar heimsókn í Júgóslaviu.
Kinverski sendifulltrúinn í
Belgrad, Chou Min, var ekki við-
staddur á flugvellinum. Aftur á
móti var fjöldi júgóslavneskra ráð
herra og annarra stjórnmála-
manna mættur, svo og margir
sendimenn erlendra ríkja. Full-
trúar kínverska sendiráðsins voru
2. sendiráðsritari og lágt settur
starfsmaður.
Krústjov forsætisráðherra hefur
átt nokkrar viðræður við Tito for-
seta meðan hann hefur dvalizt í
Júgóslavíu. Við brottförina lögðu
þeir áherzlu á vináttu ríkjanna.
| Krústjov sagði, að viðræðurnar
við Tito mundu efla sósíalismann
og málstað friðarins og styrkja ó-
rjúfandi vináttu landanna.
Tito forseti kallaði Krústjov
mann, sem berðizt fyrir friði og
friðsamlegri sambúð og frábær-
an leiðtoga sovézka ríkisins og
kommúnista flokksins.
Hann lagði áherzlu á, að unnt
væri að fara ýmsar leiðir hvað
snerti ýmis vandamál er vörðuðu
alþjóðahreyfingu verkamanna.
Formælandi júgóslavnesku
stjórnarinnar harmaði í dag, að
bandarískum blaðamönnum var
meinaður aðgangur að plastverk-
smiðju í Zagreb, sem byggð er
fyrir bandarískt fé og Krústjov
heimsótti á sunnudaginn. Formæl-
andinn kvað þetta hafa stafað af
rangri túlkun á öryggisákvæðum.
Hann kvaðst vona, að atvik þetta
yrði ekki talið mikilvægt.
in Svensson í skemmtigarði í
Stokkhólmi á mánudag.
Margt bendir til þess að hér
sé um að ræða sama manninn,
sem drap Berit Glesing, sem er
sex ára, í öðrum garði í Stokk-
hólmi fyrir þremur vikum.
25 þús. sænskum kr. hefur ver-
ið heitið öllum þeim sem geta gef
ið lögreglunni upplýsingar um
morðingjann. Svo til allir starfs-
menn sakamálalögreglunnar
unnu að því í dag að rannsaka
ýmsar upplýsingar, sem borizt
hafa.
Lögreglan telur sig hafa lýsingu
á glæpamanninum og er honum
lýst sem grannvöxnum manni á
aldrinum 40-45 ára.
Tveir leikfélagar Ann-Kristin
heitinnar heyrðu manninn lokka
litlu stúlkuna með sér inn í
runna með því að lofa að gefa
henni sælgæti og peninga. Leikfé
lagarnir urðu óttaslegnir, hlupu
heim til sín og sögðu foreldrum
sínum frá því sem hafði gerzt.
Þegar önnur móðirin kom á
ve+tvang skömmu síðar fann hún
Ann-Krlstin litlu meðvitundar-
lausa og misþyrmda. Kallað var
á lögreglu og sjúkrabifreið. Að-
eins nokkrum mínútum síðar var
leitin að glæpamanninum komin
í algleyming.
ALÞÝÐUBLAÐID — 4. sept. 1963 3