Alþýðublaðið - 04.09.1963, Blaðsíða 7
fe
HEN SfÐAN
— Hve oft er ætlunin aS út-
varpa þessum þætti ykkar?
— Líklega einu sinni á þriggja
vikna fresti.
— Og verður svo í vetur?
Andrés þegir og hugsar sig um:
Líklega — samt ekki alveg af-
ráðið. Mín persónulega skoðun er
sú, að slíkum þætti sé alls ekki
ofaukið í vetrardagskránni. Hún
er seint of létt undir tönn.
— Að lokum: Hvað geturðu sagt
mér um þáttinn í kvöld?
— Ég má kannski nota þetta
gamla útjaskaða orðalag: Hann
verður fjölbreyttur að vanda. Þar
kemur til dæmis fram hún Eva
litla Danné, sem hefur verið að
skemmta unglingunum í Lídó að
undanförnu. Hún raular þarna með
al annars lög eftir sjálfa sig. Nú
og svo segir ungur og áhugqsam-
ur skáti, Kjartan Reynisson fró'
Jamboree móti, sem hann er ný-
kominn af. Þá verður músikk: Tón
ar, kallar hljómsveitin sig — allt
saman ungir og bjáðefnilegir
menn, —spila mestan part gít-
arlög. Þá verður viðtal við unga
hlaðfreyju, Ragnheiði Júlíusdótt-
ur, Hlaðfreyjurnar eru ung stétt í
okkar stéttafáa (— sumir segja
stéttlausa) — þjóðfélagi og verð-
ur því væntanlega gaman að heyra
hvað hún segir okkur. Loks getur
verið að Pólýfón kórinn taki lag
ið, — það verður þá létt lög —
og svo endum við líklega á liug-
leiðingum um kirkjusókn unglinga
sem Arndís Björnsdóttir verzlun-
arskólanemi flytur.
.,,: ::,
'4y'~
)
Ef ni þáttar-
ins í kvöld
Söngur Evu Danné
Rætt við ungan
skáta um Jam-
boree
Tónar leika og
syngja
Viðtal við hlað-
freyju
Pólýfánkórinn
syngur
Hugle’iðingar um
kirkjusókn unglinga
ÞEIR ERU TVEIR, sem anna§t
þáttinn, annar ljós, liinn dökkur.
Af gömlum kynnum er mér kunn
ugt að sá dökkhærði heitir Andrés
Indriðason. Hann er einn þessara
ungu manna. sem hafa lagt gjorva
hönd á margt, — leikið í hljóm-
sveit, skrifað smásögur, leikið í
Iðnó og síðast en ckki sízt stund-
að . nám við Menntaskólann í
Reykjavík.
Markús Örn Antonsson heitir
hinn. Ljós á brún og brá, hár
vexti og þrekinn, nú blaðamaður
á Morgunblaðinu og menntaskóla
nemi á vetrum. Áhugasamur mað-
ur um málefni ungs fólks og hef
ur ritað um þau greinar.
Miðvikudagur 4. september
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Tónleikar. — 8,30 Fréttir —
8.35 Tónl. — 10.10 Veðurfregnir).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.00 „Við vinnuna“: Tónleikar.
15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. — 16,30 Veð-
urfregnir. — Tónleikar. — 17.00 Fréttir. Tónleikar).
18.30 Lög úr söngleikjum. — 18.50 Tilkynningar.
19.20 Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
20.00 Ernst Benedict og hljómsveit leika valsa og polka.
20.15 Vísað til vegar: ,,í leit að rauðum ópal“. (Birgir Kjaran alþm.).
20.50 íslenzk sönlög: Lög eftir Þórarin Guðmundsson.
21.10 Skemmtiþáttur með ungu fólki (Markús Örn Antonsson og
Andrés Indriðason hafa umsjón með höndum).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kvöldsagan: „Dularilmur" eftir Kelley Roos; X. (Halldóra
Gunnarsdóttir).
22.30 Næturhljómleikar: — Sinfónía nr. 9 í C-dúr eftir Sehubert.
Columbia sinfóníuhljómsveitin leikur. Bruno Walter stjómar.
23.25 Dagskrárlok.
— Þið kallið þáttinn ykkar
„Skemmtiþátt með ungu fólki."
Hann ber náttúrulega nafn með
reutu? — Þetta er fyrsta spurn-
ingin, sem ég legg fyrir stjórn-
endur nýja þáttarins, sem við fá
um að heyra kl. 21.10 í kvöld.
— Já, svarar Andrés. Þátturinn
er einkum ætlaður ungu fólki og
á að vera bæði til skemmtunar
og fróðleiks. Það er líka ætlun
:n að eingöngu ungt fólk komi þar
‘ram.
— Er þetta fyrsta tilraunin í
þessa átt?
— Nei, Guðrún Helgadóttir var
með svipaðan þátt fyrir nokkrum
árum, en hann var ekki mjög lang
lífur. Það er þess vegna mál til
komið að fá eitthvað i svipuðum
dúr. Við vitum jú, að margir hlust
endur útvarpsins eru ungir að ár-
um og ekki hefur verið komið til
móts við áhugamál þeirra sem
skyldi. Þessi þáttur á einmitt að
koma þar að haldl ef vel fer.
— Er þetta fyrsti þátturinn hjá
ykkur Markúsi?
— Nei, annar. Við vorum með
annan einn laugardaginn. Nú höf
um við flutt hann yfir ó miðviku
dag Og ef til vill verður honum
hagrætt enn frekar í dagskránni.
Iíklega er óheppilegast að hafa
hann á laugardögum. Þá er unga
fólkið úti að skemmta sér eins og
gerist og gengur.
— Er nokkuð, sem stjórnendur
þéttarins vilja segja að lokum?
— Við biðjum fyrir beztu kveðj
ur.
Maðurinn í glerhúsinu gefur frá
sér hljóð. Eva Danné hefur upp
englaröddina. Hlaðfreyjan býr sig
undir að kynna starf íslenzkra hlað
freyja. — Já, þannig er daglega
lífið í ríkisútvarpinu íslenzka.