Óðinn - 01.10.1910, Blaðsíða 3

Óðinn - 01.10.1910, Blaðsíða 3
ÓÐINN 51 umsjón með verkinu. Fjelagið »Völundur« tók að sjer að vinna verkið og var Guðmundur Jakobs- son trjesmíðameistari umboðsmaður j)ess við bygg- inguna. Fyrir steinsmíðinu stóð Guðjón Gamalí- elsson, fyrir trjesmíðinu Helgi Thordersen og fyrir járnsmiðinu Páll Magnússon. Húsgögnin éru flest eftir Jón Halldórsson og trjeskurður allur eftir Stefán Eiríksson. Húsið stendur á Arnarlióli, norðan við Hverf- isgötu, og veit inngangurinn mót suðri. Það er svo bygt, að veggir eru tvöfaldir, úr steini; ylri veggir úr grásteini, 16 þuml. á þykt, en innri veggir 9 þuml. á þykt, úr sandsteini. Milli þeirra er autt bil, 3 þuml. Járnbitar eru í loflum, með Montier- útbúnaði í millibilum. Stigar allir eru steinsteyptir og tröppurnar múraðar á aðra hlið 8 þuml. inn í múrveggina. Alt er liúsið frá kjallaragólli og upp að efra lofti gersamlega eldtraust, 19 — 20 álnir á hæð. Það er hvítmálað utan, eins og myndin sýnir. í þessu húsi eru nú geymd bæði landsbóka- safnið, landsskjalasafnið, náttúrugripasafnið og fornmenjasafnið. Meginrúmið er auðvitað ætlað landsbókasafninu. Hyllulengd þess safns er samtals 3800 álnir, en það samsvarar lijer um bil 95 þús. binda rúmi. 1905 var talið að í safninu væru 60 þús. bindi, og svo var gert ráð fyrir íúmi handa 35 þús. binda aukningu áður nokkra breyting þyrfti að gera. En þegar safnið flutlist í nýja húsið, snemma á síðastl. ári, taldi bókavörður það um 70 þús. bindi. Þá bættust við það bókasafn prestaskólans og læknaskólans, hið fyrra 3000 bindi, en hið síð- ara rúm 500 bindi, og svo dánargjöf Fiskes, 2500 bindi, en henni liafði eigi verið hægt að koma fyrir í bókasafnsherbergjunum í alþingisliúsinu, og var hún því eigi tekin úr umbúðum fyr en safnið fluttist. Með ársviðbótum frá 1905 taldi bóka- vörður þessa aukningu alt að 10 þús. bindum. Lestrarsalur landsbókasafnsins, sem lijer fylgir mynd af, er 27 álnir á lengd og 15 álnir á breidd. Hann er norðanmegin í húsinu og útsjón úr glugg- unum yfir höfnina. Hjer á myndinni sjest aðeins nokkur hluti salsins. Maðurinn, sem stendur við bókaskápinn, er Jón Jakobsson bókavörður, en hinn, sem í stólnum situr, er Jón Jónsson sagn- fræðingur, aðstoðarbókavörður. Á hlið við hann sjest Guðbrandur Jónsson, sonur Jóns Þorkelssonar ríkisskjalavarðar og aðstoðarmaður hjá föður sín- um og á forngripasafninu. Landsskjalasafnið er í vesturenda hússins. Þar er annar lestrarsalur, eins að gerð og salur lands- bókasafnsins, en minni. Báðir j)essir salir eru í stofubygðinni. Þar er og útlánsstofa landsbóka- safnsins í austurenda. Náttúrugripasafnið er niðri, norðanmegin í liúsinu, og er gengið inn í það til hægri handar jjegar inn er komið úr forstofunni. Það rúm, sem jjetta safn hefur nú, verður tekið handa lands- bókasafninu, þegar á þarf að lialda, og verður þá náttúrugripasafnið enn að flytjast. Forngripasafnið er á efsta lofli, undir þaki, og tekur þar alt rúm. En ekki eru húsakynni þess þar hentug, og voru þau betri í landsbankanum, þar sem safnið var næst á undan, þótt rúmið sje meira þarna. Nánari lýsing á húsinu og söfnunum keinst lijer ekki að sökum rúmleysis. Hornsleinn hússins var lagður 23. scpt. 1906, og var valið til þess dánarafmæli Snorra Sturhi- sonar. Undir hornsteininn var, eins og venja er til, Iagt skjal í blýhylki, og er þctta áritunin: mllás pella er bygt handa tandsbúkasafni oc/ lands- skjatasafni íslands samkvcemt lögum um stofnun bygging- arsjóðs og bygging opinberra bygginga, slaðfeslum 20. dag oklóbermánaðar 1905, og er hornsteinninn iagður á dán- arafmœli Snorra Sturlusonar 23. scpt. 1906, á fyrsta rikis- stjórnarári Friðriks honungs hins VIII. Ráðherra: Hanncs Hafstein. Landritari: Klemens Jónsson. Fonsetar alpingis: Eirikur Briem, Július Ilafsteen, Magnús Slephensen. Bygg- ingarnefnd, kosin af alpingi: Giiðmundur Björnsson, Jón Jalcobsson, Tryggvi Gunnarsson. Teikningin gerð af: Mugdahl Nieisen byggingameistara. Verkið framlcvceml af: Fjelaginu »Völnndurv. Umsjónarmaöur við bygginguna: F. Kjörboe byggingameistari. Bókavörður landsbóka- safnsins setlur: Jón Jakobsson. Skjalavörður landsskjala- safnsins: Jón Borkeisson. Ætlast er til, að aukið sje við bygginguna e/tir pörfum síðar«. Á innri hlið hornsteinsins er liöggvið, að hann sje lagður á árlíðardag Snorra Sturlusonar og svo einkunnarorðin: »Ment er máttur«. Lestrarsalur landsbókasafnsins var opnaður til almennra afnota sunnudaginn 28. mars 1909. Ræða, sem H. Ilafstein fyrv. ráðherra hjelt, þegar liorn- steinninn var lagður, og ræða, sem Jón Jakobsson bókavörður hjelt, þegar lestrarsalurinn var opnaður, eru báðar prentaðar í »Lögrjettu«, hin fyrri 26. sept. 1906 og hin síðari 31. mars 1909. Þar er að finna nána lýsingu á liúsinu og ýmsar upp- lýsingar, sem Iandsbókasafnið snerta. Sí

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.